Fréttablaðið - 29.08.2016, Qupperneq 14
Hvað gerðu Gylfi og Jói Berg?
Gylfi Þór Sigurðs-
son var að vanda
í byrjunarliði
Swansea en fór af
velli á 59. mínútu
í tapinu fyrir Lei-
cester. Jóhann Berg
Guðmundsson spilaði
síðustu 33 mínúturnar í tap-
leiknum gegn Chelsea.
Stærstu úrslitin Það var kominn smá
órói hjá Arsenal eftir fyrstu tvo
leikina. Enginn sigur og engir leik-
menn að koma. Sigurinn gegn Wat-
ford var því afar kærkominn fyrir
leikmenn og stuðningsmenn.
Hetjan Marcus Rashford kom af
bekknum hjá Man. Utd og bjargaði
því að United fékk öll stigin þrjú
með flautumarki undir lokin.
Í dag
21.00 Messan Sport 2
Nýjast
Man. City 3 – 1 West Ham
WBA 0 – 0 Middlesbr.
Tottenham 1 – 1 Liverpool
Southampton 1 – 1 Sunderland
Leicester 2 – 1 Swansea
Everton 1 – 0 Stoke City
C. Palace 1 – 1 Bournemouth
Chelsea 3 – 0 Burnley
Watford 1 – 3 Arsenal
Hull City 0 – 1 Man. Utd
Efst
Man. City 9
Chelsea 9
Man. Utd. 9
Everton 7
Hull City 6
Neðst
Sunderland 1
C. Palace 1
Watford 1
Bournemouth 1
Stoke City 1
Enska úrvalsdeildin
í ágúst og septembe
DAGAR
YFIR 320
VÖRUR
YFIR 140
VÖRUR
YFIR 200
VÖRUR
YFIR 440
VÖRUR
YFIR 310
VÖRUR
YFIR 430
VÖRUR
YFIR 350
VÖRUR
YFIR 130
VÖRUR
YFIR 230
VÖRUR
GERÐU ÓTRÚLEG KAUP!
Mikið úrval af vörum frá 50 krónum.
Bætum við nýjum vörum daglega.
Markaðsstemning
Fjöldi annarra tilboða á Markaðsdögum.
Pepsi-deild karla
Breiðablik - Stjarnan 2-1
1-0 Arnþór Ari Atlason (10.), 1-1 Halldór Orri
Björnsson (11.), 2-1 Höskuldur Gunnlaugs-
son (90.).
ÍBV - Þróttur 1-1
1-0 Elvar Ingi Vignisson (9.), Aron Þórður
Albertsson (72.).
Þróttur færist nær fallinu en ÍBV er langt frá
því að vera sloppið.
ÍA - Víkingur R. 2-0
1-0 Garðar Bergmann Gunnlaugsson (4.),
2-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson (33.).
Garðar er búinn að skora 14 mörk í sumar.
Fjölnir - Fylkir 1-1
0-1 Alvaro Montejo Calleja (55.), 1-1
Ingimundur Níels Óskarsson (90.+5).
Jöfnunarmark Fjölnis kom með síðustu
spyrnu leiksins. Grátlega svekkjandi fyrir
Fylki sem vantar sárlega þrjú stig.
Víkingur Ó. - FH 0-2
0-1 Atli Viðar Björnsson (44.), 0-2 Emil
Pálsson (62.).
Síðara mark FH var umdeilt enda óljóst
hvort boltinn fór inn fyrir línuna. FH sagði
mark en Ólsarar sögðu auðvitað ekki mark.
Valur - KR 2-0
1-0 Kristinn Freyr Sigurðsson, víti (73.), 2-0
Kristinn Freyr Sigurðsson (88.).
KR-ingurinn Skúli Jón Friðgeirsson sá rautt
í stöðunni 0-0.
Efst
FH 37
Breiðablik 30
Valur 28
Fjölnir 28
ÍA 28
Stjarnan 27
Neðst
Víkingur R. 24
KR 23
Víkingur Ó. 19
ÍBV 18
Fylkir 14
Þróttur 9
Meistaradeild kvenna
Cardiff - Breiðablik 0-8
Rakel Hönnudóttir 2, Svava Rós
Guðmundsdóttir 2, Fanndís Friðriksdóttir,
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Málfríður
Erna Sigurðardóttir, Ester Rós Arnarsdóttir.
