Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Page 20
Orstutt kynning á leikhúsmanninum
Heiner Muller
— Fyrsta skref —
Heiner Miiller er einn þeirra fjölmörgu leikhúsmanna, sem enn
hafa ekki verið kynntír íslenskum leikhúsgestum þótt hann sé einn merkastí
og umdeildastí leikhúsmaður okkar daga. Hann er fæddur 9. janúar 1929 í
bænum Eppendorf í Þýska alþýðulýðveldinu fyrrverandi og því aðeins
fjögurra ára er Hitler komst til valda 1933. Atburðimir sem fylgdu í
kjölfarið, ofbeldi fasistanna, styrjöld, hafði gríðarleg áhrif á Miiller, ritstörf
hans og leikhússtörf. Mótívið gengur aftur í flestum verka hans og næstum
ætíð í einhverskonar sögulegu samhengi. Efniviðurinn er byltíngin, hin
þýska saga, hefnd konunnar, sekt karlmannsins.
20
BJARTUR OG FRU EMILIA • TIMARIT