Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.08.2016, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 09.08.2016, Qupperneq 38
Það er gróska í djassinum í dag og gaman að bera Það saman við Þegar ég gerðist atvinnu maður í Þessu fyrir Þrjátíu árum. miðvikudagur 10. ágúst 17.00 Jazzganga 19.00 Norðurljós Tómas R. Einarsson. Ný latintónlist. 20.00 Eldborg Snarky Puppy. Tvöfaldir Grammy- verðlaunahafar. 22.00 Budvarsvið Jam Session. Aðgangur ókeypis. fimmtudagur 11. ágúst 17.00 Budvar Happy Hour Anna Sóley Ásmundardóttir 19.00 Silfurberg Andrés Þór. 20.00 Norðurljós Pascal Schumacher Left Right Tokyo. 21.20 Silfurberg Einar Scheving Kvartett. 22.20 Budvarsvið Djammsession. föstudagur 12. ágúst 17.00 Budvarsvið Happy Hour Sara Blandon. 19.00 Silfurberg Sunna Gunnlaugs & Julia Hülsmann. 20.00 Norðurljós Gilad Hekselman Trio (ISR/USA). 21.20 Silfurberg John Hollenbeck & Stórsveit Rvk. 22.20 Norðurljós Sigurður Rögnvaldss. – Myrkvi Skógur. 23.05 Budvarsvið Djammsession. Laugardagur 13. ágúst 11.00 Kaldalón Masterklass með Gilad Hekselman. 12.00 Kaldalón Masterklass með John Hollenbeck. 15.00 Budvarsvið Fjölskyldujazz með Gretu Salóme. 16.00 Budvarsvið Carioca. 15.00-17.00 Jómfrúin Sigurður Flosason og gestir. 19.00 Silfurberg Sigurður Flosason & Stefan Bauer. 20.00 Norðurljós Bobo Stenson Trio. 21.20 Silfurberg Annes. 22.20 Norðurljós Anna Gréta & Håkon Broström. 23.05 Budvarsvið Djammsession. sunnudagur 14. ágúst 15.00 Norðurljós Secret Swing Society – útgáfutónleikar. 17.00 Óháði söfnuðurinn Þakkargjörð. 19.00 Silfurberg Ingi Bjarni Kvartett. 20.00 Harpa Agnar Már Magnússon Trio – útgáfutónleikar. 21.00 Harpa Þorgrímur Jónsson Kvintett – útgáfutónleikar. jazzhátíð reykjavíkur 10. tiL 14. ágúst Það er mikill gróandi í íslensku djasslífi um þessar mundir og tæp­ast hefur upphafsmenn Jazzhátíðar í Reykjavík órað fyrir þessari þróun. En eins og síðustu ár hefst hátíðin með jazzgöngu niður Laugaveginn og að Hörpu og verður lagt af stað frá versluninni Lucky Records við Hlemm kl. 17 á morgun. Opn­ unartónleikarnir verða svo með tíu manna bandi Tómasar R. Einars­ sonar þá um kvöldið. RúRek Tómas man vel þann tíma þegar hátíðin var að stíga sín fyrstu skref og segir að það hafi verið mikið frum­ kvöðlastarf. „Það voru nú merkir menn sem störtuðu þessu á sínum tíma fyrir 27 árum. Ef ég man rétt var dugnaðarforkurinn Ólafur Þórðar­ son, Óli í Ríó eins og hann var kall­ aður stundum, sem þá vann hjá Ríkis­ útvarpinu fremstur í flokki. Þarna kom líka að Jazzvakning með Vern­ harð Linnet og fleiri góða félaga. En fyrstu árin hét hátíðin RúRek m.a. út af þessu starfi Óla Þórðar og í minn­ ingunni kemur hann mjög sterkt inn. En svo hafa mjög margir komið að þessu í gegnum árin og gert vel. Lengi vel var hátíðin vítt og breitt um bæinn en síðustu árin hefur þetta verið í Hörpu og það hefur gert sig alveg ljómandi vel. Þetta eru um þrjátíu tónleikar og viðburðir þarna í það heila þannig að það er margt í boði.