Fréttablaðið - 09.08.2016, Page 14

Fréttablaðið - 09.08.2016, Page 14
Óskar Ófeigur Jónsson ooj@365.is visir.is Ólympíuleikarnir í ríÓ Hrafnhildur Lúthersdóttir keppti í 100 m bringusundi Kepptu í nótt Vinningshafar eru kynntir á Facebooksíðu BYKO á hverjum föstudegi til 19. ágúst. 1. ÞÚ KAUPIR GAGNVARIÐ PALLAEFNI FYRIR 50.000 KR. EÐA MEIRA Á TÍMABILINU 1. JÚNÍ - 19. ÁGÚST 2016. 2. ÞÚ SKRÁIR NÓTUNÚMER OG AÐRAR NAUÐSYNLEGAR UPPLÝSINGAR Á www.byko.is/pallaleikur 3. ÞÚ ERT KOMINN Í POTTINN OG GÆTIR UNNIÐ VEGLEGA VINNINGA! PALLA- LEIKUR BYKO Vertu með! Sund Síðustu tólf mánuðir hafa verið magnaðir fyrir sundkonuna Hrafn- hildi Lúthersdóttur sem hefur frá og með Heimsmeistaramótinu í Kazan 2015 tekið hvert skrefið á fætur öðru í átt að því að fá fulla aðild að elítuhópi bringusundskvenna heimsins. Hrafnhildur tók eitt stærsta skrefið aðfaranótt mánudagsins þegar hún tryggði sér sæti í úrslitasundinu í 100 metra bringusundi. „Þetta er mjög stórt fyrir mig enda stærsta sundmót sem er til fyrir sund- menn. Jú, jú, við erum með heims- meistaramótið en það er ekkert í líkingu við þetta,“ segir Hrafnhildur. Það hefur verið frábært að fylgjast með framförum hennar síðustu árin. Hún virðist alltaf geta tekið næsta skref og nú er hún komin það langt að hún skrifar nýjan kafla í íslensku sundsöguna á hverju stórmóti. Hrafnhildur lenti í miklu mótlæti fyrir Ólympíuleikana í London 2012 þegar hún meiddist rétt fyrir leikana en í stað þessa að brotna þá gaf hún í. Nú skrifaði hún tvisvar söguna á sama deginum með því að komast fyrst í undanúrslit og svo í úrslit á Ólympíu- leikum. Því hafði íslensk sundkona aldrei náð fyrir leikana í Ríó. Hrafnhildur fór í úrslit í tveimur greinum á HM í Kazan fyrst íslenskra kvenna í ágúst 2015 og hún vann þrenn verðlaun á EM í 50 metra laug í London í maí sem fáa hefði dreymt um að væri möguleiki fyrir nokkrum árum. Hún fagnaði 25 ára afmæli sínu þremur dögum fyrir setningarhátíð- ina. „Þegar maður verður eldri þá á maður ekki endilega að ná því að verða betri. Sem betur fer þá er það þannig hjá mér því ég virðist geta farið hraðar þegar ég þroskast meira og þá get ég áfram bætt mig,“ segir Hrafnhildur. Hún nýtir sér allt til þess að læra meira. „Það er rosalega gott að geta fengið athugasemdir frá öllum,“ segir Hrafn- hildur en auk Jacky Pellerin landsliðs- þjálfara eru í Ríó Klaus-Jürgen Ohk, þjálfari hennar hjá SH, og Anthony Conrad Nesty, þjálfari hennar í Flór- ída-háskóla í Bandaríkjunum. Hrafnhildur hefur ekki áhyggjur af Ég er með þeim bestu Hrafnhildur Lúthersdóttir er himinlifandi yfir að hafa alla þjálfarana með sér í Ríó. Hún nýtti sér góð ráð og hélt áfram að skrifa íslensku sundsöguna. Í nótt varð hún fyrsta íslenska konan til þess að synda til úrslita á Ólympíuleikum. Stressaðri fyrir undan rásirnar en fyrir undan úrslitin Hrafnhildur lúthersdóttir stress­ aðist upp rétt fyrir sund sitt í undanrásunum og þannig fór á endanum að hún varð miklu stressaðri fyrir undanrásirnar en undanúrslitasundið. „Ég held að ég hafi sett smá pressu á mig af því að ég stóð mig svo vel á em. Þá hugsaði ég með mér: Ég verð nú allavega að kom­ ast í undanúrslitin. annars væri þetta svo