Fréttablaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 4
Hlíðasmára 8 | Skipholti 70 | Spönginni 13
Sími 554 7200 | hafid@hafid.is |
Fiskréttur vikunnar
Ítalskur
Lúxusréttur
1.990 kr. kg.
19. – 23. septemberH
AFIÐ
FISKVERS
LU
N
10
ára
Það er ekki raun-
hæft að mæta á
hvern einasta fund. Þingið er
of kaótískt til þess
Helgi Hrafn
Gunnarsson Pírati.
2.806
atkvæðagreiðslur
Þar af óútskýrðar fjarvistir
17,0%
Konur
fjarverandi
17,9%
Karlar
fjarverandi
23,5%
n
Já
65,3%
n
Nei
5,7%
n
Situr hjá
8,0%
n
Fjarverandi
21,0%
Nafn Flokkur Fjarvistir
1 Willum Þór Þórsson B 49
2 Þorsteinn Sæmundsson B 74
3 Elsa Lára Arnardóttir * B 168
4 Haraldur Einarsson * B 193
5 Helgi Hrafn Gunnarsson * P 198
✿ Sjaldnast fjarverandi ✿ Meðalþingmaðurinn ✿ Fjarvist eftir kjördæmum
1
Nafn Flokkur Fjarvistir
1 Ögmundur Jónasson V 1.338
2 Össur Skarphéðinsson S 1.217
3 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson B 1.130
4 Helgi Hjörvar S 1.111
5 Katrín Júlíusdóttir S 1.048
✿ Oftast fjarverandi
1
Nafn Flokkur % Fjarvistir
1 Willum Þór Þórsson B 72,8% 180
2 Þorsteinn Sæmundsson B 60,1% 186
3 Steingrímur J. Sigfússon V 54,3% 685
4 Valgerður Gunnarsdóttir D 44,6% 433
5 Brynjar Níelsson D 41,6% 937
✿ Tilkynnir oftast fjarvist fyrirfram (hæsta hlutfall)
1
Nafn Flokkur % Fjarvistir
1 Frosti Sigurjónsson B 0% 350
2 Ásmundur Friðriksson D 1,2% 594
3 Ásta Guðrún Helgadóttir P 1,3% 150
4 Katrín Júlíusdóttir S 2,1% 1.071
5 Helgi Hjörvar S 2,8% 1.143
✿ Tilkynna sjaldnast fjarvist fyrirfram (lægsta hlutfall)
1
✿ Aldrei setið hjá
Bjarni Benediktsson D
Einar K. Guðfinnsson D
Haraldur Benediktsson D
Sigrún Magnúsdóttir B
Willum Þór Þórsson B
10 Alls tíu sinnum hefur það gerst að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa kosið gegn máli í lokaatkvæða-
greiðslu. Þau atkvæði eru frá Sigríði Á. Andersen
(5), Vilhjálmi Bjarnasyni (4) og Elínu Hirst.
n
Reykjavík norður
Tilkynnt fjarvist
3,3%
Óútskýrð fjarvist
17,6%
n
Reykavík suður
Tilkynnt fjarvist
2,1%
Óútskýrð fjarvist
19,7%
n
Suðvestur
Tilkynnt fjarvist
5,0%
Óútskýrð fjarvist
19,2%
n
Suðurkjördæmi
Tilkynnt fjarvist
4,2%
Óútskýrð fjarvist
15,9%
n
Norðvestur
Tilkynnt fjarvist
4,6%
Óútskýrð fjarvist
11,3%
n
Norðaustur
Tilkynnt fjarvist
5,2%
Óútskýrð fjarvist
15,8%
*Fjórir þingmenn voru með færri fjarvistir. Þrír þeirra (ÁstaH, ÓÞ, SÞÁ) voru varaþingmenn í upphafi en tóku sæti á miðju kjörtímabili. Sá síðasti er forseti Alþingis (EKG). Því eru þau ekki í samanburðinum.