“ Tíu manna band Það er einvala lið tónlistarmanna sem verður með Tómasi á opnunar­ tónleikunum annað kvöld og Tómas segir að þarna verði bæði gamlir og nýir spilafélagar. „Af þeim sem hafa verið áður með mér má nefna Sig­ ríði Thorlacius söngkonu, Davíð Þór Jónsson á píanó, Ómar Guðjónsson á gítar, Samúel Jón Samúelsson á guiro og básúnu, Sigtrygg Baldurs­ son á kóngatrommur og bróður hans Bógómil Font sem syngur í nokkrum lögum og Einar Val Scheving á marg­ víslegt slagverk. Svo koma þarna spilafélagar sem hafa ekki verið áður í mínum plötuverkefnum og þar eru þau Rósa Guðrún Sveinsdóttir sem bæði spilar á baritónsaxófón og syngur, Snorri Sigurðarson á tromp­ et og Kristófer Rodriguez Svönuson á bongótrommur. Þetta er tíu manna flokkur og það syngja nánast allir á einhverjum stöðum og söngurinn er í forgrunni. Ekkert trommusett Þetta er nú soldið sprottið upp úr því að ég var mánuð á Kúbu í vetur og fór þá í fyrsta sinn til Santiago de Cuba sem er upprunastaður þessarar tónlistar. Þarna var ég í þrjár vikur og fór á tvenna til þrenna tónleika á hverjum einasta degi. Ég hafði ekkert annað að gera og byrjaði á að mæta á tónleika eftir hádegi og var að fram yfir miðnætti. Fór á um fimmtíu tón­ leika en sá aldrei trommusett. Þarna voru hins vegar kóngatrommur, bongótrommur, timbales, bjöllur, guiro og claves og þannig mætti áfram telja en ekki sett. Ég sá ekki trommusett fyrr en ég kom aftur til Havana og fór á aðaldjassklúbbinn. Þá ákvað ég það að í þessu verkefni yrði ekki trommusett heldur bara stök slagverkshljóðfæri þannig að það eru fjórir á slagverk í þessu bandi sem er dáldið grand og skemmtilegt. Eins var það þannig með öll þessi bönd í Santiago að söngurinn er mjög framarlega. Það er mikið spunnið og allar þær kúnstir. Ég velti mikið fyrir mér hvernig ég gæti upplifað eitthvað jafn skemmtilegt í íslensku samhengi, því við höfum aðrar hefðir, og valdi því kveðskap­ inn dáldið með tilliti til þess að það væru fleiri en einn söngvari sem kæmu inn í hvert og eitt lag.“ Djassinn víðar Á Jazzhátíð koma fram bæði inn­ lendir og erlendir djassistar og Tómas segir að það sé nú erfitt að gera upp á milli allra þeirra spenn­ andi viðburða sem verða á hátíðinni. „Vandinn er að ég er búinn að vera svo upptekinn við að horfa á naflann á mér, leggja síðustu hönd á útsetn­ ingar og verð því að játa þá synd að ég er ekki alveg búinn að gera upp á milli viðburða. En eftir tónleikana mína þá fer ég að líta upp úr nafl­ anum, horfa í kringum mig og hlusta eins og vitlaus maður. Það er mikið tilhlökkunarefni. Það er gróska í djassinum í dag og gaman að bera það saman við þegar ég gerðist atvinnumaður í þessu fyrir þrjátíu árum. Þá voru eiginlega telj­ andi á fingrum annarrar handar þeir sem voru í þessu meira eða minna en í dag er örugglega hægt að marg­ falda það með tíu. Það sem hefur gerst er að djassinn er miklu víðar í samfélaginu. Á bítlatímanum var þetta bara eins og einhverjar gamlar egypskar rúnir og bara fyrir einhverja furðufugla. En nú er djassinn orðinn almenningseign og það er frábært.“ Eftir tónleikana fer ég að líta upp úr naflanum og hlusta jazzhátíð reykjavíkur hefst á morgun með djassgöngu og tónleikum tómasar r. einarssonar ásamt tíu manna bandi. Tómas R. Einarsson er klár með kontrabassann fyrir Jazzhátíð Reykjavíkur sem hefst annað kvöld. FRéTTaBlaðið/ERNiR Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 9 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A g U R22 M e n n I n g ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð menning 0 9 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 3 4 -F 2 D C 1 A 3 4 -F 1 A 0 1 A 3 4 -F 0 6 4 1 A 3 4 -E F 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.