Fréttablaðið - 09.08.2016, Síða 40

Fréttablaðið - 09.08.2016, Síða 40
Hvað? Hvenær? Hvar? Þriðjudagur hvar@frettabladid.is 9. ágúst 2016 Tónlist Hvað? Reykjavík Classics Hvenær? 12.30 Hvar? Eldborgarsalur Hörpu Viðburður sérstaklega ætlaður túristum með dálæti á klassískri tónlist. Þarna spila færustu hljóð- færaleikarar landsins meistara- verk tónlistarsögunnar og standa hverjir tónleikar yfir í hálftíma án hlés. Miðaverð er 3.500 krónur og hverjum miða fylgir tíu prósenta afsláttur af hádegismat í veitinga- stöðum Hörpunnar. Hvað? Vegir ástarinnar − Les chemins de l’amour Hvenær? 20.30 Hvar? Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Sópraninn Hrafnhildur Árna- dóttir Hafstað og píanóleikarinn Ingileif Bryndís Þórsdóttir leika á síðustu tónleikum sumarsins í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Á efnisskránni eru ástríðufull, einlæg og seiðandi sönglög eftir Richard Strauss, Francis Poulenc, Erik Satie, Gabriel Fauré og Rey- naldo Hahn. Hvað? Markus Eriksson kvartett Hvenær? 20.30 Hvar? Kex hostel Kvartett sænska gítarleikarans Markus Eriksson kemur fram á Kex hosteli í kvöld. Með Markus leika þeir Hjörtur Stephensen á gítar, Birgir Steinn Theódórsson á kontrabassa og Óskar Kjartansson á trommur. Leikin verður frum- samin tónlist í bland við þekkta standarda. Markus gaf nýverið út plötuna Två komma null og hefur hún fengið góðar viðtökur. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir. Hvað? John Hollenbeck, Skúli Sverris- son & Hilmar Jensson Hvenær? 21.00 Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2 Tónleikar með bandaríska tón- skáldinu og slagverksmanninum John Hollenbeck, tónskáldinu og bassaleikaranum Skúla Sverrissyni og tónskáldinu og gítarleikaranum Hilmari Jenssyni. Rætur Hollen- becks liggja í djassi, heimstónlist og skrifaðri nútímatónlist. Hann hefur hlotið fjórar tilnefningar til Grammy-verðlauna og starfað með mörgum helstu stjörnum spuna- geirans og tónlistarmönnum á borð við Bob Brookmeyer, Fred Hersch og Tony Malaby. Miðaverð er 2.000 krónur. Uppákomur Hvað? Buffy & Angel á Gauknum: þættir 14 Hvenær? 19.30 Hvar? Gaukurinn Horft verður á þætti númer fjórtán úr Buffy og Angel. Texti á ensku og allir velkomnir. Hvað? Furðukvöld og barhangs: Icecon! Hvað er Icecon? Hvers vegna Icecon? Hvenær? 20.00 Hvar? Stúdentakjallarinn, Háskólatorgi Skipulagshópur Icecon: Furðu- sagnahátíðar á Íslandi efnir til óformlegrar kynningar á hátíð- inni, ræðir um hvað hún snýst og hvers vegna hún er haldin. Einnig verður bryddað upp á almennum umræðum um furðumenningu. Tilboð á barnum og allir vel- komnir. Hátíðin verður haldin 28. til 30. október næstkomandi. Hvað? Kertafleyting Hvenær? 22.00 Hvar? Við Minjasafnstjörnina á Akureyri Kertafleyting við Minjasafns- tjörnina á Akureyri til minningar um þá sem fórust þegar Bandarík- in vörpuðu kjarnorkusprengjum á Hiroshima og Nagasaki árið 1945. Jóhann Ásmundsson verður með hugvekju og kerti verða á staðnum. Hvað? Möntrukvöld með Hugrúnu Fjólu Sukhpreet Kaur Hvenær? 20.30 Hvar? Jógasetrið, Skipholti 50c Söngkonan, lagasmiðurinn og kundalinijógakennarinn Hug- rún Fjóla Sukhpreet Kaur leiðir möntrusöng í Jógasetrinu í kvöld. Miðaverð er 2.000 krónur. Listamannaspjall Hvað? Litlir heimar / Small Worlds Hvenær? 