Fréttablaðið - 05.09.2016, Blaðsíða 36
Á morgun í Eldborg - Hörpu
Undirstaðan er góður primer
Sama hvernig húð þú ert með þá
er hægt að fá primer fyrir allar
tegundir. Hvort sem þú ert með
olíukennda húð og vilt fá mattari
áferð eða ef þú ert með þurra húð.
Góður primer gerir gæfumuninn
fyrir húðina og augnlokin en farðinn
endist mun lengur á ef primerinn
er settur undir. Sjálf mæli ég með
vörunum frá Smashbox en þau eru
með margar týpur og allir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Púðra yfir olíukennd svæði
Ég er ekki mikið fyrir púður en það
heldur farðanum betur á, þá sér-
staklega fljótandi farða, og passar
upp á að hann „creasist“ ekki. Ég
mæli með að setja létt púður yfir
t-svæðið á andlitinu og önnur svæði
þar sem húðin er olíukennd.
Réttur eyeliner
Það er mikilvægt að vera með
„smudgeproof eyeliner“ á aug-
unum. Þú getur fengið þannig
blýant eða eyeliner sem þú setur á
þig með pensli. Það eru ótal margar
tegundir til en á meðan hann smit-
ast ekki þá ertu í góðum málum.
Maskarinn má ekki smitast
Þegar maður byrjar að svitna þá
getur maskarinn farið í algjöra
klessu. Þess vegna er mikilvægt á
svo stórum tónleikum að vera með
vatnsheldan maskara. Það eru til
margar tegundir frá Loréal og May-
belline sem ég mæli með.
Varablýantur heldur varalitnum
Fyrir varirnar er algjör nauðsyn að
nota varablýant undir varalitinn.
Þá fyllir þú upp í allar varirnar með
varablýantinum. Það er ekki nóg
að setja bara í útlínurnar. Svo setur
maður varalitinn yfir það. Þannig
helst liturinn ennþá flottur og endist
lengur þó svo að varaliturinn fari af.
Rétt sprey heldur farðanum á
sínum stað
Þar sem augnskugginn er ekki vatns-
heldur er síðasta skrefið afar mikil-
vægt. Þegar förðunin er tilbúin er
gott að spreyja smá „setting“
spreyi yfir andlitið. Það er í
rauninni eins og hársprey
nema fyrir andlitið, nema
auðvitað ekkert klístur.
„Setting“-spreyin eru
það allra besta til að
halda förðuninni á
svo hún fari ekki
neitt. Ég mundi
segja að það sé
lykillinn.
Hvernig skal
undirbúa sig
fyrir Justin Bieber
Stærstu tónleikar ársins fara fram á fimmtudag og föstudag í
þessari viku. Því er mikilvægt að fara að huga að því hvernig
sé best að vera undirbúinn fyrir þessu stóru stund en Sigurlaug
Dröfn Bjarnadóttir er með nokkur ráð upp í erminni.
Nú þegar það eru aðeins örfáir dagar í Justin Bieber tónleikana í Kórnum, sem
landsmenn hafa verið að bíða eftir
í tæpt ár, þá er mikilvægt að hefja
undirbúning fyrir stóra kvöldið. Það
er margt sem þarf að huga að þegar
farið er á svona stóra tónleika þar
sem mikill hiti myndast og miklar
tilfinningar blossa upp hjá mörgum
aðdáendum.
Förðunarfræðingurinn og einn
eigandi Reykjavik Makeup School,
hún Sigurlaug Dröfn Bjarnadóttir,
deilir nokkrum snilldarráðum með
lesendum Fréttablaðsins og hvað
sé gott að hafa í huga þegar undir-
búningur fyrir tónleikana fer fram.
Hún tekur einnig fram að þessi ráð
sé líka gott að hafa í huga við hvaða
tilefni sem er þegar farðinn þarf að
haldast lengi á eða í miklum hita.
5 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m Á N U D A G U r20 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
Lífið
0
5
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
7
5
-9
9
5
C
1
A
7
5
-9
8
2
0
1
A
7
5
-9
6
E
4
1
A
7
5
-9
5
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
4
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K