Fréttablaðið - 09.08.2016, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 09.08.2016, Blaðsíða 11
Það er ekki auðvelt að skilja hvers vegna íslenskt samfélag hefur vanrækt heilbrigðiskerfið að því marki og um þann tíma sem raun ber vitni. Íslenskt samfélag er nefni­ lega búið til úr hjartahlýju fólki sem ekkert aumt má sjá. Það samrýmist ekki hugmyndum okkar um okkur sjálf að það skuli vera fólk í landi hér sem geti ekki nýtt sér heilbrigðis­ þjónustu af því það hafi ekki efni á því. Það samrýmist heldur ekki okkar hug­ myndum um okkur sjálf að það skuli vera biðlistar á Spítalanum okkar eftir lífsnauðsynlegum aðgerðum og að vegna tækjaskorts þurfi að senda sjúklinga til Kaupmannahafnar. Hvers vegna er þetta þá svona? Ég hef það á tilfinningunni að við höfum villst af leið í þokunni sem leggst yfir hug og hjarta þegar efnishyggjan tekur völdin og bankar verða valdamestu stofnanir samfélagsins. Við eigum að skammast okkar fyrir það vegna þess að við fæddumst í þennan heim með þau þokuljós sem hefðu átt að duga til þess að lýsa okkur rétta leið. Við sem ólumst upp sem sósíalistar eigum að skammast okkar meira en aðrir vegna þess að pólitíska hugmynda­ fræðin okkar hefði átt að varða okkur veginn. Og ef einhverjum finnst ég eigi að skammast mín manna mest hef ég engin mótrök. En það er bara þannig með þessar pólitísku hugmyndafræðir að þær virðast vera vitagagnslaust drasl þeim sem eru komnir á valda­ stóla og veita okkur kjósendum litla innsýn í það sem þeir kynnu að gera sem við viljum koma þangað. Það var ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, Samfylkingar og Vinstri grænna, sem endanlega losaði mig við þá tál­ sýn að pólitísk hugmyndafræði sem menn aðhyllast hafi forspárgildi um það hvernig þeir kunni að haga sér á valdastólum. Þegar í harðbakkann sló holaði hún velferðarkerfið að innan, lét utanríkisþjónustuna í friði, reisti Hörpu (að vísu vildi Katrín Jakobs­ dóttir láta mála vinstri hliðina á henni græna en það gleymdist) og byrjaði að bora gat í gegnum Vaðlaheiðina. Þetta var fyrsta hreinræktaða félagshyggju­ ríkisstjórnin í sögu lýðveldisins! Þetta ginnungagap milli pólitískrar hug­ myndafræði og hegðunar á valda­ stólum gerir það að verkum að kjós­ endur verða að horfa framhjá eða í gegnum yfirlýsta hugmyndafræði þegar þeir ákveða hvernig þeir eigi að kjósa menn til góðra verka. Það er nefnilega þannig að munur­ inn á stjórnmálaflokkunum virðist eingöngu vera til staðar þegar þeir eru í stjórnarandstöðu. Þá eru vinstri flokkar vinstri flokkar og hægri eru hægri. Þegar þeir eru komnir í stjórn eru þeir allir eins án tillits til hægri eða vinstri, upp eða niður, himnaríkis eða helvítis. Nú stefnir í kosningar í haust og stjórnmálamenn eru farnir að undir­ búa sig og það er ljóst að kosninga­ undirbúningur laðar ekki endilega það besta fram í þeim sem eiga lífs­ viðurværi sitt undir því að þeir eða vinir þeirra komist á þing. Það ber þó ekki að vanmeta skemmtanagildið af því að fylgjast með mönnum reyna að ganga í augun á kjósendum með orðum og æði sem gæti drepið naut­ gripi úr mikilli fjarlægð. Ég hef meira að segja á stundum verið hræddur um að þessi ósköp gætu drepið stór­ hveli og með því snúið alþjóðasam­ félaginu gegn okkur. Það eru að vísu gleðitíðindi að í kosningabaráttunni nýbyrjuðu virðast flestir stjórnmála­ flokkarnir staðsetja sig vinstra megin við þann stað sem þeir voru á fyrir síðustu kosningar. Ljósasta dæmið um þetta kom úr ólíklegustu áttinni þegar Bjarni Benediktsson sagði í blaðaviðtali að hann liti svo á að það væri kominn tími til þess að hætta að lækka skatta og byrja að hlúa að inn­ viðum samfélagsins eins og velferðar­ kerfinu. Hann sagði líka að hann liti svo á að hlutverk ríkisins væri að hlúa að þeim sem minna mættu sín. Hinir gætu séð um sig sjálfir. Í þessu við­ tali lét hann Sjálfstæðisflokkinn taka stórt skref í átt að miðjunni og minnti með því um margt á afabróður sinn og alnafna. Það hefur verið athyglis­ vert að fylgjast með viðbrögðum