Fréttablaðið - 09.08.2016, Page 6
Keisarinn vill losna
Akihito, hinn aldni keisari Japans, skýrði þjóð sinni frá því í sjónvarpsávarpi að hann óttaðist að heilsu hans færi að hraka það mikið að hann ætti erfitt
með að sinna skylduverkum sem fylgja tigninni. Hann er orðinn 82 ára og hefur aðeins einu sinni áður ávarpað þjóðina í sjónvarpi. Fréttablaðið/EPa
TIL LEIGU
VANDAÐAR ÍBÚÐIR Í SKIPHOLTI 11-13
í
MEÐ EÐA ÁN
HÚSGAGNA
FRÁ OG MEÐ 15. ÁGÚST
Rúmgóðar 2ja herbergja íbúðir með
suðursvölum á góðum stað í miðborginni
LEIGA Á MÁNUÐI:
ÁN HÚSGAGNA KR. 240.000
ME Ð HÚSGÖGNUM KR. 340.000
Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar:
www.leigufelagid.is
SÍMI: 571 6403- leigufelagid@leigufelagid.is
Hjálparstarf Stjórnendur Land-
helgisgæslunnar reikna með því að
senda flugvél Gæslunnar, TF Sif, í
verkefni á vegum Frontex, landa-
mærastofnunar Evrópusambands-
ins, við Miðjarðarhaf í lok ágúst-
mánaðar.
Svanhildur Sverrisdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Landhelgisgæslunnar,
segir að Frontex óski eftir mismun-
andi tækjum frá þeim þjóðum sem
stofnunin á samskipti við. Þörfin
hverju sinni ráði óskum Frontex.
Þjóðirnar taki svo afstöðu til þeirra
beiðna. „Núna er það flugvélin sem
hefur verið óskað eftir,“ segir hún.
Skip Landhelgisgæslunnar hafa
ekki verið að störfum á Miðjarðar-
hafi það sem af er ári en í fyrra voru
bæði Ægir og Týr í verkefnum á
vegum Frontex. Eins og greint var
frá á þeim tíma, tóku áhafnir skip-
anna þátt í björgun hundraða flótta-
manna.
Lítið hefur verið greint frá stöðu
flóttamanna við Miðjarðarhaf
undan farnar vikur. Ástandið er þó
enn grafalvarlegt og vinnur Rauði
kross Íslands að margvíslegum verk-
efnum í þágu þeirra.
Atli Viðar Thorstensen, sviðs-
stjóri Hjálpar- og mannúðarsviðs
Rauða kross Íslands, segir að Rauði
krossinn styðji verkefni í Líbanon
og styðji einnig alþjóðaráð Rauða
krossins í Sýrlandi.
„Hugsunin með starfinu í Sýrlandi
er að gera því fólki sem enn er í Sýr-
landi, og annaðhvort getur ekki eða
vill ekki fara, kleift að vera áfram,“
segir Atli. Rauði krossinn vinnur
með Rauða hálfmánanum í Sýrlandi
og snýst stafið meðal annars um að
halda vatnsveitukerfinu gangandi
meira og minna. „Það er líka verið að
dreifa matvælum, teppum og hrein-
lætisvörum til þeirra sem eru á flótta
innan Sýrlands og líka þeirra sem eru
á sínum heimaslóðum en hafa ekki
aðgengi að neinni björgun.“
Í Líbanon styður Rauði krossinn
á Íslandi og í Noregi við heilsu-
gæslu á hjólum sem veitir flóttafólki
almenna heilsugæslu og þjónustu
að öðru leyti. Rauði krossinn í Líb-
anon veitir þjónustuna en Íslend-
ingar og Norðmenn leggja til fé og
tæknilega aðstoð. Stuðningurinn í
Sýrlandi er svipaður.
