Fréttablaðið - 09.08.2016, Side 17

Fréttablaðið - 09.08.2016, Side 17
fólk kynningarblað 9 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A g U R Magnesíum Oil Sport spreyið frá Better You hefur reynst íþrótta- fólki mjög vel og sérstaklega hlaupurum og hjólreiðafólki sem á það til að fá vöðvakrampa í miðri keppni eða á æfingu. Sigurjón Sigurbjörnsson ofurhlaupari sem orðinn er sextugur hefur notað spreyið í nokkur ár og segir magn- esíumolíuna hafa hjálpað sér mjög mikið og bætt árangur sinn. Hann hleypur oftar en ekki með spreyið á sér og ef hann hleypur fram á hlaupara sem liggur í vegarkant- inum með krampa þá spreyjar Sigurjón magnesíumolíunni á krampasvæðið og krampinn fer oftar en ekki samstundis. Mörg úrvalsdeildarliðin á Englandi nota magnesíum olíuspreyin til að fyrirbyggja harðsperrur og vöðva- krampa og til að flýta fyrir endur- heimt vöðva eftir æfingar. Sore No More hita- og kæligelin eru verkjastillandi og geta verið öflug meðferð við tímabundnum vöðva- eymslum, bólgum, harðsperrum og þreytu eftir stífar æfingar. Sore No More er einstök blanda af virkum plöntukjörnum í gelformi, án alkóhóls og kemískra íblönd- unar- og geymsluefna. Gelið virk- ar strax og það er upplagt fyrir æfingar til að koma blóðrásinni af stað og eftir æfingar til að minnka harðsperrur og stífleika og eymsli í vöðvum. Það hefur einnig reynst mjög vel við vöðvabólgu. Organic Beetroot hylkin frá Nat- ures Aid eru vel þekkt á Íslandi og það er hollusta rauðrófunnar einn- ig. Hún er mjög auðug af andox- unarefnum og hafa rannsóknir á rauðrófu sýnt að hún er æðavíkk- andi og þar með eykst blóðflæði líkamans. Aukið blóðflæði hefur mjög góð áhrif á mannslíkamann og er meðal annars talið geta auka snerpu, orku og úthald og þar með árangur íþróttafólks. Kristbjörg Jónsdóttir, hlaupari og zumba- kennari, notar rauðrófuhylkin daglega og finnur mun á orku og úthaldi. Hún segir rauðrófuhylkin einnig hafa haft mjög góð áhrif á mikinn hand- og fótkulda sem hún hefur glímt við. Nutrilenk bætiefnin þarf vart að kynna en þúsundir Íslendinga nota þau daglega og hafa gert í mörg ár. Til eru tvær tegundir efnisins; Nutrilenk Gold og Nutri- lenk Active og svo nýlega kom Nutrilenk Gel á markaðinn. Nutri- lenk Gold hentar þeim best sem þjást af minnkuðum brjóskvef, sliti og verkjum í liðamótum á meðan Nutrilenk Active er ætlað þeim sem þjást af minnkuðum lið- vökva sem lýsir sér oftast í stirð- leika og sársauka í kringum liða- mót. Nutrilenk Gelið er kælandi og bólgueyðandi og þar sem það inniheldur chondroitin eins og Nutrilenk Gold þá hjálpar það til við að draga úr brjóskeyðingu og örvar brjóskmyndun. Gelið má bera beint á auma liði og vöðva. Frábær bætieFni Fyrir hlaupara og íþróttaFólk Artasan kynnir Góð vítamín- og bætiefni geta gagnast hlaupurum og öðru íþróttafólki. Við mikið líkamlegt álag geta verkir, stífleiki, harðsperrur og aumir vöðvar gert okkur lífið leitt. Artasan flytur inn og mælir með eftirfarandi bætiefnum sem geta gagnast þeim sem eru að æfa fyrir Reykjavíkurmaraþonið sem og öllu öðru íþrótta- og útivistarfólki. Sigurjón Sigurbjörnsson Kristbjörg Jónsdóttir Enski Boltinn Sérblað um enska boltann kemur út 13. ágúst Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa hafið samband við Jón Ívar Vilhelmsson sími/Tel: +354 512-5429 GsM/Mobile: +354 866-6748 jonivar@365.is Jóhann Waage sími/Tel: +354 512-5439 GsM/Mobile: +354 821-2278 johannwaage@365.is Ólafur H. Hákonarson sími/Tel: +354 512-5433 GsM/Mobile: +354 699-5900 olafurh@365.is 0 9 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 3 5 -1 F 4 C 1 A 3 5 -1 E 1 0 1 A 3 5 -1 C D 4 1 A 3 5 -1 B 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.