Fréttablaðið - 05.09.2016, Side 8

Fréttablaðið - 05.09.2016, Side 8
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Verð frá aðeins 2.290.000 kr. ŠKODA Fabia býr yfir ótal kostum, en fögur orð og fyrirheit koma ekki í staðinn fyrir persónulega reynslu. Því langar okkur að lána þér Fabiu í sólarhring. Komdu við hjá okkur eða sendu póst á skoda@hekla.is og fáðu nýja ŠKODA Fabiu til reynslu í 24 tíma. Hlökkum til að sjá þig. Prófaðu Fabiu í sólarhring www.skoda.is Við undirrituð styðjum Gunnar Alexander í 3.-4. sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík dagana 8.-10. september 2016 Við minnum á stuðningsmannakaffið í dag mánud. milli kl. 17-19 á Bergsson RE, Grandagarði Ágúst Ingi Sigurðsson, hafnsögumaður Guðjón Halldór Gunnarsson, ugstjóri Ólafur Ólafsson, fyrrv. landlæknir Þórður Geir Þorsteinsson Teitur Atlasson, blaðamaður Pétur Óli Jónsson, viðskiptafræðingur Páll Sævar Guðjónsson, markaðsstjóri Árni Gunnarsson, fyrrv. þingmaður Kjartan Emil Sigurðsson, stjórnmálafræðingur Egill Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Emil Thoroddsen, framkvæmdastjóri Björgvin Guðmundsson, fyrrv. borgarfulltrúi Hannes Ottósson, sérfræðingur Kristinn Ö. Jóhannesson, fyrrv. formaður VR Bjarni Þór Sigurðsson, varaformaður VR Örn Logasson, hópsstjóri Hákon Óli Guðmundsson, verkfræðingur Hreinn Jónsson, byggingatæknifræðingur Ólafur Arnar Arthursson, kerssfræðingur Guðrún Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur Kristjana Hrafnsdóttir, kennari Ninja Ómarsdóttir, markaðsfræðingur Jódís Bjarnadóttir, félagsráðgja Dóra Magnúsdóttir, markaðsstjóri Anna Sigrún Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur Brynja Baldursdóttir, aðstoðarskólastjóri Anna Guðrún Sigurðardóttir, ráðgja Irís Lind Sæmundsdóttir, lögfræðingur Ingunn Jónsdóttir, læknir Áróra Gústafsdóttir, markaðsstjóri Ingibjörg Ósk Birgisdóttir, skrifstofustjóri Guðný Helga Gunnarsdóttir, lektor við HÍ Karen Levke, B.sc. í lyafræði Ásta Arnardóttir, bókari Brynja Pála Helgadóttir, ljósmóðir Hildur Helga Sigurðardóttir, blaðamaður Kristín Erna Arnardóttir, stjórnmálafræðingur Karen Sif Eyþórsdóttir, háskólanemi Anna K. Kristjánsdóttir, vélfræðingur https:/ /www.facebook.com/GunnarAlexanderFrambod2016/ Gunnar Alexander Ólafsson Landbúnaður Fjallalamb hf. hefur óskað eftir hlutafjáraukningu í félag- inu til að laga lausafjárstöðu. Björn Víkingur Björnsson, framkvæmda- stjóri félagsins, segir síðustu tvö ár hafa verið gríðarlega erfið fyrir afurðastöðvar fyrir lambakjöt og að allur útflutningur sé rekinn með tapi. Fréttablaðið sagði frá því á dögun- um að af rúmum tíu þúsund tonnum sem framleidd eru af kindakjöti ár hvert fari um þrjú þúsund tonn á erlenda markaði. „Það er offramleiðsla á landinu í dag, það er klárt að mínu mati. Einn- ig munu nýju búvörusamningarnir taka í burtu einu framleiðslustýring- una sem er í kerfinu og því ekki von á góðu ef áfram heldur sem horfir. Ég gæti trúað því að meðalbændur á okkar starfssvæði, sem er Öxarfjörður og Þistilfjörður, muni tapa um einni og hálfri milljón króna á þessum nýju samningum,“ segir Björn Víkingur. Segir borgað með útflutningi kjötsins Frá 2007 hefur kindakjötsframleiðsla aukist. Framkvæmdastjóri Fjallalambs segir offramleiðslu á kjöti og greitt með útflutningi. Fyrir- tækið hefur óskað eftir hlutafjáraukningu til að laga lausafjárvanda. Afurðastöðvar hafa tekið á sig mikinn skell á síðustu misserum. Ég ætla að leyfa mér að segja að það er fyrst og fremst verslunin sem stýrir verði til bænda á Íslandi.  