pólitískra andstæðinga Bjarna við hugmyndafræðilegri endurfæðingu hans. Í stað þess að taka því fagnandi að Sjálfstæðisflokkurinn heiti því að styðja lítilmagnann og velferðarkerf­ ið og hætti að eyða öllum kröftum sínum í að hlúa að heilsu ríkisfjár­ mála þá hæðast þeir að honum fyrir vikið. Illugi Jökulsson sem er einn af krossförum Samfylkingarinnar skrif­ aði meira að segja grein þar sem hann setti stefnubreytingar Bjarna í sam­ hengi við bandarískan sjónvarpsþátt um lýtalækningar sem heitir Extreme Makeover. Illuga finnst hann fyndinn og ég er á því að þar hafi hann rétt fyrir sér. Honum sést hins vegar yfir þá staðreynd að fyndnin hans áleitna og hvassa er að mestu á kostnað Sam­ fylkingar og Vinstri grænna. Þeir flokkar geta nefnilega ekki farið í gegnum samskonar Extreme Make­ over þegar kemur að velferðarkerfinu og aðhlynningu lítilmagnans í okkar samfélagi, vegna þess að þeir eru búnir að lofa fyrir margar kosningar en þegar þeir hafa komist í aðstöðu til þess að efna hafa þeir alltaf svikið. Þeir gætu að vísu haft það sem eitt af sínum kosningaloforðum núna að rífa velferðarkerfið í tætlur og ef þeir kæmust í ríkisstjórn gætu þeir svikið það. Annars konar Extreme Make­ over stendur þeim ekki til boða. Við kjósendur sem viljum að hlúð sé að velferðarkerfinu og þá sérstaklega heilbrigðiskerfinu stöndum frammi fyrir því að við erum annars vegar með félagshyggjuflokkana, Samfylk­ ingu og Vinstri græna, sem hafa alltaf lofað að hlúa að velferðarkerfinu og verja það gegn öllu illu og síðan farið létt með að svíkja það og hins vegar Sjálfstæðisflokkinn sem hefur hingað til ekki einu sinni séð ástæðu til þess að lofa. Nú hefur Bjarni fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins lofað og er því kominn í aðstöðu til þess að efna sem við hljótum að fagna þótt við hörmum þá staðreynd að hann sé líka í aðstöðu til þess að svíkja. Það er dapurlegt til þess að hugsa að íslensk þjóð sem næstum sem einn maður vill að heilbrigðiskerfið sé endur reist og velferðarkerfið í heild sinni bætt hefur litla trú á því að það sé til í landinu stjórnmálaflokkur sem komi til með að efna loforð um að gera það. Það er óásættanlegt að þurfa að ganga til kosninga undir slíkum kringumstæðum. Ég er því með tillögu til úrbóta: Fjármálaráð­ herra leggi fram frumvarp til fjár­ aukalaga nú í ágúst þar sem fé er veitt til þess að losa okkur við greiðslu­ þátttöku sjúklinga, Landspítalinn er efldur og heilsugæslan endurreist. Allir þingmenn, stjórnarandstöðu jafnt sem stjórnar, greiði frumvarp­ inu atkvæði og sýni þannig að þeir geri sér grein fyrir því að þeirra hlut­ verk sé að þjóna þjóðinni sem vill að þetta gerist. Að þessu loknu gætum við gengið til kosninga með svolitla gleði í hjarta og greitt atkvæði með þeim flokki sem við höfum minnsta fyrirlitningu á. Ef þetta gerist ekki er hætta á því að við kjósum öll Píratana vegna þess að þeir hafa í raun réttri enga pólitíska hugmyndafræði að hunsa, hafa ekki haft tækifæri til þess að svíkja loforð og þótt þeir séu harla lítið sem ekki neitt eru þeir býsna hip og kúl. Það er nefnilega þannig að óplægður akur í hraungrýti getur verið svo miklu meira aðlaðandi en illgresið í garð­ inum heima. Svolítil gleði í hjarta Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Það er nefnilega þannig að munurinn á stjórnmála- flokkunum virðist eingöngu vera til staðar þegar þeir eru í stjórnarandstöðu. INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 17. SUN. 13 - 17. INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. ADIDAS ENERGY BOOST 3 Vinsælustu Adidas hlaupaskórnir á frábæru verði. Dömu- og herrastærðir. Á meðan birgðir endast. FRÁBÆRT VERÐ! 19.990 ADIDAS ENERGY BOOST 3 VERÐ ÁÐUR 24.990 ERTU KLÁR Í HLAUPIN? s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 9 . á G ú s T 2 0 1 6 0 9 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 3 4 -F 2 D C 1 A 3 4 -F 1 A 0 1 A 3 4 -F 0 6 4 1 A 3 4 -E F 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.