Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.08.2016, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 09.08.2016, Qupperneq 16
✿ Fern verðlaun Íslendinga á Ólympíuleikum Sydney 2000 Vala Flosadóttir bronS í StangarStökki Melbourne 1956 Vilhjálmur Einarsson Silfur í þríStökki Peking 2008 Handbolta- landslið karla SilfurloS angeleS 1984 Bjarni Friðriksson bronS í júdó ÓlympÍuleikar Sumarólympíuleik- arnir eru nú haldnir í 31. sinn og að þessu sinni eru þeir komnir alla leið suður til borgarinnar Ríó í Brasilíu. Suður-Ameríka er þá fimmta heims- álfan á eftir Evrópu (fyrst í Aþenu 1896), Norður- og Mið-Ameríku (St. Louis 1904), Eyjaálfu (Melbourne 1956) og Asíu (Tókýó 1964) til þess að halda sumarólympíuleikana. 28 af 30 sumarólympíuleikum til þessa hafa farið fram á norðurhveli jarðar en nú eru þeir aðeins í þriðja skiptið komnir suður fyrir miðbaug. Það að leikarnir fari fram á suður- hvelinu rifjar upp fyrri tvenna leik- ana sem hafa verið haldnir sunnan við miðbaug. Þaðan eiga Íslendingar góðar minningar og eins og leikarnir byrja í Ríó þá er íslenska íþróttafólk- ið farið að bæta nokkrum í sjóðinn. Við Íslendingar eignuðumst nefnilega verðlaunahafa á hvorum tveggja hinum leikunum sem fóru fram í þessum hluta heimsins, eða í Melbourne í Ástralíu fyrir sextíu árum (1956) og í Sydney í Ástralíu fyrir sextán árum (2000). Það var ein- mitt á þessum tvennum leikum þar sem fyrsti íslenski íþróttamaðurinn vann Ólympíuverðlaun árið 1956 og fyrsta íslenska íþróttakonan vann Ólympíuverðlaun árið 2000. Fyrir 60 árum náði Vilhjálmur Einarsson afreki sem hefur ekki enn verið bætt þegar hann hlaut silfur- verðlaun í þrístökki á Ólympíuleik- unum í Melbourne í Ástralíu. Vil- hjálmur setti Ólympíumet á mótinu og átti það í tvo klukkutíma en á endanum var það Brasilíumaðurinn Adhemar da Silva sem stökk tíu sentimetrum lengra en hann. Vil- hjálmur fékk því silfur en síðan eru liðin sextíu ár og enginn Íslendingur hefur gert betur en hann. Bjarni Friðriksson vann brons- verðlaun í júdó í Los Angeles 1984 og íslenska handboltalandsliðið vann silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008. Fyrstu og einu Ólympíuverð- laun íslenskrar konu vann Vala Flosadóttir þegar Ólympíuleikarnir fóru síðast fram á suðurhveli. Vala fór þá yfir í sjö fyrstu stökk- unum sínum og endaði á því að setja bæði Íslands- og Norðurlandamet með því að stökkva yfir 4,50 metra. Allar aðrar voru búnar að fella í það minnsta einu sinni þegar Vala fór yfir 4,50 metra. Á endanum stukku þær Stacy Dragila frá Bandaríkjunum (4,60 m) og Tatiana Grigorieva frá Ástralíu (4,55) hærra og tóku með því gullið og silfrið. Leikarnir í Sydney fyrir sextán árum buðu ekki aðeins upp á bronsverðlaunahafa því bæði Örn Arnarson og Guðrún Arnardóttir náðu sögulegum árangri, Örn besta árangri íslensks sundmanns með því að ná 4. sæti í 200 metra baksundi og Guðrún besta árangri íslensks hlaup- ara með því að ná 7. sæti í 400 metra grindahlaupi. Íslensku sundkonurnar Eygló Ósk Gústafsdóttir og Hrafnhildur Lúth- ersdóttir hafa báðar unnið til verð- launa á stórmótum á síðustu átta mánuðum og Ásdís Hjálmsdóttir og Aníta Hinriksdóttir komust báðar í úrslit á síðasta Evrópumóti. Eygló Ósk og Hrafnhildur fóru fyrstar íslenskra kvenna í undanúrslit í sinni fyrstu grein og Hrafnhildur síðan alla leið í úrslit sem hafði ekki gerst hjá íslenskum sundmanni síðan, jú, leik- arnir voru síðast á suðurhveli jarðar. Það er því efniviður til að ná góðum árangri í Ríó og halda kannski uppi þeirri skemmtilegu hefð að ná sögulegum árangri á Ólympíuleikum á suðurhvelinu. Draumur um verðlaun er til staðar en það að eiga marga keppendur í úrslitum er einnig mikið afrek. Suðurhvelið hefur reynst okkar fólki vel Sumarólympíuleikarnir fara nú í fyrsta sinn fram í Suður-Ameríku og aðeins í þriðja sinn á suðurhveli jarðar. Íslenskt íþróttafólk upp- lifði stór tímamót á fyrstu tvennum Ólympíuleikunum á suðurhveli jarðar og freistar þess að endurtaka leikinn í Ríó í Brasilíu nú. Fimleikar Irina Sazonova varð á sunnudaginn fyrst íslenskra fim- leikakvenna til að keppa á Ólympíu- leikum þegar hún varð í 40. sæti í undankeppni í fjölþraut. Irina var ellefu sætum frá því að komast í úrslit en síðasta stelpan sem komst þangað var Ana Pérez frá Spáni. Irina fékk samtals 53.200 stig en sú spænska var með 55.265 stig. Irina stefndi á 54.000 stig fyrirfram en þau hefðu ekki dugað henni til að komast í hóp þeirra 24 bestu. Irina náði hæst á tvíslá af ein- stökum áhöldum eða í 58. sæti en hún varð í 60. sæti á gólfi, í 64. sæti á jafn- vægisslá og í 67. sæti í stökki. Irina Sazonova hefur þegar sett stefnuna á að komast aftur á Ólympíuleikana eftir fjögur ár og svo gæti farið að Ísland eignist í henni fastagest á leikunum. Irina skar sig nokkuð úr að einu leyti meðal keppendanna í fim- leikakeppni kvenna. Hún er nefnilega með risastórt húðflúr á vinstri fætinum. „Ég fékk þetta fyrir svona ári. Það var mjög sárt að æfa fimleika með nýtt húð- flúr,“ viðurkennir Irina. Húðflúðrið á fætinum er þó ekki fullgert og hún á enn eftir að fá meiri lit í það. Irina er aftur á móti komin með Ríó 2016 flúrað aftan á hálsinn í tilefni af því að hún er nú komin í hóp Ólympíufara. Það þekkist meðal Ólympíu- fara, íslenskra sem erlendra. Hér á myndunum með fréttinni má sjá þessi tvö húðflúr Irinu. – óój Sárt að æfa fimleika með nýtt húðflúr Leikarnir í Ríó eru þeir fyrstu sem fara fram í Suður- Ameríku og þeir þriðju sem fara fram á suðurhveli jarðar. 9 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ r i Ð J u D a g u r16 s p o r t ∙ F r É t t a B l a Ð i Ð 0 9 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 3 5 -1 0 7 C 1 A 3 5 -0 F 4 0 1 A 3 5 -0 E 0 4 1 A 3 5 -0 C C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.