Fréttablaðið - 09.08.2016, Page 11
Það er ekki auðvelt að skilja hvers vegna íslenskt samfélag hefur vanrækt heilbrigðiskerfið að
því marki og um þann tíma sem raun
ber vitni. Íslenskt samfélag er nefni
lega búið til úr hjartahlýju fólki sem
ekkert aumt má sjá. Það samrýmist
ekki hugmyndum okkar um okkur
sjálf að það skuli vera fólk í landi hér
sem geti ekki nýtt sér heilbrigðis
þjónustu af því það hafi ekki efni á því.
Það samrýmist heldur ekki okkar hug
myndum um okkur sjálf að það skuli
vera biðlistar á Spítalanum okkar
eftir lífsnauðsynlegum aðgerðum og
að vegna tækjaskorts þurfi að senda
sjúklinga til Kaupmannahafnar. Hvers
vegna er þetta þá svona? Ég hef það á
tilfinningunni að við höfum villst
af leið í þokunni sem leggst yfir hug
og hjarta þegar efnishyggjan tekur
völdin og bankar verða valdamestu
stofnanir samfélagsins. Við eigum að
skammast okkar fyrir það vegna þess
að við fæddumst í þennan heim með
þau þokuljós sem hefðu átt að duga til
þess að lýsa okkur rétta leið. Við sem
ólumst upp sem sósíalistar eigum
að skammast okkar meira en aðrir
vegna þess að pólitíska hugmynda
fræðin okkar hefði átt að varða okkur
veginn. Og ef einhverjum finnst ég eigi
að skammast mín manna mest hef ég
engin mótrök. En það er bara þannig
með þessar pólitísku hugmyndafræðir
að þær virðast vera vitagagnslaust
drasl þeim sem eru komnir á valda
stóla og veita okkur kjósendum litla
innsýn í það sem þeir kynnu að gera
sem við viljum koma þangað. Það var
ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur,
Samfylkingar og Vinstri grænna,
sem endanlega losaði mig við þá tál
sýn að pólitísk hugmyndafræði sem
menn aðhyllast hafi forspárgildi um
það hvernig þeir kunni að haga sér á
valdastólum. Þegar í harðbakkann sló
holaði hún velferðarkerfið að innan,
lét utanríkisþjónustuna í friði, reisti
Hörpu (að vísu vildi Katrín Jakobs
dóttir láta mála vinstri hliðina á henni
græna en það gleymdist) og byrjaði að
bora gat í gegnum Vaðlaheiðina. Þetta
var fyrsta hreinræktaða félagshyggju
ríkisstjórnin í sögu lýðveldisins! Þetta
ginnungagap milli pólitískrar hug
myndafræði og hegðunar á valda
stólum gerir það að verkum að kjós
endur verða að horfa framhjá eða í
gegnum yfirlýsta hugmyndafræði
þegar þeir ákveða hvernig þeir eigi að
kjósa menn til góðra verka.
Það er nefnilega þannig að munur
inn á stjórnmálaflokkunum virðist
eingöngu vera til staðar þegar þeir
eru í stjórnarandstöðu. Þá eru vinstri
flokkar vinstri flokkar og hægri eru
hægri. Þegar þeir eru komnir í stjórn
eru þeir allir eins án tillits til hægri
eða vinstri, upp eða niður, himnaríkis
eða helvítis.
Nú stefnir í kosningar í haust og
stjórnmálamenn eru farnir að undir
búa sig og það er ljóst að kosninga
undirbúningur laðar ekki endilega
það besta fram í þeim sem eiga lífs
viðurværi sitt undir því að þeir eða
vinir þeirra komist á þing. Það ber þó
ekki að vanmeta skemmtanagildið af
því að fylgjast með mönnum reyna
að ganga í augun á kjósendum með
orðum og æði sem gæti drepið naut
gripi úr mikilli fjarlægð. Ég hef meira
að segja á stundum verið hræddur
um að þessi ósköp gætu drepið stór
hveli og með því snúið alþjóðasam
félaginu gegn okkur. Það eru að vísu
gleðitíðindi að í kosningabaráttunni
nýbyrjuðu virðast flestir stjórnmála
flokkarnir staðsetja sig vinstra megin
við þann stað sem þeir voru á fyrir
síðustu kosningar. Ljósasta dæmið
um þetta kom úr ólíklegustu áttinni
þegar Bjarni Benediktsson sagði í
blaðaviðtali að hann liti svo á að það
væri kominn tími til þess að hætta að
lækka skatta og byrja að hlúa að inn
viðum samfélagsins eins og velferðar
kerfinu. Hann sagði líka að hann liti
svo á að hlutverk ríkisins væri að hlúa
að þeim sem minna mættu sín. Hinir
gætu séð um sig sjálfir. Í þessu við
tali lét hann Sjálfstæðisflokkinn taka
stórt skref í átt að miðjunni og minnti
með því um margt á afabróður sinn
og alnafna. Það hefur verið athyglis
vert að fylgjast með viðbrögðum
pólitískra andstæðinga Bjarna við
hugmyndafræðilegri endurfæðingu
hans. Í stað þess að taka því fagnandi
að Sjálfstæðisflokkurinn heiti því að
styðja lítilmagnann og velferðarkerf
ið og hætti að eyða öllum kröftum
sínum í að hlúa að heilsu ríkisfjár
mála þá hæðast þeir að honum fyrir
vikið. Illugi Jökulsson sem er einn af
krossförum Samfylkingarinnar skrif
aði meira að segja grein þar sem hann
setti stefnubreytingar Bjarna í sam
hengi við bandarískan sjónvarpsþátt
um lýtalækningar sem heitir Extreme
Makeover. Illuga finnst hann fyndinn
og ég er á því að þar hafi hann rétt
fyrir sér. Honum sést hins vegar yfir
þá staðreynd að fyndnin hans áleitna
og hvassa er að mestu á kostnað Sam
fylkingar og Vinstri grænna. Þeir
flokkar geta nefnilega ekki farið í
gegnum samskonar Extreme Make
over þegar kemur að velferðarkerfinu
og aðhlynningu lítilmagnans í okkar
samfélagi, vegna þess að þeir eru
búnir að lofa fyrir margar kosningar
en þegar þeir hafa komist í aðstöðu
til þess að efna hafa þeir alltaf svikið.
