Fréttablaðið - 08.08.2016, Side 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
www.husgagnahollin.is
558 1100
Rýmum til
fyrir nýjum
vörum eftir
útsöluna.
Seljum fáein
eintök af
stökum
sófum,
stólum og
fleiri vörum
á enn meiri
afslætti
til fimmtu
dags.
Taskan “The Period Pouch” er eins og verkfærataska, hún inniheldur allt það sem þú
þarft á að halda þegar þú ert á blæð
ingum, og hentar einstaklega vel fyrir
stelpur sem eru að byrja á túr eða eru
nýbyrjaðar, taskan hjálpar þeim að
hafa stjórn á ástandinu,“ segir Rakel
Karlsdóttir, hönnuður en hún er að
setja á laggirnar vörur sem aðstoða
konur þegar Rósa frænka kemur
óvænt í heimsókn.
Rakel ólst upp hér á Íslandi
umkringd hestum og íslenskri nátt
úru. Árið 2000 var hún valin Ford
fyrirsætan og í kjölfarið flutti hún til
London, Mílanó og Parísar þar sem
hún starfaði sem fyrirsæta.
„Ég hef alltaf verið ævintýragjörn
stelpa. Eftir að hafa ferðast mikið
og unnið fyrir framan myndavélina,
ákvað ég að flytja til Kaupmanna
hafnar og fara í nám. Ég tók bygg
ingarfræðina, arkitektinn og hluta af
hönnun. Eftir námið hef ég unnið sem
arkitekt og hönnuður hjá Johannes
Torpe Studios hér í Kaupmannahöfn.
Síðustu mánuði hef ég verið að vinna
að minni eigin hönnun LAVA,“ segir
Rakel, en nú þegar hefur hún hannað
þrjár vörur sem væntanlegar eru á
markaðinn.
En hvernig kviknaði hugmyndin?
„Þetta byrjaði allt þegar ég var í
hestaferðalagi heima á Íslandi. Hver
þekkir ekki ástandið þegar þú þarft
að skipta um bindi eða túrtappa og
það er engin ruslatunna nálægt þér,
ekki geturðu hent þessu út í nátt
úruna. Þegar ég lenti eitt sinn sjálf
í þessum aðstæðum, kviknaði sú
hugmynd að hanna lausn á þessu, í
kjölfarið kom “The Period Bag” eða
plastpokinn, en hann er hannaður
sérstaklega fyrir þetta vandamál.
Veskið kom strax á eftir pokanum,
og það inniheldur allar þær vörur
sem þú persónulega notar. Á tösk
unni er teygur sem þú auðveldlega
getur bundið utanum lærin svo þú
þurfir ekki að setja töskuna á skítugt
gólf. Þegar hugmyndin var komin
vel af stað ákvað ég að hanna “The
WetWipes” sem eru blautþurrkur án
ilmefna og alkóhóls, þær eru hugs
aðar til notkunar ef þú ert ekki nálægt
hreinu vatni,“ segir Rakel,
LAVA, er ekki einungis ætlað til
framleiðslu á vörum, heldur vinnur
Rakel að því að snúa við þeirri
skömm sem konur bera með sér
varðandi blæðingar.
„Af hverju erum við að læðast á
klósettið eins og enginn megi
sjá okkur, eða pískra þegar
við spyrjum vinkonur hvort
þær séu með auka túrtappa
á sér sem maður getur
fengið lánað. Ég er alveg
viss um að LAVA geti
hjálpað stelpum með
að komast yfir þessa
feimni og aðstoða
stelpur við að
fá meira sjálfs
traust þegar þær
fara á túr. Svo er
líka bara frábært
ef þú hefur fulla stjórn
á aðstæðum,“ segir Rakel.
LAVA mun fara á Kickstarter
1. September 2016, en það er síða
á netinu sem hjálpar nýjum hönn
uðum að komast af stað.
„Eftir Kickstarter, þá get ég sett
fyrstu framleiðsluna í gang og þá fara
hjólin að rúlla, planið er að vinna
í fullu starfi í LAVA og byggja fyrir
tækið upp, með það að markmiði að
hjálpa stelpum og konum að byggja
upp sjálfstraust,“ segir Rakel full til
hlökkunar yfir framhaldinu.
gudrunjona@frettabladid.is
Taskan sem
bjargar málunum
Rakel Karlsdóttir, hönnuður kemur á markaðinn vörum sem efla
sjálfstraust kvenna þegar þær eru á blæðingum. Um er að ræða
þrjár vörur sem auðvelda konum að hafa stjórn á aðstæðum.
Rakel Karlsdóttir, vinnur nú af fullum krafti við að koma vörunum sínum á markað.
“The Period Bag” er plastpoki sem er hannaður fyrir notaða túrtappa og dömubindi.
8 . á g ú s t 2 0 1 6 M á N U D A g U R22 L í f i ð ∙ f R É t t A B L A ð i ð
0
8
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
3
2
-0
3
2
0
1
A
3
2
-0
1
E
4
1
A
3
2
-0
0
A
8
1
A
3
1
-F
F
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
7
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K