Fréttablaðið - 09.08.2016, Blaðsíða 38
Það er gróska í
djassinum í dag og
gaman að bera Það saman
við Þegar ég gerðist
atvinnu maður í Þessu
fyrir Þrjátíu árum.
miðvikudagur 10. ágúst
17.00 Jazzganga
19.00 Norðurljós
Tómas R. Einarsson. Ný latintónlist.
20.00 Eldborg
Snarky Puppy. Tvöfaldir Grammy-
verðlaunahafar.
22.00 Budvarsvið
Jam Session. Aðgangur ókeypis.
fimmtudagur 11. ágúst
17.00 Budvar Happy Hour
Anna Sóley Ásmundardóttir
19.00 Silfurberg
Andrés Þór.
20.00 Norðurljós
Pascal Schumacher Left Right Tokyo.
21.20 Silfurberg
Einar Scheving Kvartett.
22.20 Budvarsvið
Djammsession.
föstudagur 12. ágúst
17.00 Budvarsvið
Happy Hour Sara Blandon.
19.00 Silfurberg
Sunna Gunnlaugs & Julia Hülsmann.
20.00 Norðurljós
Gilad Hekselman Trio (ISR/USA).
21.20 Silfurberg
John Hollenbeck & Stórsveit Rvk.
22.20 Norðurljós
Sigurður Rögnvaldss. – Myrkvi Skógur.
23.05 Budvarsvið
Djammsession.
Laugardagur 13. ágúst
11.00 Kaldalón
Masterklass með Gilad Hekselman.
12.00 Kaldalón
Masterklass með John Hollenbeck.
15.00 Budvarsvið
Fjölskyldujazz með Gretu Salóme.
16.00 Budvarsvið
Carioca.
15.00-17.00 Jómfrúin
Sigurður Flosason og gestir.
19.00 Silfurberg
Sigurður Flosason & Stefan Bauer.
20.00 Norðurljós
Bobo Stenson Trio.
21.20 Silfurberg
Annes.
22.20 Norðurljós
Anna Gréta & Håkon Broström.
23.05 Budvarsvið
Djammsession.
sunnudagur 14. ágúst
15.00 Norðurljós
Secret Swing Society –
útgáfutónleikar.
17.00 Óháði söfnuðurinn
Þakkargjörð.
19.00 Silfurberg
Ingi Bjarni Kvartett.
20.00 Harpa
Agnar Már Magnússon Trio –
útgáfutónleikar.
21.00 Harpa
Þorgrímur Jónsson Kvintett –
útgáfutónleikar.
jazzhátíð reykjavíkur 10. tiL 14. ágúst
Það er mikill gróandi í íslensku djasslífi um þessar mundir og tæpast hefur upphafsmenn Jazzhátíðar í Reykjavík órað fyrir þessari þróun.
En eins og síðustu ár hefst hátíðin
með jazzgöngu niður Laugaveginn
og að Hörpu og verður lagt af stað
frá versluninni Lucky Records við
Hlemm kl. 17 á morgun. Opn
unartónleikarnir verða svo með tíu
manna bandi Tómasar R. Einars
sonar þá um kvöldið.
RúRek
Tómas man vel þann tíma þegar
hátíðin var að stíga sín fyrstu skref
og segir að það hafi verið mikið frum
kvöðlastarf. „Það voru nú merkir
menn sem störtuðu þessu á sínum
tíma fyrir 27 árum. Ef ég man rétt var
dugnaðarforkurinn Ólafur Þórðar
son, Óli í Ríó eins og hann var kall
aður stundum, sem þá vann hjá Ríkis
útvarpinu fremstur í flokki. Þarna
kom líka að Jazzvakning með Vern
harð Linnet og fleiri góða félaga. En
fyrstu árin hét hátíðin RúRek m.a. út
af þessu starfi Óla Þórðar og í minn
ingunni kemur hann mjög sterkt inn.
En svo hafa mjög margir komið að
þessu í gegnum árin og gert vel.
