Fréttablaðið - 29.08.2016, Blaðsíða 4
Skólastjórar funda vegna sundferða dæmds barnaníðings
Beltone Legend™
Enn snjallara
heyrnartæki
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust
beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis
heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki
lánað til reynslu.Bel
to
ne
L
eg
en
d
ge
ng
ur
m
eð
iP
ho
ne
6
s
og
e
ld
ri
ge
rð
um
, i
Pa
d
A
ir,
iP
ad
(4
. k
yn
sl
óð
),
iP
ad
m
in
i m
eð
R
et
in
a,
iP
ad
m
in
i
og
iP
od
to
uc
h
(5
. k
yn
sl
óð
) m
eð
iO
S
eð
a
ný
rr
a
st
ýr
ik
er
.
A
pp
le
, i
Ph
on
e,
iP
ad
o
g
iP
od
to
uc
h
er
u
vö
ru
m
er
ki
s
em
ti
lh
ey
ra
A
pp
le
In
c,
s
kr
áð
í
Ba
nd
ar
ík
ju
nu
m
o
g
öð
ru
m
lö
nd
um
.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
HEYRNARSTÖ‹IN
Kjaramál Fordæmalaus fjöldi
kvartana er á borði Flugfreyjufé-
lags Íslands frá flugliðum WOW
air. Kvartanirnar snúa aðallega að
meintu broti á kjarasamningum
varðandi hvíldartíma flugliða. Þetta
staðfestir Sigríður Ása Harðardóttir,
formaður Flugfreyjufélags Íslands,
en hún telur WOW air brjóta reglur
um hvíldartíma með því að fara
gegn ákvæðum kjarasamnings.
Samkvæmt kjarasamningi eiga
flugliðar ekki að vera með vinnu-
plan í fleiri en sex daga í röð. Regl-
urnar eru ekki nýjar en þær hafa
verið í kjarasamningum við aðra
flugrekendur í tugi ára.
Flugfreyjufélag Íslands hefur
ítrekað bent WOW air á hið meinta
brot en flugfélagið túlkar samning-
inn á annan veg. „Þau nota hvíldar-
ákvæði sem samið er um í kjara-
samningi sem tækifæri til að brjóta
upp sex dagana. Hvíldardagur
hefur aldrei verið túlkaður sem lög-
bundinn frídagur. Vaktahvíld á milli
fluga á ekki að brjóta upp sex daga
regluna.“
Þá hefur ASÍ einnig gripið inn í og
sendi WOW air greinargerð á dög-
unum þar sem fram kemur það mat
að brotið sé á flugliðum. Þetta stað-
festir Halldór Oddsson, lögfræðing-
ur hjá ASÍ, og segir að ASÍ taki undir
röksemdir Flugfreyjufélagsins.
Engar kvartanir hafa borist frá
flugliðum Icelandair. „Þetta hefur
alltaf verið virt af Icelandair í gegn
um árin.“
Sigríður tekur dæmi um flugliða
sem fer í flug til Evrópu á mánu-
degi og þriðjudegi. Næst er flug
til Bandaríkjanna á miðvikudegi.
Flugliðinn kemur heim á föstu-
degi og ætti þá að fá tveggja nátta
hvíld. „WOW air hefur ekki fylgt því
og hefur sent flugliða í annað flug
næsta dag. Flugliðar ættu ekki að
mega fara fyrr en á sunnudeginum.
Þarna eru þau að vinna í sjö daga í
röð sem má ekki.“
Til skoðunar er að ganga lengra
í málinu. „Á næstunni munum við
skoða hvort farið verði í einhverjar
aðgerðir eða með málið fyrir félags-
dóm. Ásetningsbrot aðila á samningi
getur vikið friðarskyldu til hliðar.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins veigra sumir flugliðar sér
við að kvarta vegna málsins þar sem
þeir hræðist það að það hafi áhrif á
framtíð þeirra hjá fyrirtækinu.
Sigríður segist hafa heyrt af þessu.
„Þetta er auðvitað bara ein aðferða-
fræði í ógnunarstjórnun, að fólki
finnist það ekki geta leitað réttar
síns.“
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýs-
ingafulltrúi WOW air segir félag-
ið hafna því alfarið að reglur um
hvíldar tíma flugliða séu ekki virtar
hjá félaginu. „WOW air fylgir í starf-
semi sinni opinberum reglum um
flug- og vinnutímamörk og hvíldar-
tíma flugliða. Allar vaktaskrár eru í
samræmi við reglurnar og er öllum
flugliðum veittur hvíldartími í sam-
ræmi við reglurnar og ákvæði kjara-
samnings.“ andri@frettabladid.is
Fordæmalaus fjöldi kvartana
Mörg mál eru á borði Flugfreyjufélags Íslands frá flugliðum WOW sem telja reglur um hvíldartíma brotnar.
