Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Page 23
Ef þetta er ekki í takt viö persónuna veröur það eingöngu skáldleg list og
ekki dramatík. Texti Shakespeare er alltaf skáldskaparlist, en jafnframt
tungumál persónunnar.
Hvað meö þín verk, eru þau skáldskaparlist eöa dramatík?
/
Eg lít á þau sem dramatík. Sumir telja þau skáldskaparlist. En
þetta er spuming um leikstjóm og leikmáta, sem sýnir að þau em dramatík
og ekki skáldskaparlist.
Þú hefur sagt aö aöeins fimm til sex af hundrað uppsetningum
verka þinna hafi veriö vel heppnaöar. Hvers vegna?
P ær vora vel heppnaðar fyrir mér. Má vera að fleiri en fimm til sex
hafí verið vel heppnaðar fyrir áhorfendum. Fyrir mér er það spuming um að
tvinna skáldskapinn og dramað vel saman.
Hvers vegna valdir þú aö skrifa fyrir leikhús?
s
I raun og vera var það ekkert val. Ég átti ekki um neitt að velja.
Þegar ég var tíu til tólf ára byrjaði ég að skrifa leikrit. Ég hef aldrei reynt að
skrifa prósa, það litla sem ég hef skrifað hefur aldrei verið meira en tíu síður.
Ætlir þú að skrifa prósa verður þú að sitja afar lengi við skrifborðið. Að
skrifa dramatík er eins og að vinna með vél sem skrifar sig sjálf. Prósa
verður þú að skrifa. Drama er vél sem leitar samskipta við aðrar vélar og
úr verður leikhús. Ég trúi ekki lengur á lestur. Lestur er eitthvað sem heyrir
fortíðinni til fyrir flesta. Allir eiga sjónvarp og vídeótæki. Það er merkilegt
að hinir þekktu prósahöfundar skrifa skáldsögur upp á 4 - 500 síður. Þeir
verða metsöluhöfundar, margir kaupa þá en enginn les þá. Leikhúsið á aftur
á móti framtíð fyrir sér, vegna þess að það byggir á líkamlegri nálægð
áhorfandans og leikarans, sem ég álít að verði eina form samskipta.
Hvaöan kemur mótþrói þinn aö skrifa prósa?
í^egar maður skrifar prósa ert maður algerlega einn. Maður getur
ekki dregið sig í hlé.
Þú verður aö taka á þig ábyrgöina á því sem þú skrifar?
*
Eg held að ég geti ekki skrifað prósa í þriðju persónu. Ég get ekki
skrifað: „Washington gekk í átt að 42. stræti." Og ég get einfaldlega ekki
BJARTUR OG FRU EMILIA • TIMARIT
2