Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Qupperneq 12

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Qupperneq 12
„ÍSLENDINGAR EIGA DJARFHUGA RITHÖFUNDA.“ VIÐTAL VIÐ SIGURÐ A. MAGNÚSSON Það eru liöin fjögur ár frá því síðasta skáldsaga Sigurðar A. Magnússonar „ Úr snöru fuglarans“ kom út og lauk hann þá uppvaxtarsögunni um Jakob. Sigurður ræöir m.a. um stöðu íslenskra bókmennta og rithöfundarferil sinn. Þegar bókin Undir kalstjörnu kom út 1979 áttu fáir von á því að um metsölubók yrði að ræða. Hvaða áhrif höfðu viðtökurnar á feril þinn sem rithöfundar? Eg átti síður en flestir aðrir von á að bókin seldist svona vel og var alveg steinhissa. í raun höfðu viðtökumar tvennt í för með sér: Ég ákvað að halda áfram að skrifa uppvaxtarsögu Jakobs, sem ég hefði sennilega ekki gert ef viðtökumar heföu verið slæmar. í öðm lagi seldist bókin það vel að ég kom undir mig fótunum fjárhagslega og gat snúið mér algerlega að ritstörfum. Ég held að ég hafi ekki ofmetnast, ég er ægilega hræddur við mikla velgengni. Ég hafði lesið áður en bókin kom út viðtal við Graham Greene, þar sem hann sagði: „Success is delayed failure“, og þessi setning hefur alltaf blundað inní mér og ævinlega hrætt mig pínulítið. Ég skrifaði bókina úti í Berlín og það vom ekki margir sem sáu hana áður en hún kom út, en þeir sem lásu yfir vom nú ekki bjartsýnir áaðbókin seldist vel. En það var sérstaklega einn maður sem hvatti mig, það var hann frændi minn Njörður Njarðvík. Njörður kom oftar við sögu þessarar bókar. Hann bjargaði mér frá því að nafninu yrði breytt að ósk útgáfufyrirtækisins. Þeir vildu allsekkiaðbókin fengiheitið„Undirkalstjömu". Þeim þótti þaðekki vænlegt sölunafn. Hver var meginástæðan fyrir vinsældum bókarinnar? Eg hef lúmskan gmn um að það hafi verið forvitni sem að hluta til 12 BJARTUR OG FRU EMILIA • TIMARIT

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.