Fréttablaðið - 09.08.2016, Síða 20

Fréttablaðið - 09.08.2016, Síða 20
Bílasala á Íslandi hefur verið með miklum ágætum það sem af er ári og í lok júlí hafa verið seldir 14.832 bílar. Af þeim hefur BL selt 3.937 bíla, en Hekla kemur næst þar á eftir með 2.635 selda bíla. Í þriðja sæti rétt á eftir er svo Toyota með 2.529 Toyota og Lexus bíla, en Toyota er sem fyrr lang­ söluhæst einstakra bílamerkja. Fjórða söluhæsta umboðið er Brimborg með 1.807 selda bíla og í því fimmta er Askja með 1.459 bíla. Bílabúð Benna er með 838 selda bíla, Bernhard 736 bíla, Suzuki 637 og aðrir innflytjendur með 254 selda bíla. Mesta aukningin í seldum bílum samanborið við sama tímabil í fyrra er hjá öðrum innflytjendum, eða um 115%, og munar þar mestu um tilkomu nýs innflytjanda með Fiat og Chrysler bíla. Næstmesta aukn­ ingin er hjá Bernhard, eða 86%, og þriðja mest hjá BL, eða 68%. Í fjórða sæti kemur svo Toyota (40%), þá Brimborg (38%), svo Hekla (34%), Askja (21%), Bíla­ búð Benna (4%), en 9% minnk­ un hefur orðið í sölu milli ára hjá Suzuki. Ef einstaka bílgerðir sölu­ hæsta umboðsins, BL, eru skoð­ aðar er mest selt af Hyundai bílum, eða 1.145, og aukning­ in þar er 91%. Næst á eftir kemur Renault með 797 selda bíla og 45% aukningu. Þriðja söluhæsta merki BL er Nissan með 761 bíl (52% aukning), svo Dacia 541 (81%), þá Subaru með 286 (30%), Jaguar Land Rover 217 (44%), BMW 159 (134%) og Isuzu 31 (3%). Athygli vekur 134% aukning í sölu BMW bíla, sem og mikil aukning í sölu ódýrra Dacia bíla uppá 81%. 14.832 bílar seldir BL með 3.937 bíla, Hekla 2.635 bíla og Toyota 2.529. Bristol Cars er 71 árs lúxusbíla­ framleiðandi sem legið hefur í láginni og hefur ekki framleitt einn einasta bíl í 10 ár, en árið 2011 urðu eigendaskipti á fyrir­ tækinu. Allar götur síðan hefur verið unnið að smíði þessa bíls, Bristol Bullett. Hann er eins og fyrri bílar Bristol Cars, alger lúxusbíll með krafta í kögglum og ætlaður fjáðum kaupendum. Þessi blæjubíll er með 4,8 lítra V8 vél frá BMW sem er 370 hest­ öfl og tengd við annaðhvort bein­ skiptinu eða sjálfskiptingu sem báðar eru einnig frá BMW. Bíll­ inn er aðeins 3,8 sekúndur í 100 km hraða, enda vegur hann að­ eins 1.100 kíló. Hámarkshraðinn er takmarkaður við 250 km/klst. Yfirbygging bílsins er að stórum hluta úr koltrefjum og innrétt­ ingin er afar ríkuleg, með púss­ uðu krómi, viðarleggingum og koltrefjaflötum og sætin eru úr hágæðaleðri. Eins og margur blæjubíllinn er hann aðeins ætlaður fyrir tvo farþega. Bristol Cars ætlar að setja þennan fríða bíl á markað á næstu mánuðum og það mun gleðja margan áhugamanninn um breska sportbíla fortíðar­ innar. Eins og áður hefur komið fram er Bristol Bullett ætlað­ ur þeim efnameiri sem punga verða út 39 milljónum króna fyrir eintak af bílnum. Bílar Bristol Cars hafa ávallt verið handsmíðaðir og það á einn­ ig við um þennan bíl, en Bristol Cars hefur aldrei smíðað fleiri en 200 bíla á ári. Svo vel eru þessir bílar