Fréttablaðið - 09.08.2016, Blaðsíða 2
Veður
Hægviðri eða hafgola í dag. Skýjað með
köflum og stöku skúrir suðaustanlands,
en víða sólskin fyrir norðan. Fremur
hlýtt veður. sjá síðu 20
Vegaframkvæmdir í borginni
Umferðaræðin þrengd Nokkur truflun varð á umferð vegna framkvæmda við gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar í gær. Í dag verður
Miklabraut fræst og malbikuð til vesturs og umferð hliðrað til á meðan, samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar. Fréttablaðið/Eyþór
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Finndu okkur
á facebook
Gæði og g
læsileiki e
ndalaust ú
rval af há
gæða flísu
m
samfélag „Þetta er í rauninni rosa-
lega stór og mikill áfangi. Það er svo
mikilvægt að auka sýnileikann og
sýna fjölbreytnina í flórunni,“ segir
Magnús Hákonarson, formaður
BDSM á Íslandi, um þátttöku
félagsins í Gleðigöngu Hinsegin
daga sem var gengin á laugardag-
inn. BDSM-fólk tók þá í fyrsta sinn
þátt í göngunni undir merkjum
félagsins.
Upplifunina af því að ganga í
Gleðigöngunni í ár segir Magnús
hafa einkennst af hamingju og
gleði. Einhverjir hafa þó ekki verið
samþykkir tilvist BDSM á Íslandi en
hann segir að heyra hafi mátt hóp
fólks hrópa að þeim ókvæðisorð.
Meðal annars var BDSM-fólk kallað
„helvítis perraógeð“.
„Þetta sýnir hvað það er mikil-
vægt að taka þátt. Það, í rauninni,
er lykillinn að þessu öllu saman,“
segir Magnús.
Þegar tilkynnt var um þátttöku
BDSM á Íslandi í Gleðigöngunni
skrifaði BDSM á Íslandi eftirfarandi
á Facebook-síðu sína: „Atriðið verð-
ur frekar lágstemmt og hógvært,
engar pyntingar eða svipusmellir,
bara fólk að sýna samstöðu með
sjálfu sér og öðrum.“
Magnús segir það hafa verið
skrifað sem kaldhæðið grín en
segir nokkra fjölmiðla hafa gripið
þessi orð á lofti og sett þau í fyrir-
sögn. Hann segir allt sem við kemur
BDSM bera með sér sterk og stór
orð sem auðvelt sé að nota í svo-
kallaðar smellubrellur (e. clickbait)
til að fá sem flesta til að smella á
fréttina. „Vandamálið er það að
þessar fyrirsagnir fá fólk vissulega
til að smella en fólk les ekki niður-
lagið og fær ekki þau skilaboð sem
fréttin ætti að vera að skila,“ segir
hann.
Þá segir hann fordóma í garð
BDSM-fólks hafa minnkað undan-
farið. „Við finnum rosalegan mun
á síðustu árum hvað mikið hefur
lagast. Það kemur með auknum
sýnileika og umfjöllun.“
Magnús segir það hafa verið
vandamál að fólk hafi getað fundið
sér stað inni í skápnum. Áherslan
hafi ekki verið á það að koma út úr
honum. „Það má segja að það við-
haldi ástandinu. Það gerir engum
gott að vera fastur inni í skápnum
með part af sjálfum sér.“
thorgnyr@frettabladid.is
Þátttakan stór áfangi
fyrir BDSM á Íslandi
Formaður BDSM á Íslandi segir að æðislegt hafi verið að ganga í Gleðigöngunni
í Reykjavík um helgina. Þátttakan sé óháð deilunni um veru félagsins innan
Samtakanna 78. Ókvæðisorð voru hrópuð að BDSM-fólki á meðan á göngu stóð.
Það er svo mikil-
vægt að auka
sýnileikann og sýna fjöl-
breytnina í flórunni.
Magnús
Hákonarson,
formaður
BDSM á Íslandi
að vanda tók fjöldi fólks þátt í Gleðigöngunni sem fram fór síðastliðinn laugardag,
þar á meðal fulltrúar bDSM á Íslandi. Fréttablaðið/Hanna
lögreglumál Tveir menn eru í
gæsluvarðhaldi í tengslum við rann-
sókn lögreglunnar á átökunum í
Breiðholti síðastliðið föstudags-
kvöld. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá lögreglunni.
Annar mannanna, sem hand-
teknir voru í gær, verður í gæslu-
varðhaldi út vikuna á grundvelli
rannsóknarhagsmuna. Hinn mað-
urinn var úrskurðaður í varðhald
um helgina en hann var handtekinn
aðfaranótt laugardags.
Sérsveit og almennir lögreglu-
menn vopnuðust á föstudagskvöld
eftir að lögreglu barst tilkynning um
að tveimur skotum hefði verið skotið
úr byssu fyrir utan söluturn í Iðufelli.
Hópur manna hafði safnast fyrir
framan söluturninn en hann tvístr-
aðist þegar skotum var hleypt af úr
haglabyssu. Öll umferð inn í hverfið
var stöðvuð um tíma. – ngy, jóe
Tveir í haldi
vegna átaka í
Breiðholti
stjórnmál Sigurður Ingi Jóhanns-
son forsætisráðherra þarf tíma til
að meta afstöðu stjórnarandstöð-
unnar til dagsetningar alþingis-
kosninganna í haust. Þetta segir
Benedikt Sigurðsson, aðstoðar-
maður Sigurðar Inga.
Leitað var eftir viðbrögðum for-
sætisráðherra í kjölfar ummæla
þingflokksformanna stjórnarand-
stöðunnar í Fréttablaðinu í gær um
að óvissa um tímasetningu boðaðra
kosninga myndi trufla þingstörfin.
Formenn flokkanna ætla að
funda áður en Alþingi kemur
saman til að ræða hvernig knýja
megi fram dagsetningu á alþingis-
kosningarnar.
Haft var eftir Oddnýju G. Harðar-
dóttur, formanni Samfylkingarinn-
ar, að þingstörfin gætu ekki gengið
eðlilega fyrr en búið væri að ákveða
kjördag.
Óttarr Proppé, formaður Bjartrar
framtíðar, sagði flokkinn byrjaðan
að stilla upp listum en að skortur
á dagsetningu geri uppstillingar-
starfið erfitt. „Það er ekkert sérlega
gaman að biðja fólk um að gefa
kost á sér í kosningum sem það
veit ekki hvort eða hvenær verða
haldnar.“
Allir stjórnmálaflokkarnir eru
byrjaði að undirbúa kosningar í
haust þrátt fyrir óvissu um dag-
setningu þeirra.
Bjarni vildi ekki bregðast við
ummælum þingflokksformanna
stjórnarandstöðunnar en hann
hefur ítrekað sagt að kosið verði í
haust. – ngy
Ráðherra
þarf tíma
til að svara
Fjármálaráðherra hefur
ítrekað sagt að kosið verði í
haust þó dagsetning kosn-
inga liggi ekki fyrir. Forsætis-
ráðherra hugleiðir viðbrögð
við ákalli stjórnarandstöð-
unnar um að dagsetning
verði ákveðin.
9 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ r I ð j u D a g u r2 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð
0
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
3
4
-F
2
D
C
1
A
3
4
-F
1
A
0
1
A
3
4
-F
0
6
4
1
A
3
4
-E
F
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K