Þeir gætu að vísu haft það sem eitt af
sínum kosningaloforðum núna að
rífa velferðarkerfið í tætlur og ef þeir
kæmust í ríkisstjórn gætu þeir svikið
það. Annars konar Extreme Make
over stendur þeim ekki til boða. Við
kjósendur sem viljum að hlúð sé að
velferðarkerfinu og þá sérstaklega
heilbrigðiskerfinu stöndum frammi
fyrir því að við erum annars vegar
með félagshyggjuflokkana, Samfylk
ingu og Vinstri græna, sem hafa alltaf
lofað að hlúa að velferðarkerfinu
og verja það gegn öllu illu og síðan
farið létt með að svíkja það og hins
vegar Sjálfstæðisflokkinn sem hefur
hingað til ekki einu sinni séð ástæðu
til þess að lofa. Nú hefur Bjarni fyrir
hönd Sjálfstæðisflokksins lofað og er
því kominn í aðstöðu til þess að efna
sem við hljótum að fagna þótt við
hörmum þá staðreynd að hann sé líka
í aðstöðu til þess að svíkja.
Það er dapurlegt til þess að hugsa
að íslensk þjóð sem næstum sem
einn maður vill að heilbrigðiskerfið
sé endur reist og velferðarkerfið í
heild sinni bætt hefur litla trú á því að
það sé til í landinu stjórnmálaflokkur
sem komi til með að efna loforð um
að gera það. Það er óásættanlegt að
þurfa að ganga til kosninga undir
slíkum kringumstæðum. Ég er því
með tillögu til úrbóta: Fjármálaráð
herra leggi fram frumvarp til fjár
aukalaga nú í ágúst þar sem fé er veitt
til þess að losa okkur við greiðslu
þátttöku sjúklinga, Landspítalinn
er efldur og heilsugæslan endurreist.
Allir þingmenn, stjórnarandstöðu
jafnt sem stjórnar, greiði frumvarp
inu atkvæði og sýni þannig að þeir
geri sér grein fyrir því að þeirra hlut
verk sé að þjóna þjóðinni sem vill að
þetta gerist.
Að þessu loknu gætum við gengið
til kosninga með svolitla gleði í hjarta
og greitt atkvæði með þeim flokki
sem við höfum minnsta fyrirlitningu
á. Ef þetta gerist ekki er hætta á því að
við kjósum öll Píratana vegna þess að
þeir hafa í raun réttri enga pólitíska
hugmyndafræði að hunsa, hafa ekki
haft tækifæri til þess að svíkja loforð
og þótt þeir séu harla lítið sem ekki
neitt eru þeir býsna hip og kúl. Það er
nefnilega þannig að óplægður akur
í hraungrýti getur verið svo miklu
meira aðlaðandi en illgresið í garð
inum heima.
Svolítil gleði í hjarta
Kári Stefánsson
forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar
Það er nefnilega þannig að
munurinn á stjórnmála-
flokkunum virðist eingöngu
vera til staðar þegar þeir eru í
stjórnarandstöðu.
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 17. SUN. 13 - 17.
INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
ADIDAS ENERGY BOOST 3
Vinsælustu Adidas hlaupaskórnir á
frábæru verði. Dömu- og herrastærðir.
Á meðan birgðir endast.
FRÁBÆRT
VERÐ!
19.990
ADIDAS
ENERGY BOOST 3
VERÐ ÁÐUR
24.990
ERTU KLÁR Í
HLAUPIN?
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11Þ R i ð J u D A G u R 9 . á G ú s T 2 0 1 6
0
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
3
4
-F
2
D
C
1
A
3
4
-F
1
A
0
1
A
3
4
-F
0
6
4
1
A
3
4
-E
F
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K