Fréttablaðið - 08.08.2016, Blaðsíða 18
Kolfinna er nú á miðstigi eða Middle
School þar sem eru krakkar á aldr-
inum tíu til fjórtán ára. „Ég skipti
um skóla þegar ég var tíu ára og
fór í annan skóla til að fara á mið-
stig sem er hérna fjögur ár. Og svo
förum við í menntaskóla eða High
School þegar við erum fjórtán ára
og erum þar í fjögur ár.“ Hún segir
uppbyggingu skóladagsins vera
öðruvísi en á Íslandi. „Á Íslandi þá
borðum við hádegismat inni og leik-
um okkur svo úti í frímínútum en
í Ameríku þurfum við að borða og
leika okkur á sama tíma. Hver og
einn er með sína eigin stundatöflu
og það er enginn í bekk heldur er
þetta meira eins og áfangakerfi,“
segir hún. „Stundataflan er samt
alveg nákvæmlega eins á hverjum
degi en á Íslandi var hún ólík milli
daga. Við megum velja eina list-
grein og þá má velja hvort maður
vill vera í hljóðfæranámi, leiklist,
söng eða tónlist eða hringekju.“ Kol-
finna getur fengið ýmislegt metið
inn í skólann. „Ég er að fara í dans
utan skóla fjórum sinnum í viku og
þá kemur það í staðinn fyrir íþrótt-
ir sem eru á hverjum degi. Þá má
ég velja tvennt í staðinn og ég valdi
spænsku og hringekju þar sem við
erum nokkrar vikur í hverri grein
og skiptum svo.“
Kolfinna er ekki hrifin af matn-
um í skólanum. „Mér finnst matur-
inn í skólanum ógeðslegur, það eru
reyndar góðir ávextir en annars eru
þetta vondir hamborgarar og pits-
ur. Mjög margir krakkar koma með
nesti að heiman og mamma hjálp-
ar mér að útbúa hollt og gott nesti á
hverjum degi.“
Það eru ýmsar reglur í skólanum
sem Kolfinnu þóttu skrýtnar. „Það
var regla í skólanum að við máttum
ekki snerta hvert annað. Einu sinni
mátti ekki einu sinni gefa „hæ-fæv“
og fólk var látið sitja eftir fyrir
það. En svo kom nýr skólastjóri og
hún breytti reglunum. Við megum
alveg snertast núna og ég og vin-
konur mínar knúsumst oft. Sumir
kennarar eru samt svolítið strangir
með þetta og koma og segja: Ef ég
sé ykkur gera þetta aftur þá verðið
þið látnar sitja eftir! En það er ekki
oft. Það er samt þannig að ef maður
snertir einhvern sem vill ekki láta
snerta sig þá lendir maður kannski
í vandræðum.“
Önnur regla snerist um klæðaburð
nemenda og sú regla fannst Kol-
finnu ósanngjörn. Hún ákvað að
gera eitthvað í málunum og á end-
anum fengu hún og vinkona hennar
skólareglunum breytt.
„Við eigum heima í Kaliforníu
og þar er stundum sjóðandi heitt.
Í skólanum voru margar reglur í
sambandi við hvernig stelpur máttu
klæða sig. Það mátti til dæmis ekki
vera í hlýrabol, stuttbuxur og pils
þurftu að ná næstum niður á hné
og ekki sjást í brjóstahaldara eða
magann. Það voru ekki eins margar
reglur fyrir stráka. Ég og vinkona
mín söfnuðum 260 undirskriftum,
fórum með þær til skólastjórans
og fengum hana til að breyta þess-
um fatareglum. Svo nú megum við
klæða okkur eins og við viljum ef
það bara sést ekki of mikið.“
Hefurðu einhverjar ráðleggingar
til krakka sem eru að fara að skipta
um skóla?„Þetta verður kannski
erfitt en þú þarft að gera þitt besta.
Ekki gefast upp, þetta verður allt í
lagi, þú rúllar þessu upp.“
Safnaði undirskriftum til að breyta
ósanngjörnum reglum um fatnað
Kolfinna Kolbeinsdóttir, tólf ára að verða þrettán, flutti frá Íslandi til Kaliforníu fyrir tæpum þremur árum. Henni fannst námsefnið miklu
erfiðara en á Íslandi en hefur gengið vel að eignast vini og aðlagast skólanum sem er að ýmsu leyti örðuvísi en á Íslandi.
Hér eru vinkonur Kolfinnu að borða
hádegismatinn í frímínútum.
