Víkurfréttir - 14.08.1980, Page 5

Víkurfréttir - 14.08.1980, Page 5
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 14. ágúst 1980 5 Gatnagerðarframkvæmdir I Keflavík I sumar hafa farið fram tals- veröar framkvæmdir í gerö var- anlegra gatna í Keflavík, en malbik sem keypt er hjá Reykjavíkurborg veröur lagt á um 1 km af nýjum götum og einnig verður endurnýjaö malbik á um 3 km af eldri götum. Þá hefur Keflavíkurbær keypt um 3000 tonn af olíumöl sem áætlaö er aðleggja á götur nú íár, 1.5 km af nýjum götum og 3 km vegna viöhalds aldri olíumalar. Ef áætlun um gerð varanlegs slitlags á götur Keflavíkur stenst, mun bæjarfélagið verða komiö i hóp þeirra þriggja sveitarfélaga sem best eru sett á landinu í þessum efnum, að ári. 25 bátar eru aðgerðarlausir Þegar humarveiöum lauk um sl. mánaöamót höföu borist á land í Keflavík og Njarðvík um 60 lestir af slitnum humri, en hæstu bátarnir voru Sæborg meö 10.965 kg og Heimir meö 10.582 kg. Þá höföu togarar landaö í júli alls 544 lestum úr 5 veiöiferðum, en síöasta löndun var 11. júlí sl., þá stöövuöust togararnir vegna lokunar frystihúsanna. 3 snur- voöabátar lönduöu 279 lestum í Keflavik í júlí, eöa aö jafnaöi 4.8 lestum í róðri. Hæstursnurvoöa- bátanna var Gullþór meö 113 lestir í mánuöinum. Volvo - Volvo Til sölu er Volvo 164 árg. 1972. Sjálfskiptur með vökvastýri og power- bremsum. Uppl. í síma 2677. ( dag eru 9 bátar gerðir út frá Keflavík og Njarðvík, og 25 eru verkefnalausir, en fyrir mánuði voru gerðir út 24 bátar og 13 voru stopp af ýmsum ástæöum. Af þessum 9 bátum eru 3ásnurvoö, 2 á rækju, 2 á handfærum og einn á netum. Þá hóf fyrsti báturinn línuveiöar nú fyrir helgi, en gert er ráö fyrir aö talsverö aukning veröi í haust og vetur í línuút- gerö frá Suöurnesjum. 3 Keflavíkurbátar stunda nú djúprækjuveiöar fyrir Norður- landi og reiknaö er meö aö 5 bátar fari á loönuveiöar, en aöra báta frá Keflavík og Njarövík er veriö aö útbúa ýmist á línu- eöa síldveiöar. I sumar voru gerðir út 20 smábátar frá Keflavik, 2-8 lestir aö stærö, og voru flestir þeirra á handfærum. Þeir eru nú all flestir hættir veiöum. Frá Grunnskóla Njarðvíkur Laus kennarastaða við Grunnskóla Njarðvíkur. Aðalkennslugrein eðlisfræði og líffræði. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 92- 2125 og varaformaður skólanefndar í síma 92- 2785. Skólanefndin Utanhússmálning: ÞOL Á ÞÖKIN HRAUN A VEGGINA FÚAVARNAREFNI Á VIÐINN ATH. Bjóðum sérstök kjör ef keypt er mikið magn (t.d. á heil hús). diopinn Hafnargötu 80 - Keflavík - Sími 2652 fFjölbrautaskóli Suðurnesja verður settur í Samkomuhúsinu í Garði, Gerða- hreppi, mánudaginn 1. september kl. 16. Stundaskrár verða afhentar þar og í skólahús- inu að skólasetningu lokinni og þriðjudaginn 2. september. Kennsla hefst að morgni miðvikudags 3. sept. Skólameistari «Fjölbrautaskóli Suðurnesja Meistaraskóli Löggildingarnámskeið fyrir byggingameistara hefst í Fjölbrautaskóla Suðurnesja í september- mánuði, ef næg þátttaka fæst. Umsóknarfrestur er til 25. ágúst, Nánari upplýsingar veita skrifstofa skólans og Hreinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Meistara- félags byggingamanna á Suðurnesjum. Skólameistari

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.