Íslenskur læknir og hjúkrunar-
fræðingur störfuðu í Dohuk í Kúrd-
istan í Írak fyrir um það bil ári
og einnig hefur sendifólk starfað
í Bagdad á vegum Rauða kross
Íslands. Þá var íslenskur geðhjúkr-
unarfræðingur, Páll Biering, starf-
andi í Grikklandi fyrr á árinu og
þar hefur einnig María Ólafsdóttir
læknir verið starfandi.
Atli Viðar segir að Rauði kross
Íslands líti á stuðninginn sem verk-
efni til langs tíma. Hann nefnir sem
dæmi að Líbanon sé smáríki, með
um fjórar til fimm milljónir íbúa. Þar
sé aftur á móti um ein milljón flótta-
manna sem hvorki geti né vilji snúa
heim aftur í bráð. Stuðningur Rauða
krossins sé því verkefni sem muni
vara í nokkur ár. Hann segir utan-
ríkisráðuneytið hafa stutt dyggilega
við verkefnið. jonhakon@frettabladid.is
Íslensk gæsluflugvél
til Miðjarðarhafsins
Áætlað er að Dash 8 vél Landhelgisgæslunnar fari í verkefni á Miðjarðarhafi í
lok mánaðar. Þótt fréttaflutningur af flóttamannavandanum hafi minnkað er
vandinn enn gríðarlegur. Rauði krossinn veitir aðstoð í Sýrlandi og Líbanon.
30. júlí var 437 flóttamönnum bjargað og voru þeir fluttir til hafnar í Pozzallo á
Sikiley. lögreglan handtók fjóra sem grunaðir eru um mansal. Fréttablaðið/EPa
Heilbrigðismál Nýlega vottaði Kon-
unglega breska lyflæknafélagið (Royal
College of Physicians, RCP) sérnám í
lyflækningum á Íslandi en þar er um
gríðarlega mikilvægt skref að ræða
á leið að öflugri Landspítala. Þetta
kemur fram á vef Landspítalans.
Einn af takmarkandi þáttum
íslenskrar heilbrigðisþjónustu er að
erfitt hafi verið að bjóða upp á fullt
sérnám í lækningum hér á landi,
meðal annars vegna fámennis.
Boðið hefur verið upp á fullt sérnám
í heimilislækningum og geðlækn-
ingum hérlendis en forsvarsmenn
þeirra greina hafa hins vegar mælt
með því að námslæknar tækju hluta
af sérnámi sínu erlendis.
Í ýmsum sérgreinum lækninga á
Landspítala er keppst við að uppfylla
markmið nýrrar reglugerðar, til að
geta boðið upp á formlegt sérnám. Við
uppbyggingu lyflækninga, eftir að
hrun greinarinnar blasti við fyrir
tæpum þremur árum, ákváðu ráðu-
neyti heilbrigðismála og Landspítali
að við endurreisn lyflækninga yrði
framhaldsnámið sett í forgang. – sg
Sérnám í
lyflækningum
hér fær vottun
Á vef lSH kemur fram að greinum sem
læknar geta nú orðið fullnuma í hér á
landi fjölgi. Fréttablaðið/VilHElm
menntamál Rúmlega 14 þúsund
nemendur stunda nám í grunnskól-
um í Reykjavík á næsta skólaári, að
því er segir í tilkynningu borgarinnar.
Skólarnir verða settir 22. ágúst.
Þá kemur fram að börn sem setjast
á skólabekk í fyrsta sinn verði um
1.500. Gert er ráð fyrir nokkurri fjölg-
un á milli ára þar sem árgangur barna
sem fædd eru 2010 er nokkuð stór líkt
og var með árganginn 2009. – ngy
Skólabörnum fjölgar
börn að leik í Ísaksskóla í reykjavík.
Fréttablaðið/VilHElm
atli Viðar thor-
stensen, sviðsstjóri
hjálpar- og mann-
úðarsviðs rauða
kross Íslands
9 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ r i ð j U D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
3
5
-1
A
5
C
1
A
3
5
-1
9
2
0
1
A
3
5
-1
7
E
4
1
A
3
5
-1
6
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K