Fréttablaðið - 09.08.2016, Blaðsíða 19
Þ
eim fjölgar mjög,
tengil tvinnjeppum
bílaframleiðenda,
og nú er einn sá at-
hygliverðasti kom-
inn til landsins, þ.e.
Audi Q7 E-Tron. Þessi
bíll er risastór, enda vegur hann
2,3 tonn og eiga öflugar rafhlöð-
ur bílsins stóran þátt í því. Þess-
ar rafhlöður duga hins vegar
þessum bíl fyrstu 56 kílómetr-
ana í akstri eingöngu á rafmagni
og því ættu eigendur bílsins ekki
að sjást mjög mikið á eldsneyt-
isstöðvum landsins, svo fremi
sem þeir aki að mestu um höfuð-
borgar svæðið. Mikil eftirspurn
hefur verið eftir tengiltvinn-
jeppum á Íslandi síðan þeir fóru
að bjóðast og vel hefur einnig
selst af slíkum jeppum frá Volvo,
Porsche, Mercedes Benz og BMW
og ekki vantar eftirspurnina eftir
Audi Q7 E-Tron, en hann hefur
verið pantaður af hátt í þrjátíu
kaupendum sem hvorki hafa séð
bílinn, nema á myndum, né próf-
að hann í akstri. Mikil eftirspurn
eftir tengiltvinnjeppum skýrist
líklega að hluta til af því að þeir
bera engin vörugjöld sökum lítill-
ar mengunar og eyðslu þeirra og
eru því á afar hagstæðu verði.
Gott verð á tengiltvinnjeppum
Það merkilega við flesta tengil-
tvinnjeppa þá sem komnir eru
hingað til lands er að þeir eru
annaðhvort sáralítið dýrari eða
hreinlega ekki dýrari en dísil-
útfærslur sömu jeppa. Það á við
Audi Q7 E-Tron sem á verðlista-
verði er örlítið dýrari en dísilút-
færslan, en er hins vegar betur
búinn og ef þeim búnaði væri
bætt við dísilútgáfuna, yrði sá
dýrari. Verðið á Audi Q7 E-Tron
er 11.990.000 kr. og verður það að
teljast hóflegt fyrir svo magnað-
an bíl sem er svo miklu öflugri en
dísilútgáfan og auk þess talsvert
eyðslugrennri.
Magnað ökutæki sem eyðir engu
Bílablað Fréttablaðsins fékk að
prófa fyrsta og eina eintakið sem
komið er til landsins og reynd-
ist það mikil upplifun. Bíllinn er
allt í senn einn þægilegasti bíll
sem ökumaður hefur reynt, með
allra öflugustu jeppum, frábær-
lega búinn, að ógleymdri fárán-
lega lítilli eyðslu hans. Meira að
segja í lengri akstri utan borg-
armarkanna, þar sem rafmagns-
hleðsla bílsins þvarr, reyndist
bíllinn eyða um 6 lítrum og er
það nær óhugsandi fyrir svo stór-
an og þungan bíl. Ekki á nokkurn
hátt fannst fyrir þyngd bílsins
og er hann eins og nettur fólks-
bíll í akstri og svo undarlega ljúf-
ur og þægilegur. Ekki þarf svo
að spyrja að fráganginum í inn-
réttingu bíls frá Audi, það fer um
flesta sæluhrollur að opna dyrnar
á Q7 E-Tron.
Eru þeir að taka yfir söluna hér?
Það er margt sem bendir til þess
að með auknu framboði tengil-
tvinnjeppa muni þeir að miklu
leyti taka yfir sölu jeppa á Ís-
landi, en það helgast þá af góðu
verði þeirra í samanburði við
jeppa með brunavélum eingöngu,
sem falla í hærri vörugjalds-
flokka. Undantekningin gæti þó
verið í formi Land Cruiser jepp-
ans frá Toyota sem ávallt heldur
vinsældum sínum. Hjá Brimborg,
þar sem seldur er Volvo XC90
T8 jeppinn, sem einnig er tengil-
tvinnbíll líkt og Audi Q7 E-Tron,
fengust þær upplýsingar að mikil
eftirspurn sé eftir tengiltvinn-
bílaútgáfu jeppans og sömu sögu
er að segja um sölu Porsche Cay-
enne jeppans frá Bílabúð Benna.
Áframhaldandi velgengni þess-
ara tengiltvinnjeppa veltur þó á
því að framlenging verði á núver-
andi ívilnunum fyrir umhverfis-
væna bíla á Íslandi.
Taka TengilTvinnjeppar yfir söluna?
Vel á þriðja tug keyptu tengiltvinnjeppann Audi Q7 E-Tron hérlendis án þess að sjá hann eða prófa.
Hann er fyrsti hybrid-jeppinn með dísilvél, er 373 hestöfl, eyðir 1,9 lítrum og er með 1.410 km drægi.
BETRA START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá:
Bílar
0
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
3
5
-2
4
3
C
1
A
3
5
-2
3
0
0
1
A
3
5
-2
1
C
4
1
A
3
5
-2
0
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K