Fréttablaðið - 08.08.2016, Page 15
Eftir að Gló opnaði í Fákafeni
hefur skapast frábær aðstaða til
námskeiðahalds auk þess sem
fólk getur keypt inn fjölbreytt-
ar hollustu- og lífrænar vörur,
fengið sér töfrandi drykki eða
notið heilnæmra máltíða. Aukn-
ar vinsældir hafa gert það að
verkum að nú er í boði stærri og
fjölbreyttari námskeiðsdagskrá.
Sölvi Pétursson sem hefur um-
sjón með námskeiðunum, nokk-
urs konar skólastjóri, segir að
fólk geti sótt sér fræðslu hjá
þekktum erlendum sem inn-
lendum fyrirlesurum. „Öll nám-
skeiðin eru tengd heilbrigðum
lífsstíl,“ segir Sölvi. „Allt frá
jákvæðri sálfræði yfir í vegan
eða hráfæðismatreiðslunám-
skeið, lífsstílsþjálfun og lífsstíls-
breytingar. Fyrirlesararnir eru
með mismunandi áherslur sem
eykur á fjölbreytnina og gerir
námskeiðin meira spennandi,“
segir hann.
Spennandi námskeið
Meðal þekktra fyrirlesara eru
Þorbjörg Hafsteinsdóttir sem
hefur getið sér mjög gott orð
fyrir námskeiðið Ljómandi.
Þetta er tíunda skiptið sem hún
er með Ljómandi námskeiðið
sem tekur fjórar vikur. „Sykur-
laus og full af orku eftir sumar-
ið,“ segir hún.
Ásdís Ragna Einarsdóttir
grasalæknir kennir fólki grunn-
atriði sem hjálpa við að betrum-
bæta mataræðið á einfaldan
og öfgalausan hátt á einu nám-
skeiði sínu en einnig er hún með
námskeiðið „Hreint mataræði“.
„Lærðu hvernig þú getur virkj-
að afeitrunarkerfi líkamans til
fulls og gefðu líkamanum tæki-
færi á að endurnýja sig á hreinu
mataræði,“ segir Ásdís.
Þá verður námskeið í ágúst
með metsöluhöfundinum Ani
Phyo en hún sýnir hve auðvelt og
fljótlegt er að útbúa hráfæði sem
hentar fyrir alla fjölskylduna.
Ani býr í Los Angeles, hún er af-
rekskona í íþróttum, heilsufrum-
kvöðull og höfundur verðlauna-
bóka um hráfæði. Hún hefur
meðal annars unnið með Hvíta
húsinu að verkefnum tengdum
heilsu auk þess sem hún er með
heilsuátak með borgarstjórn Los
Angeles um þessar mundir. Ani
deilir á námskeiðinu öflugum og
góðum ráðum sínum um breytt-
an og umhverfisvænan lífsstíl,
náttúrulega fegurð, líkamsrækt
og hamingju.
Helga Arnardóttir er með
námskeið um jákvæða sálfræði.
Á námskeiðinu verður fjallað
um andlega vellíðan og leiðir
til þess að auka hana. Sex mis-
munandi leiðir, byggðar á rann-
sóknum á hamingju og vellíðan,
verða teknar fyrir, ein í hverj-
um tíma. Þátttakendur fá sam-
svarandi æfingar til þess að gera
heima milli tímanna.
Meðal annarra fyrirlesara má
nefna Röggu Nagla sem heldur
sitt fyrsta námskeið á Gló í sept-
ember og kennir þátttakendum
að njóta matar með núvitund-
ina að vopni, Davíð Kristins-
son heldur sitt sívinsæla nám-
skeið „30 dagar“ í október, Júlía
Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi
kennir heilsusamlega matargerð
og Birna Ásbjörnsdóttir fjallar
um meltingu og þarmaflóruna.
Afsláttarkort
Sölvi segir að styttri námskeið
séu yfirleitt tveir til þrír tímar
og fari fram á kvöldin. Einn-
ig eru í boði lengri námskeið,
4-6 skipti, eða helgarnámskeið.
Námskeiðunum fylgja afsláttar-
kort sem gilda í verslun Gló en
margar vörur sem sýndar eru á
námskeiðunum fást á staðnum.
Sölvi starfar á Gló Kaffi &
Tonic barnum í Fákafeni þar
sem hann galdrar fram alls
kyns heilsudrykki og er leitast
við að hámarka hollustu í hverj-
um sopa. Hann segist hafa hug á
að vera með námskeið um gerð
slíkra drykkja en það verður
tæpast fyrr en á næsta ári. Hins
vegar er ástæða til að heim-
sækja Sölva á barinn og fá sér
hollustu í kroppinn.
Heill heilsuheimur
Verslunin býður upp á vörur sem
henta vel þeim sem vilja breyta
lífsstílnum og afsláttarkortið
gildir fyrir allar vörur. Starfs-
menn eru vel að sér og gefa við-
skiptavinum góð ráð um notkun.
„Margir nýta sér að borða
á veitingastaðnum hjá okkur
fyrir námskeið eða á eftir. Svo
er auðvelt að ná sér í mat í búð-
inni. Við erum með mjög mikið
úrval af nýjum vegan vörum
sem hafa ekki verið til áður á Ís-
landi. Í raun er Gló í Fákafeni
heill heilsuheimur,“ segir Sölvi.
„Við erum með grænmetiskæli
og fáum vikulega mjög skemmti-
legt úrval af lífrænu grænmeti,
til dæmis marglitar gulrætur.“
Hægt er að skoða námskeiða-
framboð og skrá sig á öll nám-
skeiðin á heimasíðunni glo.is og
einnig er hægt að fylgjast með
námskeiðum og öðrum viðburð-
um á Facebook-síðu Gló.
Fyrirlesararnir eru með mismunandi áherslur
sem eykur á fjölbreytnina og gerir nám-
skeiðin meira spennandi. Öll námskeiðin eru tengd
heilbrigðum lífsstíl.“
Sölvi Pétursson
Skólar og námskeið
8. ágúst 2016
Kynningarblað Gló | Stílvopnið | Retor fræðsla| KILROY | Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn |
Sölvi Pétursson er skólastjóri yfir námskeiðunum hjá gló. Einnig sér hann um gló Kaffi & Tonic barinn í Fákafeni. MynD/Hanna
Heilsuheimur spennandi námskeiða
Gló í Fákafeni býður upp á sérstaklega spennandi námskeið á næstunni fyrir alla þá sem vilja huga að bættum lífsstíl og heilsurækt.
Mismunandi námskeið með frábærum fyrirlesurum, meðal annars jákvæðri sálfræði, hráfæðismatreiðslu og Ljómandi með Tobbu.
NæStu NámSkeið
og fyrirleStrAr
á gló í fákAfeNi
14. ágúst – Honey LaBronx –
Veganismi og rétt-
lætisbarátta
16. ágúst - Ásdís Ragna Einars-
dóttir - Hreint mat-
aræði: Hreinsun
17. ágúst – Any Phyo: Fresh Sa-
vory Recipes
19. ágúst – Ani Phyo: Decadent
Guilt-Free Sweets
20. ágúst – Ani’s Mexican in the
Raw
29. ágúst – Helga Arnardóttir -
Aukin vellíðan með
aðferðum jákvæðrar
sálfræði
31. ágúst - Ljómandi með Tobbu
0
8
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
3
1
-F
9
4
0
1
A
3
1
-F
8
0
4
1
A
3
1
-F
6
C
8
1
A
3
1
-F
5
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K