Fréttablaðið - 19.09.2016, Page 64

Fréttablaðið - 19.09.2016, Page 64
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja A R G H !!! 1 90 91 6 Áklæðið er blanda af silki og ull svo að yfirborðið hafi náttúrlega öndun og ýtir undir alhliða vellýðan. AdvantaGel™ er háþróuð hönnun til að koma á móts við hitasveiflur líkamans, sjálfstæð pokagorma hönnun sem minnkar truflun milli svefnsvæða og Excellent Edge™ sem veitir meiri stöðugleika og þægilega stífa kanta sem gerir svefnflötin enn stærri. Botn: Stífur klæddur botn með fótum. DAGAR REKKJUNNAR ÖRUGLEGA ÞÆGILEGUSTU RÚM Í HEIMI King Koil World Luxury er lúxus sem allir eiga skilið. World Luxury dýnur eru hannaðar svo að notandi fái hágæða svefn og fullkomin þægindi. Rekkjan ehf ≤≥ Ármúla 44 ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 H E I L S U R Ú M ATH! Einnig til í öðrum stærðum og gerðum. Lexington Firm (Queen size 153x203 cm) Fullt verð 278.711 kr. TILBOÐSVERÐ 195.098 kr. ÞÝSKT GÆÐA BELLANA DELUXE-LAK FYLGIR HVERJU RÚMI FRÁ WORLD LUXURY! 15 LITIR Í BOÐI Eigum nokkrar King Koil lagerhreinsunardýnur eftir: 62.000 kr.STÖK QUEEN-SIZE DÝNA (153x203 cm) 84.200 kr.STÖK KING-SIZE DÝNA (193x203 cm) OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA Fallinn er nú frá, faðir minn Jón Jónsson“„læk“ „Ég þoli ekki ísbúðina á horninu“ „læk“ „Móðir barnanna minna er illa meinandi skepna“ „læk“ Hvað þýða eiginlega þessi læk? Erum við að samþykkja eða taka undir það sem sagt er? Erum við að fagna, sýna hluttekningu eða mót- mæla? Hvernig förum við með þetta dýrmæta læk okkar? Getur verið að við þurfum að hafa meiri aðgát í með- förum læks? Læk eru mis þýðingarmikil. Stund- um skellir lækarinn á eitt þegar hann vill sýna síðueiganda að hann hafi komið við á síðunni, eða að viðkom- andi sé hjartanlega sammála. En læk fylgir ábyrgð. Það þarf nefnilega að átta sig á því að stundum er verið að læka við dauðans alvöru. Notendur Fésbókar þurfa að hafa í huga að þeir eru ekki einir með síðueiganda í læk- heimum. Þar eru líka börn, ungling- ar, konur og karlar sem lesa og meta lækið út frá sinni dauðans alvöru. Forsendum þess sem þarf að þola það sem þar er skrifað. Síðueigand- inn kann að vera að þjarma að opin- berri persónu, vinnuveitanda eða einhverjum nákomnum með sannri eða ósannri frásögn sinni, dylgjum eða skoðunum um hvað sem honum dettur í hug. En hvar liggur ábyrgð lækarans? Meiðyrðalöggjöfin lýtur að þeim sem opinberlega hæðist að, rógber eða smánar annan mann. En hvað með þann sem lækar? Þolandinn kann að átta sig á að „rógberinn“, síðueigand- inn, hefur ákveðna afstöðu sem hann fylgir en hvað með lækarann? Hver er ábyrgð viðkomandi? Var hann að hæðast opinberlega, rógbera eða smána með læki sínu eða las hann kannski alls ekkert statusinn? Er ekki kominn tími til að vanda lækið? Er læk sama og samþykki? Helgu Völu Helgadóttur Bakþankar 1 9 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 9 E -D F 9 C 1 A 9 E -D E 6 0 1 A 9 E -D D 2 4 1 A 9 E -D B E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 1 8 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.