Dramatík er bikarmeistarar Vals unnu nágrannaslaginn gegn KR
Valsarinn Andri Adolphsson sótti umdeilt víti í leiknum. Valur komst yfir í leiknum með marki úr vítaspyrnunni. FRéttABlAðið/HANNA
fótBolti „Við komum mjög vel
undirbúnar fyrir leikinn. Þjálfar-
arnir sögðu við okkur að þetta væri
hörkulið þannig að við vorum vel
gíraðar og keyrðum yfir þær í fyrri
hálfleik,“ segir Blikastúlkan Hall-
bera Guðný Gísladóttir en Blikar
unnu í gær riðil sinn í forkeppni
Meistaradeildarinnar.
Þær urðu að vinna lokaleik sinn
gegn Cardiff Met og það helst
sannfærandi þar sem líklegt var
að markatala myndi skera úr um
sigurvegara riðilsins. Blikastúlkur
svöruðu kalli þjálfara sinna með
því að skora sex mörk á fyrsta hálf-
tímanum og vinna leikinn 8-0 að
lokum. Þær eru því komnar í 32-liða
úrslit Meistaradeildarinnar.
„Þær spiluðu hörmulegt leik-
kerfi á móti okkur. Vængirnir
voru galopnir og það var veisla
fyrir okkur Fanndísi og Svövu á
vængjunum. Við áttum annars
mjög góðan leik. Það er langt
síðan boltinn hefur flotið svona
vel hjá okkur og svo kláruðum
við færin almennilega. Það hefur
aðeins vantað upp á það,“ segir
Hallbera.
Blikastúlkur gerðu 1-1
jafntefli við Spartak Sub-
otica í fyrsta leik sínum.
Voru með mikla yfir-
burði en fengu á sig
jöfnunarmark í lokin.
Það gerði riðilinn enn
meira spennandi og
því réð markatalan á milli
þessara liða. Blikar enduðu
með tíu fleiri mörk í plús en
Spartak.
„Í leiknum gegn Spar-
tak vildi boltinn alls ekki
inn. Það var sláin, stöngin og rétt
fram hjá allan leikinn. Núna var
það öfugt sem betur fer. Það var svo
gaman hjá okkur á vellinum núna
og allt gekk upp. Við slökuðum eðli-
lega aðeins á klónni í síðari hálf-
leik en ef við hefðum haldið áfram
af sama krafti þá hefðum við vel
getað sett fleiri mörk. Það var líka
komin þreyta eftir þrjá leiki á einni
viku,“ segir Hallbera en þær höfðu
ekki hugmynd um stöðuna í hinum
leiknum.
„Í stöðunni 6-0 vorum við samt
frekar slakar og þjálfararnir hefðu
örugglega verið æstari ef þetta hefði
verið í einhverri hættu.“
Nú er að bíða og sjá hvað kemur
upp úr pottinum í 32-liða úrslit-
unum. Hallbera á sér ekk-
ert óskalið en vill gjarna
sleppa við að fara til
Rússlands.
„Ég er ekki mjög
hrifin af því að fljúga
til Rússlands. Ég
my n d i ja f nve l
fórna mér frekar
í lest. Það væri
gaman að fá lið
í Skandinavíu
eða Ítalíu þar
sem við eigum
m ö g u l e i k a , “
segir Hallbera en
hún vill forðast
hákarla eins og
Lyon þar til síðar í
keppninni.
„Það væri betra að
spila við Lyon bara í
Cardiff í úrslitaleiknum,“
segir Hallbera létt.
henry@frettabladid.is
Það gekk allt
upp hjá okkur
Breiðablik er komið í 32-liða úrslit í Meistaradeild
Evrópu. Blikastúlkur flugu áfram með stæl í næstu
umferð er þær völtuðu yfir lið Cardiff Met.
Hallbera
Guðný.
2 9 . á G ú S t 2 0 1 6 M á N U D A G U R14 S P o R t ∙ f R É t t A B l A ð i ð
sport
2
9
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
6
1
-0
B
3
8
1
A
6
1
-0
9
F
C
1
A
6
1
-0
8
C
0
1
A
6
1
-0
7
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K