Fréttablaðið - 19.09.2016, Síða 9

Fréttablaðið - 19.09.2016, Síða 9
KRÓNAN VEITIR 99% AFSLÁTT fyrir barnið aðra leiðina + flugvallarskattar. Greiða þarf flugvallarskatta og eru þeir 1.700 kr. frá Reykjavík og 1.360 kr. frá öðrum áfangastöðum innanlands. FERÐATÍMABILIÐ ER FRÁ 1. – 31. OKTÓBER BÓKANLEGT FRÁ 19. SEPTEMBER – 31. OKTÓBER Sláðu inn í bókunarvélina flugsláttinn KRONA til að trygg ja þér þetta tilboð. ÞETTA EINSTAKA TILBOÐSFARGJALD • gildir til Reykjavíkur, Akureyrar, Ísafjarðar, Egilsstaða, Grímseyjar, Vopnafjarðar og Þórshafnar • er fyrir börn, 2–11 ára, í fylgd með fullorðnum og í sömu bókun • býðst eingöngu þegar bókað er á netinu, www.flugfelag.is • ekki er hægt að bæta barni við bókunina eftir á • ekki er hægt að nota tvo flugslætti í sömu bókun Is le ns ka /s ia .is F LU 8 12 30 0 9/ 16 AF BARNA FARGJÖLDUM INNANLANDS 99%afsláttur FJÖLSKYLDAN FLÝGUR SAMAN Á VIT ÆVINTÝRANNA FLUGFELAG.IS BARNGÓÐAR KRÓNUR TAKA Á LOFT Viðskipti „Ísland er sterkt vöru­ merki og það hvað landið er ein­ stakt spilar þar inn í. Það þarf engu að síður að halda áfram að þróa það, passa að það sé í umræðunni og ganga úr skugga um að fólk sem ferðast hingað eigi góðar upplif­ anir. Það skiptir máli að umtal um Ísland sé jákvætt,“ segir Kevin L. Keller, sérfræðingur í vörumerkja­ stjórnun. Hann heldur fyrirlestur í Gamla bíói á morgun á vegum ÍMARK og fjallar þar meðal annars um vöru­ merkið Ísland. „Ísland er týpískt dæmi um umtal (e. word of mouth), þegar einhver kemur hingað og á góða upplifun þá hefur það jákvæð áhrif,“ segir Keller. Að mati Kellers er vörumerkið Ísland á góðum stað í dag. „Það hefur margt spilað þarna inn í, Ísland fékk til dæmis einstaka auglýsingu þegar Íslendingar kepptu á Evrópumót­ inu í fótbolta. Það er líka merkilegt að erfiðleikarnir sem ríktu hér árið 2010, áhrif efnahagskreppunnar og eldgosið í Eyjafjallajökli, höfðu ekki neikvæð áhrif á vörumerkið, eins og maður hefði búist við,“ segir Keller. Keller bendir þó á að jákvæð vörumerki viðhaldi sér ekki sjálf, það þurfi að viðhalda gæðum, sér­ staklega í ferðamannaiðnaðinum. „Í mörg ár var Ísland falin perla en þið þurfið að vera meðvituð um áhrif massatúrisma af því að einn helsti kosturinn við að koma hingað áður var að líða eins og maður væri einn í heiminum. Þetta snýst allt um gæði. Það eru takmörkuð gæði þannig að það þarf að ákveða hvernig upplifanir þið viljið skapa innan þeirra.“ saeunn@frettabladid.is Evrópukeppnin í fótbolta auglýsti Ísland á einstakan hátt Vörumerkjagúru Kevin L. Keller er sérfræðingur í vörumerkjum og vörumerkj- astjórnun og hefur verið kallaður vörumerkja- og markaðsgúrú. Hann er prófessor í markaðs- fræðum við Dartmouth-háskóla í Bandaríkjunum og hefur kennt við fjölda þekktra menntastofn- ana. Hann er höfundur Stefnu- miðaðrar vörumerkjastjórnunar (e. Strategic Brand Management). samfélag Víkingaskipið Drekinn Haraldur hárfagri kom til New York um helgina og var tekið á móti skipinu með mikilli viðhöfn. Drekinn hefur siglt yfir Atlantshaf undanfarna fimm mánuði, en hann lagði af stað frá Haugasundi í Nor­ egi í apríl síðastliðnum. Verkefnið er innblásið af ferða­ lagi Leifs Eiríkssonar, fyrsta Evr­ ópumannsins sem kom til Norður­ Ameríku og er bygging skipsins byggð á heimildum um hvernig samtímaskip Leifs voru gerð. Drek­ inn er um þrjátíu metra langur og mun hann verða til sýnis við Man­ hattaneyju í New York til 26. sept­ ember næstkomandi. Ferðin hefur ekki gengið áfalla­ laust fyrir sig en áhöfnin hefur þurft að berjast við óveður og óvænta ísjaka á ferð sinni. Björn Ahlander skipstjóri sagði í viðtali við fréttastofu Curbed í New York þegar skipið kom í höfn: „Þetta fáum við svo sannarlega ekki að gera á hverjum degi.“ - þea Drekinn kominn til New York Drekinn á siglingu við Haugasund. NorDicpHotos/AFp Viðskipti Á föstudaginn hrundu hlutabréf í Deutsche Bank og lækk­ aði gengi hlutabréfanna um rúm­ lega átta prósent. Þetta leiddi til verulegrar lækkunar á evrópskum hlutabréfamarkaði og lauk vikunni með mestu lækkunum á evrópskum hlutabréfamörkuðum frá því að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusam­ bandið í lok júní. Ástæða lækkunarinnar hjá Deutsche Bank er að tilkynnt var um það á föstudaginn að banda­ ríska ríkið vill að bankinn greiði 14 milljarða dollara, jafnvirði 1.600 milljarða króna, í sekt vegna þáttar síns í fjármálakreppunni árið 2008. Eins og Fréttablaðið greindi frá hefur órói komið yfir markaði á ný. Á föstudaginn fyrir rúmri viku fór stressvísitalan að hækka á ný og voru miklar lækkanir á hlutabréfa­ markaði í byrjun síðustu viku úti um allan heim. Í vikunni lækkaði STOXX Europe 600 vísitalan, sem nær til stærstu hlutabréfa í Evrópu, um 3,5 prósent. Stærstu hlutabréfavísitölur Evrópu tóku dýfu í vikunni, má þar nefna FTSE 100 í Bretlandi, sem náði sér á strik en endaði í ­1 prósenti fyrir vikuna, og svipaða sögu er að segja af DAX í Þýskalandi. – sg Sekt lækkar hlutabréf f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 9m Á N U D a g U r 1 9 . s e p t e m B e r 2 0 1 6 1 9 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 9 F -1 F C C 1 A 9 F -1 E 9 0 1 A 9 F -1 D 5 4 1 A 9 F -1 C 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.