Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Side 21
V erk hans eru leikin víða um heim, á Norðurlöndum, meginlandinu
og ekki síst vestan hafs. Einn helsti leikstjóri verka hans er hinn bandaríski
virtuós, Robert Wilson. Hingað til hafa fá verka hans verið sviðsett í
heimalandi hans fyrrverandi, Austur-Þýskalandi. Bæði framsækin leikhús
og íhaldssöm hafa sett verk hans á svið. Leikstjóratvíeykið Manfred Karge
og Mathias Langhoff settu upp afar nýstárlegar sýningar í Borgarleikhúsinu
í Bochum á árunum 1977 - 1986 og sýndu hve frjó verk Mullers eru í
tilraunaleikhúsi og y firleitt í leikhúsi sem rannsakarhiðóskiljanlegaen fæst
ekki við formaðar og tilsniðnar skoðanir.
Helsti drifkraftur Miillers er eyðileggingin. Að skrifa er eyði-
leggjandi ónytjungsvinna. í þrjátíu ár var hann heltekinn, allt að því sýktur
af Hamlet, Medeu og þýsku sögunni. I Hamletmaskínunni reynir hann að
greina hlutina inn að beini, rífur húð og kjöt í burt til að komast að grindinni
og eyðileggja þannig HamleL Sömuleiðis í Medeutrílógíunni og Germania
Tod in Berlin.
Frá því árið 1957 hefur hann starfað sem rithöfundur og dramatúrg
(leiklistarráðunautur) við Berliner Ensamble og frá 1976 við Volksbuhne
og hefur samið yfir þrjáu'u leikhúsverk og unnið við ýmsar þýðingar, m.a.
Hamlet, Makbeð, Sem yður þóknast.
ílann ereinnöflugasti og kröfuharðasti leikritahöfundur núu'mans,
maður orðsins, maður myndarinnar, gáfaður leikhúshugsuður. Gamansamur
og sögumaður mikill eins og mörg viðtöl bera glöggt vitni.
Múller hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna: Heinrich-
Mann-verðlaunin 1959, hin virtu leiklistarverðlaun sem kennd eru við
Múlheim 1979, virtustu verðlaun Þjóðverja fyrir útvarpsleikritun 1985 og
loks Georg-Búchner-verðlaunin 1985.
Hamletmaskínan er fullskrifuð 1977 og frumflutt30. janúar.1979
í Theatre Gerard Philipe í Saint Denis nálægt París í leikstjóm Jean
Jourdheuil. Reyndar var gerð tilraun til uppsemingar í Köln 1978 en hætt
var við eftir tveggja vikna vinnu.
Samantekt Hafliði Amgrímsson
BJARTUR OG FRÚ EMILÍA • TÍMARIT
21