99,2%
stjórnar-
þingmenn
við lokaaf-
greiðslu
mála segja
nær alltaf já.
Þorsteinn
Sæmundsson
(B) er samtímis
jákvæðasti
(2.562) og
neikvæðasti
(238) þing-
maðurinn.
ALÞINGI Það er undir hverjum og
einum þingmanni komið hvort
hann skráir fjarvist á þingfundi
þegar hann er fjarverandi. Í
atkvæðaskrá þingmanna kemur
fram hve oft þeir hafa sagt já, nei
eða setið hjá. Þá má einnig sjá hve
oft þeir eru ekki í þingsal þegar
atkvæðagreiðsla fer fram.
Það kallast fjarvist þegar þing-
maður lætur vita fyrir fram að
hann komist ekki á þingfund, til
að mynda þegar hann er erlendis,
veikur eða af öðrum ástæðum.
Þingmaður er hins vegar sagður
fjarverandi ef hann greiðir ekki
atkvæði þrátt fyrir að vera, sam-
kvæmt skráningu, á fundinum.
Willum Þór Þórsson er sá þing-
maður sem sjaldnast hefur verið
fjarverandi og með hæst hlutfall
tilkynntra fjarvista. „Ég hef gaman
af vinnunni minni og þegar það er
svo þá kemur þetta sjálfkrafa. Einu
skiptin sem ég er með fjarvist þá er
ég að sinna starfi mínu í Evrópu-
nefndum,“ segir Willum.
Ögmundur Jónasson hefur oft-
ast verið fjarverandi. „Fjarveru
mína má að stærstum hluta rekja
til funda í Íslandsdeild Evrópu-
ráðsþingsins,“ segir Ögmundur.
Hann bætir því við að honum
þyki viðvera í þinginu og atkvæða-
greiðslum ekki þurfa að endur-
spegla starf þingmannsins. Oft sé
ljóst fyrir fram hvernig atkvæða-
greiðslan muni fara. „Hvað mig
sjálfan varðar hefur alltaf verið
vitað um allar mínar ferðir, innan-
lands sem utan.“
„Það er ekki raunhæft að mæta
á hvern einasta fund. Þingið er
of kaótískt til þess,“ segir Helgi
Hrafn Gunnarsson Pírati. Hann
er sá stjórnarandstæðingur sem
sjaldnast hefur verið fjarverandi
og sá af sitjandi þingmönnum sem
situr oftast hjá. Helgi situr hjá í 38
prósent atkvæðagreiðslna. „Með
þriggja manna þingflokk er ekki
hægt að komast inn í öll mál. Ég
er til að mynda aðalmaður í einni
nefnd og hún fundar að jafnaði á
sama tíma og nefnd þar sem ég er
áheyrnarfulltrúi. Hjásetan er eðli-
legt einkenni lítilla flokka.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, fyrrverandi forsætisráðherra,
er sá stjórnarliði sem oftast hefur
verið fjarverandi á kjörtímabil-
inu eða alls 1.130 sinnum. Þar af
hefur hann verið fjarverandi í 501
atkvæðagreiðslu á þessu ári.
Karlarnir latari að mæta en konurnar
Úttekt Fréttablaðsins á atkvæðaskrá þingmanna sýnir að þingkonur eru oftar viðstaddar atkvæðagreiðslur heldur en starfsbræður þeirra
og landsbyggðarþingmenn mæta betur en þingmenn höfuðborgarsvæðisins. Mismunandi er hvort þingmenn skrái fjarvistir fyrirfram.
Jóhann
Óli Eiðsson
johannoli@frettabladid.is
1 9 . S e p T e M b e R 2 0 1 6 M Á N U D A G U R4 F R é T T I R ∙ F R é T T A b L A ð I ð
1
9
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
E
-F
8
4
C
1
A
9
E
-F
7
1
0
1
A
9
E
-F
5
D
4
1
A
9
E
-F
4
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K