Fréttablaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 19.09.2016, Blaðsíða 44
Lýsingarmarkaðurinn er að ganga í gegnum grundvallarbreytingar um allan heim þar sem tækniþró- un og nýjungar hafa aldrei verið hraðari. Notkunarmöguleikar ljósgjafa hafa á sama tíma aldrei verið fjölbreyttari og í dag er ljós nýtt við aðstæður sem ekki voru mögulegar fyrir nokkrum árum að sögn Arnars Þórs Hafþórsson- ar, rekstrarstjóra Jóhanns Ólafs- sonar & Co. „Alls staðar leikur lýs- ing stórt hlutverk og hefur áhrif á líðan okkar og öryggi. Röng lýs- ing getur ekki einungis haft slæm áhrif á skapsmuni fólks heldur líka á rafmagnsreikninginn! Á flestum stöðum er hægt að minnka orku- notkun um 40-50% og samt bæta lýsinguna. Það sem skiptir höfuð- máli er að hafa rétta lýsingu, á réttum stað og á réttum tíma.“ Því er ljóst að ýmislegt þarf að hafa í huga þegar kemur að vali á ljósgjöfum. „Valkostirn- ir, úrvalið og mögu- leikarnir hafa aldr- ei verið meiri og þá skiptir miklu máli að huga vel að þeim gæðum, ábyrgð, verði og ljósgæðum sem krafist er. Þar kemur þekking, reynsla og þjónusta starfsmanna Jóhanns Ólafssonar & Co. og endursöluaðila þeirra til sögunnar.“ Vanda þarf valið Arnar Þór segir mjög mikilvægt fyrir neytendur að vera meðvitaðir um þær reglugerð- ir sem gilda varðandi LED-ljós- gjafa. „Á markaðnum í dag má finna töluvert af LED-ljósgjöfum sem uppfylla ekki þau lög og reglu- gerðir sem í gildi eru. Það getur því reynst erfitt fyrir neytendur að átta sig á því hvort varan sem þeir hyggjast kaupa uppfylli gæða- kröfur. Neytendur ættu að vera vakandi gagnvart ódýrum LED- lausnum af þeirri einföldu ástæðu að margar þeirra einkennast af slökum gæðum, sérstaklega þegar kemur að birtustigi og líftíma.“ Aldrei meira úrval OSRAM hefur aldrei boðið upp á eins mikið úrval af LED-perum sem eru fáanlegar með mismunandi styrkleika, ljós- lit, form og sökkla. „Á meðal helstu nýjunga má nefna perurnar PARA- THOM LED RETROFIT, sem líta vel út og gefa frá sér fallega og þægilega birtu. Þessar nútíma- legu perur gefa frá sér mjúka og hlýja birtu (2.700 kelvin) og skapa hlýlegt og þægilegt andrúmsloft í hvaða umhverfi sem er. PAR- ATHOM LED RETROFIT perurnar eru fáanleg- ar í „klassíska gló- peruútlitinu“ auk þess sem einnig eru til perur með nýtt útlit, eins og Globe og Edi son.“ Einstaklega hlý birta Á meðal annarra nýjunga frá OSRAM eru nýjar LED-perur sem kallast GLOWdim. „Þessar perur gefa frá sér einstaklega hlýja og mjúka birtu, svipaða þeirri sem hefðbundnar halogen- og glóper- ur gefa frá sér. Þegar kveikt er á þeim gefa perurnar frá sér hlý- hvíta birtu (2.700 kelvin) og með því að dimma þær, er hægt að ná fram enn þá hlýrri og mýkri birtu, en áður hefur náðst með LED-per- um (2.000 kelvin). GLOWdim-per- urnar eru fáanlegar í nokkrum út- færslum.“ LED-perur í glerútliti Á næstunni eru svo væntanlegar nýjar LED-perur sem líta alveg eins út og eldri tegundir af halo- gen-perum. „Hingað til hefur verið nokkur útlitsmunur á þess- um perum þar sem LED-per- urnar hafa verið með eins konar plast útlit en eldri halogen-per- ur eru úr gleri. Þær LED-per- ur sem eru á leiðinni munu hins vegar líta nær alveg eins út og eldri halogen-perur, þ.e. í glerútliti. Nú verður því hægt að ná fram allt að 80% orkusparnaði án þess að gera málamiðlun í útliti.“ 1906 – Úrvals árgangur! Í tilefni af 110 ára afmæli OSRAM (og kannski vegna 100 ára afmælis Jóhanns Ólafssonar & Co!) mun fyrirtækið setja á markað vörur sem kallast Edition 1906. „Um er að ræða nokkrar vörur með eina hugmyndafræði; að endurlífga hið gamla peruútlit með nútímalegri tækni. Gamla gullna útlitið gefur frá sér hlýja og rólega umhverfislýsingu þar sem lýsingin snýst ekki um að lýsa upp rýmið heldur einfaldlega að skapa þægilegt andrúmsloft.“ Allar nánari upplýsingar má finna á Facebook-síðunni OSRAM- Ísland. Sjáðu heiminn í réttu ljósi! Alls staðar leikur lýsing stórt hlutverk og hefur áhrif á líðan okkar og öryggi. Því þarf að huga að mörgum þáttum þegar ljósgjafar eru valdir. Þar kemur þekking, reynsla og þjónusta starfsmanna Jóhanns Ólafssonar & Co. og endursöluaðila þeirra til sögunnar. LED RETROFIT-perurnar eru fáanlegar í ýmsum útfærslum. Nýju GLOWdim perurnar eru dimmanlegar niður í mjög hlýjan ljóslit (2.000 kelvin). Arnar Þór Hafþórsson, rekstrarstjóri Jóhanns Ólafssonar & Co. LJÓS OG LAmpAR Kynningarblað 19. september 201610 Edition 1906 perurnar endurlífga hið gamla peruútlit með nútímalegri tækni. 1 9 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 9 F -1 0 F C 1 A 9 F -0 F C 0 1 A 9 F -0 E 8 4 1 A 9 F -0 D 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.