Fréttablaðið - 09.08.2016, Blaðsíða 24
Ávalar og bognar
línur en Subaru-svipurinn leynir sér
ekki
InnréttIngIn
er mjög kunnugleg Subaru-
eigendum og fremur látlaus
FarangurSrýmIð
er 522 lítrar, meira en í Ford mondeo
Subaru Levorg
Finnur thorlacius reynsluakstur
Þ
að var með örlitlum
beyg sem greinar-
ritari settist upp í
Subaru Levorg þar
sem hann er ein-
ungis í boði með lít-
illi 1,5 lítra DIT vél
og lék því grunur á að bíllinn
væri vélarvana. Sá ótti reyndist
óþarfur því þessi vél er hreint
mögnuð og skilar 170 hestöfl-
um til allra hjólanna. Að sjálf-
sögðu er þessi vél af boxer-gerð
eins og allar vélar frá Subaru,
þ.e. með þverstæða strokka
sem færir þyngdarpunkt bíls-
ins niður og bætir með því
aksturseiginleika hans. Að auki
reyndist þessi vél ári sparsöm
og eftir langa sveitarferð upp
í Hreppa og víðar var meira
en helmingur eftir á tankin-
um. Þessi litla vél er jafn öflug
og 2,5 lítra vélar Subaru sem
finna mátti í ýmsum bílgerðum
framleiðandans. Subaru Levorg
er kærkomin gerð Subaru-bíla
eftir að Legacy-bíllinn var ekki
lengur í boði hérlendis, en þessi
bíll er ámóta að stærð og með
álíka flutningsrými, sem er svo
ríflegt að þessi bíll er kjörinn
ferðabíll. Ekki reyndist mikið
mál að ferðast með heilt fjalla-
hjól aftur í honum, án þess að
taka það neitt í sundur.
Styttri en legacy en sami undirvagn
Margt gott er að segja um þennan
bíl, nema þá helst nafnið. Levorg
er ekki beint þjált nafn og þýðir
hreinlega ekki neitt. Stafirnir í
nafninu eru fengnir frá forveran-
um Legacy, og orðunum Revolu-
tion og Touring, en síðasta orðið
lýsir einmitt bílum með þetta lag.
Nokkuð langsótt og ef til vill lýs-
andi fyrir oft á tíðum misheppn-
uð og illskiljanleg heiti japanskra
bíla. Levorg var fyrst kynntur á
bílasýningunni í Tókýó árið 2013
en kom á markað í Japan árinu
síðar og í Evrópu í fyrra. Hann
er með sama undirvagni og Impr-
eza- og Legacy-bílarnir en Leg-
acy er enn í boði á ýmsum mörk-
uðum. Levorg er einum 15 cm
styttri en síðasta gerð Legacy en
Subaru-menn segja að hann bjóði
samt upp á meira pláss og það
skal staðfest að bíllinn er mjög
rúmur fyrir alla farþega og nóg
pláss eftir fyrir farangur.
mikið rými og látlaus innrétting
Levorg er fremur fallega teikn-
aður bíll með ávalar og bognar
línur en nær þó ekki að vera mjög
sportlegur. Innanrými bílsins er
smekklegt, án mikilla stæla og
er það skiljanlegt, en þar er ekki
mikill íburður. Innréttingin er
mjög kunnugleg Subaru-bíleig-
endum og ekki hafa orðið miklar
framfarir í framsetningu hennar,
en þó er efnisnotkunin örlítið
ríkulegri og stýrið flott og með
þægilegum hnöppum. Framsætin
eru með þeim þægilegri, halda
vel utan um ökumann og í þeim
þreytist hann lítið. Höfuðrými
aftur í leyfir hávaxið fólk og fóta-
rými er fínt. Skottið er 522 lítra,
KærKominn arftaKi Legacy
Arftaki Legacy, Subaru Levorg, er 15 cm styttri en með meira rými. Hann er með smárri 1,5 lítra en
feikiöflugri 170 hestafla vél og einni bestu reimasjálfskiptingu sem um getur. Er einkar góður akstursbíll.
BíLar
Fréttablaðið
6 9. ágúst 2016 ÞRIÐJUDAGUR
0
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
3
4
-F
7
C
C
1
A
3
4
-F
6
9
0
1
A
3
4
-F
5
5
4
1
A
3
4
-F
4
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K