Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1990, Blaðsíða 30
Ég er Ófelía. Sú sem áin hélt ekki eftir. Konan í snöru Konan með
sundurskomu slagæðamar Konan í lyfjadáinu Á VÖRUNUM SNJÓR
Konan með höfuðið í gasofninum. í gær hætti ég við að kála mér. Ég er ein
með brjóst mín læri mín skaut mitt. Ég mölva verkfæri ánauðar minnar
stólinn borðið rúmið. Ég eyði vígvellinum sem var mitt heima. Ég opna
dymar, svo vindurinn og öskur heimsins berist hingað inn. Ég mölva
rúðumar. Með blæðandi höndum ríf ég í sundur ljósmyndimar af mönnunum
sem ég hef elskað, af þeim sem tóku mig í rúminu á borðinu á stólnum á
gólfinu. Ég legg eld að fangelsi mínu. Ég kasta fötum mínum á eldinn. Ég
gref úr brjósti mínu klukkuna sem var hjarta mitL Ég geng út á strætið
íklædd blóði mínu.
3
Scherzo
Háskóli hinna dauðu. Hvísl og muldur. Frá legsteinum (predikunarstólum)
kastadauðuheimspelángarnirbókum sínumíHamlet. Uppstilling(ballett)
látinna kvenna. Konan ( snöru Konan með sundurskornu slagœðarnar
o.s.frv. Hamlet skoðarþœr einsog safn- (sýningar-) gestur. Látnu konurnar
slíta fötin af líkama hans. Út úr kistu sem stendur upp á endann með
áletruninniHAMLET 1 stíga Kládíusog Ófelía, hún ígervi hóru. Striptease
Ófelíu.
ÓFELÍA
Viltu éta hjarta mitt, HamleL Hlær
HAMLET Hendur fyrir andliti
Ég vil vera kona.
Hamlet klœðist fötum Ófelíu, Ófelía ber á hann hórumaska, Kládíus, nú
faðir Hamlets, hlœr hljóðlaust, Ófelía sendir Hamlet fingurkoss og stígur
inn ( kistuna með Kládíusi I föðurnum. Hamlet ( hórustellingu. Engill,
andlitið ( hnakka: Hóras. Dansar við Hamlet.
RÖDD (RADDIR) úr kistunni
Allt sem þú deyddir skalt þú og elska.
Dansinn verður hraðari og villtari. Hlátur úr Idstunni. A rambeltu jómfrú
María með brjóstkrabba. Hóras spennir upp regnhlíf, umfaðmar Hamlet.
Þeir stirðna ífaðmlagi undir regnhlífinni. Brjóstkrabbinn lýsir sem sól.
30
BJARTUR OG FRU EMILIA • TIMARIT