Kolfinna á milli tveggja vinkvenna. Vinstra megin er Liza og hægra megin Eden.
„Ég hef kennt fólki að skrifa í tæp
þrjátíu ár en ég kynntist ritunar-
kennslu fyrst þegar ég bjó í Sví-
þjóð,“ segir Björg Árnadóttir, eig-
andi lítils fræðslu- og útgáfufyrir-
tækis að nafni STÍLVOPNIÐ
– valdefling og sköpun sem stofn-
að var árið 2015. Björg er félagi í
ReykjavíkurAkademíunni þar sem
hún fæst við ritstörf, rannsóknir,
verkefnastjórn og þátttöku í Evr-
ópuverkefnum á sviði fullorðins-
fræðslu. Námskeið Stílvopnsins
eru haldin í húsnæði Akademíunn-
ar en auk þess heldur Björg nám-
skeið á landsbyggðinni eftir atvik-
um og kennir líka erlendis.
„Stílvopnið býður margs konar
hagnýt og skapandi ritunarnám-
skeið. Á haustönninni held ég nokk-
ur námskeið í skapandi skrifum en
býð einnig námskeið um ritun end-
urminninga og námskeiðið Ritlist
og reiði sem snýst um að hjálpa
fólki að umbreyta reiði sinni í upp-
byggilegan texta. Sum námskeiðin
eru ætluð almenningi og auglýst á
Stílvopns vefnum en önnur sérsnið-
in fyrir ólíka hópa sem panta þau.“
Að leita að tjáningunni hið innra
og finna henni form
Björg er myndlistarkennari og
blaðamaður að mennt með meist-
aragráðu í menntunarfræðum og
áratuga reynslu af kennslu full-
orðinna og stjórnun fullorðins-
fræðslu.
„Síðasta áratuginn hef ég tekið
þátt í margvíslegu evrópsku sam-
starfi um skapandi og valdefl-
andi leiðir í fullorðinsfræðslu
sem hefur reynst mér hinn besti
skóli og veitt mér innblástur í
kennslu minni hér heima. Ég hef
til dæmis lært aðferðir sögu-
spuna (Bibliodrama), kynnst
leikhúsi hinna raddlausu (Thea-
ter of the Oppressed) sem kennt
er við brasilíska leikhúsmann-
inn Augusto Boal og hugmynda-
fræði og aðferðir sem þekktar
eru undir nafninu Ferð hetjunn-
ar (Hero’s Journey) og tengjast
nafni bandaríska goðsagnafræð-
ingsins Josephs Campbell en hann
ættu Stjörnustríðsaðdáendur að
þekkja. Þá má ekki gleyma félags-
örvunaraðferðum (Sociomet-
ric) Austurríkismannsins Jacobs
Moreno sem gera hópum kleift
að kynnast vel á stuttum tíma
og vinna þar af leiðandi betur
saman. Allar þessar aðferðir
snúast um að hjálpa fólki að leita
þeirrar tjáningar sem býr innra
með því og finna henni form. Í
ritunarkennslunni nota ég
margvíslegar kveikjur til að
hjálpa fólki að finna söguna
sína og samtalstækni sem ég
hef lært í ofangreindum verk-
efnum en ritunarnámskeið
fjalla að töluverðu leyti um að
deila textum sínum enda læra
nemendur mest hver af öðrum.
Námskeið Stílvopnsins hefj-
ast í lok ágúst með námskeiði
í skapandi skrifum í Mývatns-
sveit. Skráning á námskeið
haustannar er hafin á www.
stilvopnid.is en hópar geta
haft samband vegna styttri
eða lengri sérsniðinna nám-
skeiða. Auk námskeiða býður
Björg fyrirlestra um vald-
eflingu og sköpun og ráðgjöf
á sviði ritunar og bókaútgáfu.
Stílvopnið yddað
Stílvopnið – valdefling og sköpun er nýtt fræðslu- og útgáfufyrirtæki í eigu Bjargar
Árnadóttur. Þar er boðið upp á margs konar hagnýt og skapandi ritunarnámskeið.
Björg Árnadóttir Rithöfundur Stílvopnið Námskeið Ritlist
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
SKóLaR og NÁmSKEið Kynningarblað
8. ágúst 20164
0
8
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
3
2
-1
1
F
0
1
A
3
2
-1
0
B
4
1
A
3
2
-0
F
7
8
1
A
3
2
-0
E
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
7
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K