Fréttablaðið - 22.10.2016, Síða 8
Hrekkjavökuna
MIKIÐ ÚRVAL FYRIR
Ti
lb
oð
in
g
ild
a
21
.10
–
2
3.
10
.2
0
16
. F
yr
irv
ar
ar
e
ru
g
er
ði
r v
eg
na
m
ög
ul
eg
ra
p
re
nt
vi
lln
a.
25%
21.10-23.10.2016
SPARAÐU
AF ÖLLUM
HREKKJAVÖKUBÚNINGUM
Bandaríkin Líkurnar á sigri Hill-
ary Clinton í forsetakosningum
mælast nú um eða yfir 90 prósent,
samkvæmt þeim fjölmiðlum, fyrir-
tækjum og stofnunum sem grannt
fylgjast með skoðanakönnunum.
Bilið á milli hennar og Donalds
Trump hefur breikkað jafnt og þétt
síðustu vikurnar. Trump hefur ekki
tekist að bæta stöðu sína í þrennum
sjónvarpskappræðum sem nú er
lokið. Þvert á móti hefur staða hans
versnað.
Samkvæmt samantekt kosninga-
vefsins fivethirtyeight.com mældist
Clinton með 1,5 prósenta forskot
þegar fyrstu kappræðurnar voru
haldnar þann 26. september síðast-
liðinn. Forskot hennar var komið
upp í 5,6 prósent þegar kappræðum
númer tvö var sjónvarpað þann
9. október. Og þegar þriðju og síð-
ustu kappræðurnar voru haldnar
nú á miðvikudagskvöldið, þá var
forskot hennar orðið 6,6 prósent.
Kappræðurnar hafa allar verið
hatrammar, þar sem forsetaefnin
hafa skotið fast hvort á annað.
Trump hefur þó jafnan verið orð-
ljótari og nokkrum sinnum misst
stjórn á sér, sem greinilega hefur
ekki hjálpað honum.
Á fimmtudagskvöldið, daginn
eftir síðustu kappræðurnar, komu
þau síðan saman á góðgerðarkvöldi
kaþólsku kirkjunnar í New York og
gerðu óspart grín að hvort öðru og
sjálfu sér.
Löng hefð er fyrir uppákomu af
þessu tagi en brandararnir þóttu
misvel heppnaðir að þessu sinni.
Aðeins tvær og hálf vika er nú
til kosninga, sem verða haldnar
þriðjudaginn 8. nóvember. Afar
sjaldgæft er að fylgi breytist mikið
til kosninga þegar svona langt er
komið. Til þess að svo yrði þá þyrfti
eitthvað óvænt að koma til. Allt
bendir því til þess að Trump nái
ekki einu sinni 200 kjörmönnum
af 538 á kjörmannasamkomunum í
desember þegar forseti verður form-
lega valinn.
Fyrirkomulag forsetakosninga
í Bandaríkjunum er þannig að
kjósendur í hverju hinna 50 ríkja
Bandaríkjanna kjósa svonefnda
kjörmenn, sem koma síðan saman
og velja formlega forseta fyrir hönd
kjósenda. gudsteinn@frettabladid.is
Fátt kemur í veg fyrir sigur Clinton
Donald Trump hefur ekki getað nýtt sér þrennar sjónvarpskappræður til að bæta stöðu sína. Bilið á milli hans og Hillary Clinton
breikkar jafnt og þétt. Kappræðurnar milli forsetaefnanna hafa allar verið hatrammar. Kosið verður 8. nóvember næstkomandi.
Brandararnir fuku
á góðgerðarkvöldi
Ég er að kvefast, sem
er fullkomlega
skiljanlegt vegna þess að ég
hef setið á milli frambjóð-
endanna tveggja á stað sem
líklegast er sá kaldasti á
jörðu. Hvar er hlýnun jarðar
þegar á þarf að halda?
Dolan kardináli
Ég þurfti að hlusta á
Donald í heilar
þrennar kappræður og hann
segir að ég hafi ekkert
úthald. Þetta eru fjórir og
hálfur klukkutími. Ég hef
staðið við hliðina á Donald
lengur en nokkur af kosn-
ingastjórum hans.
Hillary Clinton
Michelle Obama
heldur ræðu og allir
hrífast. Það er frábært. Þeim
finnst hún vera stórkostleg.
Konan mín, Melania, flytur
nákvæmlega sömu ræðuna og
þá fara allir að jagast í henni.
Donald Trump
Dolan kardináli ásamt Hillary Clinton, Donald Trump og Melaniu, eiginkonu Trumps, á góðgerðarkvöldi kaþólsku kirkjunnar í
New York, þar sem brandararnir fuku. Löng hefð er fyrir góðgerðarkvöldi af þessu tagi. NorDiCpHoTos/AFp
2 2 . o k t ó B e r 2 0 1 6 L a U G a r d a G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
7
-3
5
0
4
1
B
0
7
-3
3
C
8
1
B
0
7
-3
2
8
C
1
B
0
7
-3
1
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K