Bristol Cars smíð­ aðir að af öllum þeim bílum sem fyrirtækið hefur smíðað í 71 árs sögu þess eru 70% þeirra ennþá á götunum. bristol bullett er bresk fegurð Handsmíðaður og kostar 39 milljónir króna. Bristol Bullett. Vel gengur hjá franska bílaframleiðandanum Renault og skilaði fyrri helmingur ársins 41% meiri hagnaði en á sama tímabili í fyrra. Ekki verður það sama sagt um Volkswagen en 12% minni hagnaður var hjá þýska bílaframleiðandanum á öðrum ársfjórðungi sökum kostnaðar við dísilvélasvindlið. Renault hagnaðist alls um 210 milljarða króna og sölu­ andvirði bíla þess jókst um 13,5% á fyrstu 6 mánuðum ársins. Hagnað­ ur af sölu hækkaði einnig umtalsvert, eða frá 4,9% í 6,1%. Carlos Ghosn, forstjóri Renault, segir að þennan góða hagnað megi þakka nýjum bíl­ gerðum Renault. Á þessu ári kynnir Renault 10 nýja bíla, hvort sem þeir eru nýjar kynslóðir eldri bíla eða glænýir bílar. Það hjálpar verulega sölu á nýjum Renault bílum að 9,1% vöxtur hefur verið í sölu á nýjum bílum í Evrópu í ár og hefur Renault gert enn betur en það í álfunni. Ekki er sami vöxtur í sölu bíla Renault utan Evrópu og væntir Renault aðeins 1,7% söluaukningar þar á árinu. Renault selur 60% bíla sinna innan Evrópu. Hjá Volkswagen varð 110 milljarða hagnaður á öðrum ársfjórðungi ársins, en var 125 milljarðar í fyrra. Hagnaður af sölu féll úr 3,4% í 2,9%. Volkswagen bílamerkið á um helming af veltu Volks­ wagen bílafjölskyldunnar. Hjá Audi minnkaði hagnaður á fyrri helmingi ársins um 9,3% og tap varð af rekstri Bentley. Porsche jók hagnað sinn um 7,7%, Skoda um 31% og Seat um 132%. Volkswagen gerir ráð fyrir 5% söluminnkun í ár vegna dísilvélasvindlsins og erfiðleika í mörgum markaðssvæðum, svo sem í Bandaríkjunum, S­Ameríku og Rússlandi. Hagnaðaraukning Renault 41% en 12% niður hjá Volkswagen Renault og Volkswagen. Það er ekki fátítt meðal bílafram­ leiðenda að kaupa eintök af bestu bílum annarra bílaframleiðenda til að sjá hvernig þeir eru smíðaðir og læra af því. Það gerði einmitt Honda er það festi kaup á Porsche 911 GT3 bíl svo þeir gætu gert Acura NSX bíl sinn betur úr garði. Það skondna er að þeir hjá Porsche fundu út úr því, eftir miklum krókaleiðum, hver kaupandinn var og skildu eftir skilaboð undir húddi bílsins sem á stóð: „Gangi ykkur vel hjá Honda. Sjáumst hinum megin. Porsche.“ Erf­ itt er að rýna í hvað það þýðir hjá Porsche að sjást hinum megin og ef til vill meinar Porsche að fyrirtækin muni mætast á keppnis brautunum og þar eru bílar Porsche ávallt þeir sigurstranglegustu. Ljóst má þó vera að kaldhæðnin var í forgrunni í þessum skilaboðum og þau hafa eflaust komið starfmönnum Honda á óvart er þeir opnuðu húdd bílsins. Honda er að vinna að framleiðslu nýs Acura NSX (Acura er lúxusbílamerki Honda og bílar Acura eru aðallega seldir í Bandaríkjunum) í nýrri há­ tækniverksmiðju fyrirtækisins í Ohio í Bandaríkjunum og þar var með­ fylgjandi mynd tekin af bílnum sem Honda keypti af