vandræðalegt að verða í öðru sæti á em og greinilega með þeim bestu í evrópu en geta svo ekki komist í undanúrslit,“ segir Hrafnhildur hlæjandi. „Það er engin skömm að því en ég var bara búin að setja svoleiðis pressu á sjálfa mig. Fyrsta sundið er líka alltaf svolítið stressandi af því maður þekkir ekki til. Það er alltaf gott að nota fyrsta sundið til þess að læra á þetta allt. Sem betur fer gekk allt upp og ég komst áfram,“ segir Hrafnhildur. því að hún sé að fá of mikið af upplýs- ingum þegar svona margir þjálfarar eru að skipta sér af henni. „Þeir eru allir stilltir inn á það sama. Þess vegna held ég að mér hafi gengið svona vel og að ég sé að æfa svona vel. Það sem ég er að æfa hjá Nesty er svip- að og það sem ég er að æfa með Klaus þegar ég fer heim,“ segir Hrafnhildur. „Þeir eru að hittast í fyrsta skiptið hérna á þessum leikum. Þegar Klaus fer yfir þær upplýsingar sem Nesty er að gefa mér þá segir hann: Ó, já, þetta er bara það sama og ég myndi gera. Þeir eru að spila á svipuðum nótum og það er rosalega þægilegt fyrir mig að sjá það og vinna með það,“ segir Hrafnhildur. Hún hefur góða sögu að segja af Klaus-Jürgen Ohk. „Ég vinn svo vel með Klaus. Hann skrifaði upp mark- mið fyrir mig fyrir heimsmeistara- mótið í stuttu lauginni 2013. Þar skrifaði hann að við ætluðum að komast í úrslit á HM og svo í úrslit á Ólympíuleikunum. Til þess að gera það þá gerum við þetta, þetta og þetta. Svona voru skrefin og hann skrifaði þetta allt niður og sýndi mér," segir Hrafnhildur og þetta stóðst allt. „Hann sagði mér núna að ég væri búin að fara eftir öllum skrefunum og ná þessum árangri. Það er allt búið að ganga upp og það er rosalega heppi- legt,“ segir Hrafnhildur og hún er núna án vafa búin að stimpla sig inn í hóp bestu bringusundskvenna heims. „Ég er með þeim bestu, myndi ég segja, og ég er mjög ánægð með það. Ég vona líka að þetta geti verið góð hvatning fyrir yngri sundmenn heima og hvetji þau að halda áfram að synda. Þó að maður verði eldri þá getur maður haldið áfram að bæta sig,“ segir Hrafnhildur. Hún synti úrslitasundið í nótt eftir að Frétta- blaðið var farið í prentun. 9 . á g ú S t 2 0 1 6 Þ R I Ð J u d A g u R14 S p o R t ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð sport pepsi-deild karla Víkingur - Breiðablik 3-1 0­1 Árni Vilhjálmsson (8.), 1­1 Óttar magnús karlsson (41.), 2­1 Óttar magnús (72.), 3­1 Óttar magnús (82.). Þróttur - Stjarnan 1-1 1­0 Christian Sörensen (18.), 1­1 Hilmar Árni Halldórsson, víti (33.). FH -KR 0-1 0­1 kennie Chopart (98.). Stjarnan missti af tækifæri til að fara á topp deildarinnar eftir að FH tapaði fyrir KR, 1-0, með dramatísku sigurmarki Kennie Chopart í upp- bótartíma. Stjörnumenn urðu hins vegar að sætta sig við markalaust jafntefli við botnlið Þróttar. Blikar misstu dampinn í toppbaráttunni eftir 3-1 tap fyrir Víkingi þar sem hinn ungi Óttar Magnús Karlsson skoraði þrennu. Efst FH 28 Stjarnan 27 Fjölnir 26 Breiðablik 23 Neðst Víkingur Ó 18 íBV 17 Fylkir 10 Þróttur r 8 Nýjast 0 9 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 3 4 -F C B C 1 A 3 4 -F B 8 0 1 A 3 4 -F A 4 4 1 A 3 4 -F 9 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.