Gunnar Bragi Sveinsson, landbúnaðarráð- herra Við erum að borga með útflutningi á þessa helstu markaði okkar. Björn Víkingur Björnsson, fram- kvæmdastjóri Fjalla- lambs Frá árinu 2007 hefur framleiðsla á kindakjöti aukist. Um 60.000 fleiri dilkum var slátrað árið 2015 en árið 2006. „Það er taprekstur á öllum útflutningi á lambakjöti í ár. Á meðan krónan hefur styrkst hefur gengi breska pundsins og norsku krónunnar farið niður svo við erum að borga með útflutningi á helstu markaði okkar,“ bætir hann við. „Ég ætla að leyfa mér að segja að það er fyrst og fremst verslunin sem stýrir verði til bænda á Íslandi,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson land- búnaðarráðherra í þingræðu í síð- ustu viku um lækkað afurðaverð til bænda. „Hins vegar er lambakjöt flutt út til Evrópu. Þeir markaðir eins og aðrir hafa reynst býsna erf- iðir að undanförnu. Það eru nokkur atriði sem spila þar inn í. Eftir- spurnin er einfaldlega önnur,“ sagði Gunnar Bragi. sveinn@frettabladid.is Unnið að því að hreinsa slög í Fjallalambi á Kópaskeri. Fyrirtækið stendur ekki vel. Fréttablaðið/PjetUr 60.000 fleiri lömbum er slátrað nú en árið 2007 SVÍÞJÓð Innan nokkurra vikna fá allt að eitt þúsund manns í Svíþjóð, sem dreifa höfundarvörðu efni ólöglega, kröfu um greiðslu upp á 2.000 sænskar krónur, eða 27 þúsund íslenskar krón- ur, fyrir hverja kvikmynd. Nýtt fyrir- tæki á vegum höfunda í skemmtana- bransanum hefur afhjúpað hverjir eru á bak við fjölda IP-talna en þegar hafa nokkur þúsund verið afhjúpuð. Greiði þeir sem fengið hafa kröfubréfin verð- ur ekki höfðað mál gegn þeim. Þegar fram líða stundir verður farið fram á hærri greiðslur frá þeim sem dreifa efni ólöglega, að því er segir í frétt á vef Dagens Nyheter. – ibs Fá rukkun fyrir að dreifa efni Fyrstu kröfubréfin verða send innan nokkurra vikna. dýraLÍf Kínverska risapandan hefur verið tekin af lista dýraverndarsam- takanna IUCN yfir dýr í útrýmingar- hættu í kjölfar áralangrar vinnu við að forða tegundinni frá að deyja út. Pandan hefur löngum verið eitt þjóðardýra Kína. Síðustu talningar benda til þess fjöldi fullorðinna dýra sé nú 1.864. Fjöldi húna er nokkuð á reiki en séu þeir taldir með slagar fjöldinn upp í tæplega 2.100. Af þeim sökum er pöndu- stofninn nú talinn við- kvæmur en ekki lengur í hættu á að útrýmast. Óttast er að gleðin gæti verið skammvinn því vísindamenn telja að loftlags- breytingar gætu fækkað bambus- trjám, helstu fæðu pandabjarna, um þriðjung á kom- andi öld. – jóe Pöndur ekki lengur í hættu 5 . S e p t e m b e r 2 0 1 6 m Á n u d a G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð 0 5 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 7 5 -9 9 5 C 1 A 7 5 -9 8 2 0 1 A 7 5 -9 6 E 4 1 A 7 5 -9 5 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 4 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.