Porsche. Honda keypti Porsche 911 GT3 með skilaboðum frá Porsche Hyundai, eins og margur annar bílaframleiðandinn, hefur uppi mikil áform um smíði vetnisbíla. Hyundai er sem stendur með eina bílgerð til sölu sem knúin er áfram af vetni, eða Hyundai Tucson Fuel Cell. Allt frá því Hyundai kynnti vetnistilraunabílinn Intrado á bílasýningunni í Genf árið 2014, sem hér sést á mynd, hefur Hyundai greint nokkrum sinnum frá því að nýr vetnisbíll fyrirtækisins verði stærri bíll en Tuc­ son vetnisbíllinn og muni liggja á milli þess að teljast jeppi og jeppling­ ur. Í þessum nýja vetnisbíl Hyundai verður vetnisdrifrás sem krefst minna af platínu en í Tucson bílnum, hann verður með stærri rafhlöð­ ur og minni mótora. Bíllinn á að komast 600 kílómetra á fullri hleðslu vetnis og verða því mjög langdrægur. Hyundai stefnir að því að þessi bíll komi á markað árið 2018 og nefnir að það ár muni Hyundai nýta sér að vetrarólympíuleikarnir verði haldnir í Pyeongchang í S­Kóreu og að fyrirtækið ætli að kynna bílinn í tengslum við leikana. Nýr vetnisbíll Hyundai árið 2018 Hyundai Intrado. Porsche vinnur nú hörðum hönd­ um að þróun fyrsta hreinræktaða rafbíls síns, Mission E, og til þess þarf greinilega mikinn mann­ skap. Porsche hefur nú ráðið 1.400 nýja starfsmenn vegna hans. Upphaflega var meiningin að ráða 1.000 manns en nú hefur 400 verið bætt við. Þessi Mission E bíll á að keppa við Tesla Model S bílinn og sýnilegt er að Porsche er mikil alvara í samkeppninni. Um 1.200 þessara nýju starfa eru í Zuffenhausen í nágrenni Stuttgart, þar sem bíllinn verð­ ur smíðaður. Porsche segir að mikil samkeppni sé um hæft fólk og mikil barátta um besta fólkið á milli bílaframleiðenda. Mission E bíllinn verður, eins og margur annar bíllinn frá Porsche, mikið kraftatröll enda er hann 600 hest­ öfl og tekur sprettinn í 100 km hraða á 3,5 sekúndum og bætir með því tíma Porsche 911 Carr­ era um 0,7 sekúndur þó svo hann sé ekki eins snöggur og Porsche 911 Turbo S. Mission E á að kom­ ast 500 km á hverri hleðslu. Porsche hefur fjölgað starfs­ fólki sínu um helming frá árinu 2010, en þar vinna nú 26.200 manns. Er það ekki síst vegna mikillar eftirspurnar eftir Porsc­ he Macan og Cayenne bílun­ um, sem renna út eins og heitar lummur. Porsche fær um 140.000 umsóknir á hverju ári og starfs­ mannavelta Porsche er aðeins 0,6% á ári og því er augljóst að það er gott að vinna hjá fyrir­ tækinu. Porsche hyggst fjárfesta fyrir 134 milljarða króna vegna þróunar Mission E bílsins og er það mikið fé fyrir ekki stærra fyrirtæki. Með því sést hve mikla áherslu Porsche og móður­ fyrirtæki þess, Volks wagen, ætla að leggja á smíði rafmagnsbíla í framtíðinni. Porsche Mission e skaPar 1.400 ný störf Porsche Mission E. bílar Fréttablaðið 2 9. ágúst 2016 ÞRIÐJUDAGUR 0 9 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 3 5 -1 F 4 C 1 A 3 5 -1 E 1 0 1 A 3 5 -1 C D 4 1 A 3 5 -1 B 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.