17.00 Hvar? Herðubreið, Skaftfelli Listamannaspjall og opnar umræður um áhrif ferðamanna- straumsins á Seyðisfjörð. Jessica Auer, gestalistamaður Skaftfells, deilir myndrænni rannsókn sinni á áhrifum ferðaþjónustunnar víðs- vegar um heiminn og fjallar um hvernig sjálfsmynd staðanna hefur breyst með auknum straumi ferða- manna. Í kjölfar kynningarinnar verður gestum boðið til umræðu um það hvernig Seyðfirðingar geta haldið áfram að byggja upp ferða- þjónustuna í bænum en á sama tíma varðveitt og virt samfélagið og menningu þess. Dans Hvað? Dans í dimmu #46 Hvenær? 18.50 Hvar? Dansverkstæðið, Skúlagötu 30 Klukkutími þar sem dansað er í dimmu. Tíminn kostar 1.000 krónur en einnig er hægt að kaupa fimm skipta kort á 3.000 krónur. Fyrirlestrar Hvað? Loftslagsbreytingar: Hvað þarf að gera og af hverju erum við ekki að því núna? Hvenær? 20.00 Hvar? Suðurgata 10 Í maí síðastliðnum kom saman hópur fólks í Reykjavík til að ræða hvaða breytingar þyrftu að eiga sér stað á sviði efnahags, samfélags, alþjóðasamstarfs og lýðræðis til þess að unnt væri að berjast gegn loftslagsbreytingum og takast á við afleiðingar þeirra á sama tíma. Efni fyrirlestursins styðst við þær umræður sem áttu sér stað á fundinum og dregur fram þau leiðarstef sem fundar- menn töldu að vænlegt væri að fylgja. Ætlunin er að þróa áfram þessar hugmyndir með því að kafa dýpra í þýðingu þeirra, innri mótsagnir og nauðsynlegar fórnir. Erfiðasta spurningin er þó hvort almenningur og fjöldahreyfingar hafi yfirhöfuð vald til að bregðast við. Umsjón hefur Finnur Guð- mundarson Olguson og eru allir velkomnir á fyrirlesturinn. Hvað? Veganismi og kostir hans fyrir dýrin, heilsuna og jörðina: Tegunda- hyggja og löglegt ofbeldi á dýrum Hvenær? 17.30 Hvar? Suðurgata 10 Róttæki sumarháskólinn stendur fyrir fyrirlestri þar sem rædd verða rök fyrir veganisma, dýraréttind- um og frelsun dýra. Fjallað verður um aktívisma og hvað er hægt að gera til þess að tryggja dýrum rétt til lífs og frelsis. Einnig verða áhrif kjötræktunar á umhverfið og heils- una rædd og fjallað um þjáningu dýra og dýradráp út frá siðferði- legu sjónarmiði. Sýningar Hvað? Íslenska teiknibókin Hvenær? 10.00 Hvar? Flói, Hörpu Íslenska teiknibókin er handrit í vörslu Stofnunar Árna Magnús- sonar í íslenskum fræðum í Reykjavík. Teiknibókin er einstæð meðal íslenskra miðaldahandrita og ein af fáum fyrirmyndabókum sem varðveist hafa í Vestur-Evr- ópu. Miða á sýninguna er hægt að nálgast á harpa.is og kosta þeir 1.500 kr. Hvað? Þögul leiftur Hvenær? 11.00 Hvar? Esja, Hörpu Þögul leiftur er ljósmyndasýning Vesturfarasetursins en hún var opnuð 13. mars síðastliðinn. Ljósmyndasýningin var þó fyrst opnuð á Hofsósi árið 2003 og er eftir hinn þekkta sagn- og ættfræðing Nelson Gerrard. Á sýningunni eru nærri 400 ljós- myndir af íslenskum landnemum, en sýningin veitir innsýn í andlits- ljósmyndun vestanhafs á tímum vesturferða á árunum 1870 til 1910. Miða er hægt að nálgast á harpa.is og kosta þeir 1.500 kr. Hvað? Bowie – The Sessions Hvenær? 