Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Qupperneq 29

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Qupperneq 29
að bíða. Hanamir eru hálshöggnir. Það er enginn morgunn meir. ÁÉG SAMKVÆMT VENJU AÐ STINGA MÁLMI í NÆSTA SKROKK EÐA ÞARNÆSTA OG FÁ MÉR HANDFESTU Á MEÐAN VERÖLDIN SNÝST HERRA LÁTTU MIG HÁLSBROTNA VIÐ FALL AF BEKK ÁKRÁNNI Hóras inn frá vinstri. Nákominn hugsunum mínum, fullum af blóði, meðan morgunninn hefur tjaldað galtómum himni. ÞÚ KEMUR OF SEINT VINUR MINN FYRIR SÝNING ARLAUNIN/EKKERT PLÁS S FYRIR ÞIG í HARMLEIK MÍNUM. Hóras, þekkir þú mig. Ert þú vinur minn, Hóras. Hvemig geturðu verið vinur minn, ef þú þekkir mig. Viltu leika Póloníus sem langar til að sofa hjá dóttur sinni, hinni ljúfu Ófelíu, hún kemur inn á stikkorðinu sínu, sjáðu hvemig hún dillar rassinum, tragískt hlutverk. Hóras-Póloníus. Ég vissi að þú værir leikari. Það er ég líka, ég leik Hamlet. Danmörk er fangelsi, milli okkar vex upp veggur. Sjáðu hvað vex úr veggnum.Póloníus ÚL Móðir mínbrúðurin. Brjósthennarerurósabeður, skautið ormagryfjan. Hefurðu gleymt textanum þínum, mamma. Ég hvísla ÞVOÐU MORÐIÐ ÚR ANDLITIÞÍNU PRINSINN MINN / OG LÍTTU NÝJA DANMÖRK BJÖRTUM AUGUM. Ég ætla að gera þig aftur að jómfrú, mamma, svo að þinn kóngur fái blóðugt brúðkaup. MÓÐUR- SKAUTIÐ ER ENGIN EINSTEFNUG ATA. Nú bind ég hendur þínar aftur fyrir bak með brúðarslörinu því mér býður við faðmlagi þínu. Nú ríf ég sundur brúðarklæðin. Nú áttu að æpa. Nú velti ég tætlum brúðarkjólsins uppúrþeirri moldsem faðirminn hefurbreystí.maka tætlunumáandlitþitt maga þinn brjóst þín. Nú tek ég þig, móðir mín, í ósýnilegum sporum hans, sporum föður míns. Óp þín kæfi ég með vörum mínum. Kannastu við ávöxtinn af undirlífi þínu. Gakktu nú gleiðfætt til brúðkaups þíns, hóra, í danskri sólinni sem skín á lifendur og dauða. Ég mun stoppa líkunum í klóakrörin svo höllin kafni í konunglegum skít. Láttu mig síðan éta hjarta þitt, Ófelía, hjarta þitt sem mínum tárum grætur. 2 Evrópa Konunnar Enormous room. Ófelía. Hjarta hennar er klukka. ÓFELÍ A (Kór/Hamlet) BJARTUR OG FRÚEMILÍA • TÍMARIT 29

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.