Víkurfréttir - 14.08.1980, Qupperneq 3

Víkurfréttir - 14.08.1980, Qupperneq 3
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 14. ágúst 1980 3 OLÍUHÖFN í HELGUVÍK Eldsneytisleiðslur varnarliðsins frá Keflavíkurhöfn að Keflavíkur- flugvelli standa í vegi fyrir skipulagi hafnarsvæðisins í Keflavík og íbúðasvæðis í Njarðvík Nýlega héldu bæjarráð Keflavfkur og Njarðvikur samelglnlegan fund þar sem ræddar voru fyrirhugaðar framkvæmdir vegna aðstöðu tll uppbyggingar uppskipunar- og geymslu á eldsneyti í Helguvík. Meðfylgjandi ályktun var samþykkt og send utanrikisráðherra: ..Sameiginlegur fundur bæjarráða Keflavíkur og Njarð- víkur, haldinn fimmtudaginn 31. júlí, fagnar þeirri ákvörðun utan- ríkisráðherra að hefja undirbún- ing að framkvæmdum við oliuuppskipunarhöfn i Helguvík. Jafnframt lýsir fundurinn yfir ánægju sinni með mikil og góð störf nefndarinnar sem vann að undirbúningi málsins. Bæjarráðin benda á að tillög- ur nefndarinnar eru í meginatrið- um í samræmi við óskir og ályktanir bæjarfélaganna sem árum saman hafa farið fram á úr- A ári trésins: Keflavíkur- bær úthlutar 14 hekturum til gróður- setningar ( tilefni af ári trésins hefur Keflavíkurbær ráðstafað um 14 hekturum lands til félagasam- taka til gróöursetningar trjáa í bæjarlandinu. Áætlað er að svæöi þetta verði í framtíöinni bætur í þessum málum, og bendir í því sambandi á eftirfar- andi samþykkt bæjarráðanna frá 20. marz 1978: ,,Á undanförnum árum hafa farið fram umræður og kannanir á milli Keflavikur- bæjar, Njarðvíkurbæjar og Varn- armálanefndar um möguleika á að eldsneytisleiðslur varnarliðs- ins frá Keflavíkurhöfn að Kefla- víkurflugvelli verði fluttar með tilliti til þess að leiðslurnar standa í vegi fyrir skipulagi hafnarsvæöisins í Keflavík og íbúðasvæðis i Njarðvik. Á síðastliönu ári skemmdist útivistarsvæði innan bæjarmark- anna. Tvö félagasamtök í Keflavik, Lionsklúbbur Keflavíkur og Aust firðingafélag Suðurnesja, hafa þegar hafiö gróðursetningu á svæðinu, sem er allt opið svæði milli Flugvallarvegar og Vestur- götu. Þá hefur Keflavikurbær ákveðið að verja um 20 milljón- um sérstaklega til lagfæringar á útivistarsvæði við minnismerki sjómanna ofan við Gagnfræða- skólann og hefur verið unnið að þeim framkvæmdum undan- farið. Auk þess verður gert átak víðs vegar um bæinn til fegrunar hans. olíuuppskipunarbryggja í Kefla- vikurhöfn í óveðri og í framhaldi af því var óskað eftir því af stjórn Landshafnar Keflavíkur og Njarð víkur, að ákvörðun yröi tekin um framhald uppskipunar á elds- neyti í höfninni. Bæjarráð Kefla- víkur og Njarðvíkur hafa leitað umsagnar nokkurra rikisstofn- ana um málið. Fram kemur i áliti þeirra að nauðsynlegt sé að kanna aðrar leiðir til uppskipun- ar á eldsneyti og er bent á tvo val- kosti, Helguvík og Innri-Njarð- vík. Bæjarráðin eru sammála um að leggja til við samstarfsnefnd um skipulagsmál, aö hún láti gera ítarlega könnun á því hvort fært sé aö gera í Helguvik upp- skipunarhöfn fyrir eldsneyti og að upp af víkinni á „Berginu" verði útbúið tankasvæði fyrir allt eldsneyti sem um er rætt. Nefndinni verði falið að flýta þessu verkefni og taka þaö sér- staklega til meðferðar, svo að unnt verði að taka sem fyrst ákvörðun um framtíðarstaö fyrir uppskipun og geymslu eldsneyt- is á svæðinu" (tilvitnun lýkur). Bæjarráð Keflavikur og Njarð- víkur ítreka fyrri samþykktir sín- ar í þessu máli og benda jafn- framt á þá miklu mengunarhættu sem vatnsbólum bæjanna stafar af núverandi olíugeymum, sem eru orðnir gamlir og hættu- lega nálægt byggö, en í fjölda ár hafa bæjaryfirvöld bent á þessa hættu og krafist úrbóta. Mörg undanfarin ár hefur öllu eldsneyti sem notað er vegna farþegaflugs frá Keflavíkurflug- velli, verið ekið um Reykjanes- braut frá Reykjavik og Hafnarfirði. Akstur þessi hefur valdið miklu sliti á Reykjanes- braut og skapar mikla slysa- hættu á þjóðveginum. Bæjarráðin leggja áherslu á að öll framangreind atriði séu höfð í huga við endanlegar ákvarðanir og skorar á stjórnvöld að kvika ekki frá ráðgerðum framkvæmd- um í Helguvík. Það fer ekki á milli mála að hér er stórmál á ferðinni fyrir okkur Suðurnesjamenn og um þetta hefur mikið verið ritað og rætt hér á undanförnum árum. Eflaust eru flestir Suöurnesja- menn orðnir nokkuð langþreytt- ir eftir að góö lausn fáist á þessu máli, og skorar blaöið á bæjar- ráðsmenn í Keflavík og Njarðvík að fylgja þessu máli fast eftir, þó að á brattann sé að sækja. Njarðvík: Innbrot f mann- lausa íbúð Laugardaginn 2. ágúst sl. var brotist inn í mannlausa íbúð að Borgarvegi 5 í Njarðvík. Húsiö var læst, en farið hafði verið inn um þvottahúsglugga, upþ á loft og inn í stofu og stolið þar ferða- útvarpstæki. Aldrei er of oft brýnt fyrir fólki að ganga vel frá öllum gluggum og hurðum áður en það yfirgef- ur híbýli sín til lengri eða skemmri dvalar. Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur FERÐAÁÆTLUN Sandgerði — Keflavík — Reykjavík. Frá Frá Frá Sandgerði Keflavík Reykjavík 9,00 6,45* 9,00* 12,45 9,30 13,30 15,00** 13,30 15,30 17,00** 15,30 17,30 19,00** 17,30 19,00 19,30 23,00 *) Ekki helgidaga. **) Ekið um Miðnesheiði, annars um Garð. Aukaferðir á helgidögum: Frá Keflavík kl. 12,00 og 22,30. Frá Sandgerði kl. 22,00. Frá Reykjavík kl. 10,30 og 24,00. Nýársdag, föstud. langa, páskadag og hvítasunnudag er fyrsta ferð kl. 12,00 frá Keflavík. Kjörorðið er: ÖRYGGI ÞÆGINDI HRAÐI Afgreiðslur okkar eru: í Reykjavík í Umferðarmiðstöðinnl sími 22300. I Keflavík að Hafnargðtu 12 síml 1590.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.