Fréttablaðið - 22.10.2016, Blaðsíða 88
„Verkin á sýningunni eru unnin út frá
málningarflyksum sem ég fann þegar
ég var að gera upp íbúðina mína sem
er í húsi frá 1942,“ segir Þórgunnur
Oddsdóttir um það sem fyrir augu
ber í Mjólkurbúðinni í Listagilinu
á Akureyri. Þeir sem fylgjast með
Landanum á RÚV þekkja Þórgunni
sem dagskrárgerðarmann en hún er
Tilraunastarfsemin hluti sýningarinnar
Marglit málningarlög á dyrakörmum húss á Akureyri urðu Þórgunni Oddsdóttur, myndlistar- og dagskrárgerð-
armanni, tilefni til sköpunar nýrra listaverka sem hún sýnir í Mjólkurbúðinni í Listagilinu í dag og á morgun.
„Ég er að reyna að mála þetta eins og lag fyrir lag, eins og flyksurnar eru, þær eru
allar hver með sínum lit, þó alltaf skíni í annan lit á bak við,“ segir Þórgunnur.
Mynd/Auðunn níelsson
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
A F S L ÁT T U R
25-50%
EKKI MISSA AF ÞESSU
R ÝM I N G A R S A L A
STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR, O.FL.
RÝMUM FYRIR
NÝJUM VÖRUM
Seljum í stuttan tíma eldri
gerðir af rúmum og öðrum
vörum með veglegum afslætti.
Við erum að taka inn mikið magn af nýjum
vörum og rýmum til með því
að selja eldri gerðir og
sýningareintök
með góðum
afslætti.
H E I L S U R Ú M O G R Ú M G A F L A R S V E F N S Ó FA R
LÝ
KU
R
Í D
AG
LA
UG
AR
DA
G
líka myndlistarmaður og kann að
skapa úr því sem í kring um hana er.
Hér lýsir hún því nýjasta.
„Þegar maður byrjar að skrapa
málningu af dyrakörmum og víðar
þá flagnar hún oft í skemmtileg form
og ég fór að safna þessum flyksum
saman, mér þótti þær svolítið fal-
legar og fannst vera saga í þeim,
því ég gat rakið mig aftur í tímann.
Svo voru margar þeirra eins og fjöll
í laginu. „Finna má líkindi með
lögum af málningu sem orðið hafa
til á áratugum og jarðlögum sem
ýmislegt má lesa úr. Mig langaði að
vinna eitthvað með þetta en vissi í
fyrstu ekki hvernig ég ætti að koma
því til skila,“ lýsir Þórgunnur sem
kveðst hafa byrjað á að búa til verk
úr málningarflyksunum sjálfum sem
eru í 20 litum. Það er á sýningunni
– innrammað. „Svo fór ég í Flügger-
liti, skoðaði litakortið og reyndi að
kaupa sömu tóna.“
Ekki segir Þórgunnur það hafa
verið týpíska landslagsliti heldur
pastelliti sem voru í húsinu hennar.
„Ég setti mér þá reglu að nota litina
hreina, en ekki blanda þá. Formin
eru einföld og ég er að reyna að gera
þetta eins og flyksurnar, þær eru allar
hver með sínum lit, þó alltaf skíni svo
í annan lit á bak við.“
En eru einhver líkindi með fjöllun-
um á myndunum og öðrum sem hún
hefur séð eða kannast við? „Nei, ég
hef forðast að reyna að gera einhver
ákveðin fjöll en það er bara gaman ef
fólk sér eitthvað út úr þeim sem það
þekkir.“
Sýningin var í raun opnuð um
síðustu helgi. Þá setti Þórgunnur upp
vinnustofu í galleríinu og hefur verið
síðustu kvöld, eftir vinnu á RÚV, að
mála ný málverk sem eru innblásin
af þeim litlu landslagsmálverkum
sem hún fann í flyksunum. Hvernig
hefur gengið?
„Ég er alveg komin með slatta. Fólk
hefur aðeins verið að reka inn nefið
í vikunni og ég sé að það tengir við
það sem ég er að gera, þannig að þetta
hefur verið skemmtilegt. Ég var búin
að vera að glíma við viðfangsefnið
heima en svo fannst mér bara gaman
að gera tilraunastarfsemina að hluta
sýningarinnar, hafa ferlið með í stað
þess að sýna verkin fullsköpuð. Nú er
ég hætt og ætla að sýna afraksturinn
í dag og á morgun í Mjólkurbúðinni
sem er opin frá 14 til 17.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Það var Bubbi Morthens sem hlaut
Gullnöglina, gítarverðlaun Björns
Thoroddsen, í ár fyrir áhrif sín á
íslenskan gítarleik. Verðlaunin voru
afhent í tengslum við gítarhátíð
Björns sem verður í Háskólabíói í
kvöld, laugardagskvöldið 22. októ-
ber. Meðal þeirra sem þar koma fram
er bandaríski blúsgítarleikarinn
Robben Ford, sem er kominn hingað
til lands með eigin hljómsveit.
Björn er einmitt að æfa þegar í
hann er hringt. Hann segir Ford
hafa fyrst komið til Íslands í fyrra
í sömu erindum. „Þegar ég var að
keyra hann út á flugvöll vakti hann
máls á því að við mundum gera plötu
saman. Robben Ford er stórt nafn í
Bandaríkjunum, hann hefur unnið
með Bob Dylan og mörgum stór-
stjörnum. Ég tók hann ekki alvarlega
en svo hringdi hann skömmu seinna
og spurði hvaða lög við ættum að
hafa á plötunni. Það varð úr að ég fór
út og við spiluðum saman og tókum
upp. Hann vildi hafa söngvara og ég
stakk upp á tvítugri stúlku, Önnu
Þuríði Sigurðardóttur, sem ég hafði
heyrt í á Bolungarvík. Hann féll líka
fyrir röddinni hennar, svo það small
og hún verður með okkur á tónleik-
unum í kvöld.“ – gun
Bubbi Morhtens hlaut Gullnöglina
Bubbi er kominn í hóp þeirra snillinga sem fengið hafa Gullnöglina. Hinir eru
Ólafur Gaukur, Jón Páll Bjarnason, Björgvin Gíslason og Gunnar Þórðarson.
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r44 M e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
6
-F
E
B
4
1
B
0
6
-F
D
7
8
1
B
0
6
-F
C
3
C
1
B
0
6
-F
B
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K