Lengi vel var hátíðin vítt og breitt
um bæinn en síðustu árin hefur þetta
verið í Hörpu og það hefur gert sig
alveg ljómandi vel. Þetta eru um
þrjátíu tónleikar og viðburðir þarna
í það heila þannig að það er margt
í boði.“
Tíu manna band
Það er einvala lið tónlistarmanna
sem verður með Tómasi á opnunar
tónleikunum annað kvöld og Tómas
segir að þarna verði bæði gamlir og
nýir spilafélagar. „Af þeim sem hafa
verið áður með mér má nefna Sig
ríði Thorlacius söngkonu, Davíð Þór
Jónsson á píanó, Ómar Guðjónsson
á gítar, Samúel Jón Samúelsson á
guiro og básúnu, Sigtrygg Baldurs
son á kóngatrommur og bróður hans
Bógómil Font sem syngur í nokkrum
lögum og Einar Val Scheving á marg
víslegt slagverk. Svo koma þarna
spilafélagar sem hafa ekki verið áður
í mínum plötuverkefnum og þar eru
þau Rósa Guðrún Sveinsdóttir sem
bæði spilar á baritónsaxófón og
syngur, Snorri Sigurðarson á tromp
et og Kristófer Rodriguez Svönuson á
bongótrommur. Þetta er tíu manna
flokkur og það syngja nánast allir á
einhverjum stöðum og söngurinn er
í forgrunni.
Ekkert trommusett
Þetta er nú soldið sprottið upp úr
því að ég var mánuð á Kúbu í vetur
og fór þá í fyrsta sinn til Santiago de
Cuba sem er upprunastaður þessarar
tónlistar. Þarna var ég í þrjár vikur
og fór á tvenna til þrenna tónleika á
hverjum einasta degi. Ég hafði ekkert
annað að gera og byrjaði á að mæta
á tónleika eftir hádegi og var að fram
yfir miðnætti. Fór á um fimmtíu tón
leika en sá aldrei trommusett. Þarna
voru hins vegar kóngatrommur,
bongótrommur, timbales, bjöllur,
guiro og claves og þannig mætti
áfram telja en ekki sett. Ég sá ekki
trommusett fyrr en ég kom aftur til
Havana og fór á aðaldjassklúbbinn.
Þá ákvað ég það að í þessu verkefni
yrði ekki trommusett heldur bara
stök slagverkshljóðfæri þannig að
það eru fjórir á slagverk í þessu bandi
sem er dáldið grand og skemmtilegt.
Eins var það þannig með öll
þessi bönd í Santiago að söngurinn
er mjög framarlega. Það er mikið
spunnið og allar þær kúnstir. Ég
velti mikið fyrir mér hvernig ég gæti
upplifað eitthvað jafn skemmtilegt
í íslensku samhengi, því við höfum
aðrar hefðir, og valdi því kveðskap
inn dáldið með tilliti til þess að það
væru fleiri en einn söngvari sem
kæmu inn í hvert og eitt lag.“
Djassinn víðar
Á Jazzhátíð koma fram bæði inn
lendir og erlendir djassistar og
Tómas segir að það sé nú erfitt að
gera upp á milli allra þeirra spenn
andi viðburða sem verða á hátíðinni.
„Vandinn er að ég er búinn að vera
svo upptekinn við að horfa á naflann
á mér, leggja síðustu hönd á útsetn
ingar og verð því að játa þá synd að
ég er ekki alveg búinn að gera upp á
milli viðburða. En eftir tónleikana
mína þá fer ég að líta upp úr nafl
anum, horfa í kringum mig og hlusta
eins og vitlaus maður. Það er mikið
tilhlökkunarefni.
Það er gróska í djassinum í dag og
gaman að bera það saman við þegar
ég gerðist atvinnumaður í þessu fyrir
þrjátíu árum. Þá voru eiginlega telj
andi á fingrum annarrar handar þeir
sem voru í þessu meira eða minna
en í dag er örugglega hægt að marg
falda það með tíu. Það sem hefur
gerst er að djassinn er miklu víðar
í samfélaginu. Á bítlatímanum var
þetta bara eins og einhverjar gamlar
egypskar rúnir og bara fyrir einhverja
furðufugla. En nú er djassinn orðinn
almenningseign og það er frábært.“
Eftir tónleikana fer
ég að líta upp úr
naflanum og hlusta
jazzhátíð reykjavíkur hefst á morgun
með djassgöngu og tónleikum tómasar
r. einarssonar ásamt tíu manna bandi.
Tómas R. Einarsson er klár með kontrabassann fyrir Jazzhátíð Reykjavíkur sem hefst annað kvöld. FRéTTaBlaðið/ERNiR
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
9 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A g U R22 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð
menning
0
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
3
4
-F
2
D
C
1
A
3
4
-F
1
A
0
1
A
3
4
-F
0
6
4
1
A
3
4
-E
F
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K