WOW túlkar kjarasamning á annan hátt en ASÍ og Flugfreyjufélagið. WOW neitar ásökununum.
Flugfreyjur hjá WOW telja að flugfélagið brjóti gegn rétti þeirra til hvíldartíma.
Á næstunni munum
við skoða hvort
farið verði í einhverjar
aðgerðir eða með málið fyrir
félagsdóm.
Sigríður Ása Harðardóttir, formaður
Flugfreyjufélags Íslands
lögreglumál Rannsókn á máli
nígerísks hælisleitanda sem hand-
tekinn var þann 23. júlí í fyrra,
grunaður um að hafa smitað konur
vísvitandi af HIV-veirunni, er lokið.
Málið hefur verið sent til héraðs-
saksóknara sem vinnur nú að því
að fara yfir gögn málsins.
Lögregla hafði óskað eftir gögnum
erlendis frá vegna rannsóknar máls-
ins og er það meðal annars ástæða
þess hve langan tíma rannsóknin
hefur tekið. Staðfest er að maðurinn
smitaði tvær konur hér á landi.
„Nú metum við hvort málið sé
líklegt til sakfellingar eða ekki og
vonum að það verði fyrr en síðar,“
segir Margrét Unnur Rögnvalds-
dóttir saksóknari.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins teygði rannsókn lögreglu
sig til Sviss en lögregluyfirvöld þar
í landi heimsóttu fyrrverandi kær-
ustur mannsins og yfirheyrðu þær.
– ngy
Rannsókn á
HIV-máli lokið
Staðfest er að maðurinn hafi smitað
tvær konur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Samfélag Fjórir skólastjórar í
grunnskólum í Kópavogi hafa
fundað með forstöðumanni Sala-
laugar vegna óánægju foreldra með
að börn þeirra þurfi hugsanlega að
vera í skólasundi á sama tíma og
dæmdur barnaníðingur.
Sigurður Ingi Þórðarson, sem
stundum hefur verið kallaður Siggi
hakkari, var í fyrra dæmdur í þriggja
ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
níu drengjum. Hann hefur undan-
farið sést í Salalauginni en hann
gengur nú laus með ökklaband.
Hann hefur aðeins afplánað um
þriðjung af dómi sínum.
„Um leið og ég vissi af þessu fór ég
strax að kanna málið og óskaði þá
eftir fundi. Við urðum strax öll sam-
mála um að hittast og fara yfir það
hvað við getum gert til að tryggja
öryggi barnanna,“ segir Hafsteinn
Karlsson, skólastjóri Salaskóla, en
hann átti fyrst fund með bæjaryfir-
völdum og forstöðumanni laugar-
innar á miðvikudaginn. Degi síðar
funduðu skólastjórar hinna þriggja
skólanna með Hafsteini.
Á fundunum var ákveðið að fylgst
yrði með öllum hópum í skólasundi
en ekki aðeins þeim yngstu eins og
verið hefur. Þá mun fylgdarmaður
fara út með börnunum í baðklefa.
Auk þess var ákveðið að herða
gæslu í sundlauginni. „Við erum að
bæta við starfsmönnum og þann-
ig verða fleiri að fylgjast með. Það
verða fleiri starfsmenn á okkar
vegum og þá er sundlaugin líka að
herða gæsluna hjá sér,“ segir Haf-
steinn og bætir við að það sama
muni gilda um hina skólana. – ngy
Um leið og ég vissi af þessu
fór ég strax að kanna málið
og óskaði þá eftir fundi. Við urðum
strax öll sammála um að hittast og
fara yfir það hvað við getum gert til
að tryggja öryggi
barnanna.
Hafsteinn Karlsson,
skólastjóri Salaskóla
2
Tvær konur smituðst af HIV
eftir samræði við manninn.
2 9 . á g ú S t 2 0 1 6 m á N u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
6
1
-1
5
1
8
1
A
6
1
-1
3
D
C
1
A
6
1
-1
2
A
0
1
A
6
1
-1
1
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K