11.00 Hvar? Esja, Hörpu Ljósmyndasýningin Bowie – The Sessions eftir hinn heims- fræga Gavin Evans er nú opin í sýningarsal Hörpu. Sýningin er opin á hverjum degi frá kl. 11.00 til 18.00. Gavin Evans hefur einstakt auga fyrir andlitum. Hann hefur myndað stjörnur á borð við Juli- ette Binoche, Daniel Craig, Dusty Springfield, Iggy Pop, Björk Guð- mundsdóttur og Nick Cave. Miða á sýninguna er hægt að nálgast á harpa.is og kosta þeir 1.500 krónur. Hvað? How to become Icelandic in 60 minutes Hvenær? 19.00 Hvar? Kaldalón, Hörpu Leiksýning sem sýnd er á ensku, samin af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrt af Sigurjóni Sigur- jónssyni. Leikarar eru Karl Ágúst Úlfsson og Örn Árnason. Sýningin er sambland af söguleikhúsi og uppistandi þar sem reynt verður að kenna þeim sem sýninguna sækja að verða Íslendingar. Þetta er sprenghlægileg klukkustundar- löng sýning sem er ætluð þeim sem vilja læra hvað það er að vera Íslendingur. Líkt og vikulega fer fram djasskvöld á Kex hosteli. FréttabLaðið/SteFánSíðustu sumartónleikarnir fara fram í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld. 9 . á g ú S T 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A g U R24 M e n n I n g ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð x FPO FRÁ MANNVERUNUM SEM GERÐU AULINN ÉG Sýningartímar á eMiði.is, miði.is og smarabio.is FORSALA HAFIN TURANDOT Í beinni 15. september í Háskólabíói ÞRIÐJUDAGST ILBOÐ ÞRIÐJU DAGST ILBOÐ ÞRIÐJU DAGST ILBOÐ ÞRIÐJU DAGST ILBOÐ ÞRIÐJU DAGST ILBOÐ LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 4, 6 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 3D ÍSL.TAL 3:30 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ENS.TAL 3:50, 6, 8 BAD MOMS 5:40, 8, 10 JASON BOURNE 10:30 GHOSTBUSTERS 8 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGS TILBOÐ Í DAG ÁLFABAKKA SUICIDE SQUAD 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40 SUICIDE SQUAD 2D KL. 2:50 - 6 - 8:40 - 10:40 SUICIDE SQUAD 2D VIP KL. 12 - 2:40 - 5:20 - 8 - 10:40 LEYNILÍF GÆLUDÝRA ÍSLTAL 3D KL. 12 - 2 - 4 LEYNILÍF GÆLUDÝRA ÍSLTAL 2D KL. 1 - 3:10 - 5:50 JASON BOURNE KL. 8 - 10:30 STAR TREK BEYOND 2D KL. 5:30 - 8 - 10:40 THE BFG KL. 12:30 - 3 - 5:30 - 8 LEITIN AÐ DÓRU ÍSLTAL 2D KL. 1 - 3:20 RIBBIT ÍSLTAL KL. 12:50 (400 KR.) KEFLAVÍK SUICIDE SQUAD 3D KL. 8 - 10:40 SUICIDE SQUAD 2D KL. 5:20 LEYNILÍF GÆLUDÝRA ÍSLTAL 3D KL. 5:50 JASON BOURNE KL. 8 STAR TREK BEYOND 2D KL. 10:40 AKUREYRI SUICIDE SQUAD 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40 STAR TREK BEYOND 3D KL. 8 NOW YOU SEE ME 2 KL. 10:40 LEITIN AÐ DÓRU ÍSLTAL 2D KL. 5:40 SUICIDE SQUAD 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40 SUICIDE SQUAD 2D KL. 6:20 - 9 NOW YOU SEE ME 2 KL. 8 THE LEGEND OF TARZAN 2D KL. 10:40 LEITIN AÐ DÓRU ÍSLTAL 2D KL. 5:40 KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI EGILSHÖLL SUICIDE SQUAD 3D KL. 5:20 - 8 - 10 SUICIDE SQUAD 2D KL. 7 - 10:40 JASON BOURNE KL. 5:20 - 8 - 10:30 LEYNILÍF GÆLUDÝRA ÍSLTAL 2D KL. 5:20 NOW YOU SEE ME 2 KL. 10:20 THE LEGEND OF TARZAN 2D KL. 8 83% ENTERTAINMENT WEEKLY  Hér er Bourne upp á sitt besta VARIETY  Stærsta mynd sumarsins er komin HITFIX  MORGUNBLAÐIÐ  7.1 ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð ÞRI ÐJU DAG STI LBO Ð 0 9 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 3 5 -0 6 9 C 1 A 3 5 -0 5 6 0 1 A 3 5 -0 4 2 4 1 A 3 5 -0 2 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.