Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Qupperneq 19

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Qupperneq 19
rithöfundarins? Já, það gerir það óhjákvæmilega. Ég tala bara fyrir mig. Sumum finnst ógurlega gaman og hafa ekkert nema ánægjuna af skrifunum. En það fer eftir því hvemig efni maður er að skrifa um, gæti ég trúað. Því fylgir óstjómlegur kvíði þegar menn eru að kryfja sjálfa sig í skrifum sínum eins og mínar bækur hafa mikið gengið út á og róta upp og ýfa gömul sár. Eftir einhverja þessara bóka, sennilega Skilningstréð eða Jakobsglímuna, ég man það ekki, þá fannst mér ég hafa gengið svo nálægt mér að ég lagðist í rúmið og lá þar í fjórar vikur eftir að ég skilaði af mér handriti. Heil bók sem gengur svona sálrænt nærri manni fer með líkamlega heilsu manns, svo nátengd em sál og líkami. Ég veit ekki hvað olli þessu, hvort ég hafði gengið svona nærri mér við skriftimar eða hvort kvíðinn var svona mikill fyrir viðtökunum. ✓ Eg vissi, að það er hægt að skrifa sig frá komplexum og allskonar sálarkvillum, þetta höfðu Goethe og Aristóteles sagt og fleiri. Og þetta gerðist. Mér leið svo miklu betur eftir að ég hafði skrifað þessar bækur og komið af mér öllum þessum komplexum í sambandi við bemskuna og foreldrana og svo framvegis, að því trúir enginn. Það eru fjögur ár frá því að síðasta bindi uppvaxtarsögunnar um Jakob kom út. Er ný skáldsaga í smíðum? Jú, skáldsaga er búin að vera lengi í kollinum á mér og verður kannski bara þar næstu árin. Ég er með efnið, en höfuðmáli skiptir í hvaða formi maður kemur efninu frá sér, það sýndi hann Ishiguro mér og hann Mahfúz. Ég hef leitað með logandi ljósi að einhverju formi sem mér finnst spennandi og passar þessu efni. Ég er alltaf að fresta því að byija. Ég fæ sífellt nýjar og nýjar hugmyndir um hvemig ég get komið þessu á blað. Ég ætti auðvitað bara að byrja að skrifa kafla hér og kafla þar. Ætli ég geri það ekki þegar ég er búinn að læra á tölvu? Viðtal Snæbjöm Amgrímsson BJARTUR OG FRU EMILIA • TIMARIT 19

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.