Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Page 22

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Page 22
Viðtal við Heiner Muller „Drama ervél sem skrifar sjálfa sig.“ IR-eynsla mín af leíkunjm, eflirað hafa unniöbacði í Austur- og Vestur-Þýskalandi, er tvenns konar. Austur-þýskir leikarar ná betri tökum á sígildri dramatík. Þeir eiga í vandræðum með að segja góðan dag á einfaldan hátt, en þeir eiga ekki í neinum örðugleikum með Ifigeníu til dæmis. í Vestur-Þýskalandi er vandamálið þveröfugt. Þar eru leikaramir svo bundnir af eignarétti einstaklingsins að textinn er í hættu að verða einkaeign leikarans. Leikarinn gleypir textann til þess að geta síðan kastað honum afturupp, lituðum afciginskoðunum, hughrifum og tilfinningum. Textinn eyðileggst af skoðunum leikarans og geðshræringu. Minn óska- draumur er að menn líti á textann sem tónlist og fari með hann sem tónlist, sem ekki er auðvelt, ég hef mörg dæmi þess. Álítur þú að leikarar beri of mikla virðingu fyrir textanum? Leyfðu mér að taka dæmi. Við leikhúsið í Bochum í Vestur- Þýskalandi var starfandi góður leikari og góður vinur minn sem bar mikla virðingu fyrir texta og var fullur vilja að flytja áhorfendum hann sem mikinn skáldskap. Hann fór með textann eins og bókmenntir, og það var dauðinn fyrir leikritið. Þá fundum við upp á nokkru óvæntu og sögðum honum ekki frá því. Þetta gat ég vegna þess að hann var góður vinur minn. í atriðinu var hann á fjórum fótum á sviðsgólfinu og flutti textann, sem var bæði skáldlegur og hástemmdur. Skyndilega losnaði ein gólffjölin undir honum og hann varð að einbeita sér að því að halda sér föstum. Þá fyrst kom textinn eins og hann átti að vera, skyndilega var textinn þama einn, og hann varð miklu auðveldari og skiljanlegri. Er þaö skoöun þín aö hægt sé aö samtvinna skáldskap (poesQ og dramatík? J á, það er enginn vandi, en menn mega ekki sýna að það sé skáldleg lisL Höfuðatriði er hin skáldlega tjáning og dramað er tungumál persónunnar. 22 BJARTUR OG FRÚ EMILIA • TIMARIT

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.