Fréttablaðið - 22.10.2016, Blaðsíða 28
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r
Tvö kjörtímabil Baracks Obama
200
150
100
50
0
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016
4. nóvember 2008
er Obama kosinn
forseti Bandaríkjanna með
52,9 prósentum atkvæða.
20. janúar 2009
tekur Obama formlega við emb-
ætti Bandaríkjaforseta.
22. janúar 2009
gefur Obama út tilskipun um að
Guantanamo-fangabúðunum verði
lokað.
22. janúar 2009
gefur Obama út tilskipun um að
pyntingar á vegum bandarískra
stjórnvalda heyri sögunni til.
17. febrúar 2009
undirritar Obama lög um
787 milljarða dala
framlag úr ríkissjóði til að koma
efnahagslífinu í gang á ný eftir
kreppuna.
27. febrúar 2009
fullyrðir Obama að bandaríski
herinn sé hættur öllum hernaðar
aðgerðum í Írak. Tugir þúsunda
bandarískra hermanna eru þó
áfram Írökum til ráðgjafar til árs-
loka 2011.
Fjöldi fanga í Guantanamo
Vinsældir Obama Hlutfall þeirra sem segjast ánægðir með frammistöðu hans
65
60
55
50
45
40
35
30
25
22. júLÍ 2011
staðfestir Obama að samkyn-
hneigðir hermenn þurfi ekki lengur
að fara leynt með kynhneigð sína.
20. nóvember 2014
gefur Obama út forsetatilskipun
um innflytjendur, sem meðal
annars auðveldar ólöglegum inn
flytjendum að fá dvalarleyfi. Í júní
2016 ógildir Hæstiréttur að hluta
þessa tilskipun.
14. júLÍ 2015
gerir Bandaríkjastjórn samning við
Íran, sem gerir Írönum kleift að
koma sér upp kjarnorkubúnaði í
friðsamlegum tilgangi en
bannar þeim að koma
sér upp kjarnorku-
vopnum.
16. mars 2016
útnefnir Obama merick Garland
í embætti hæstaréttardómara
eftir fráfall antonins scalia. Þingið
hefur enn ekki staðfest útnefn-
inguna.
3. september 2016
staðfestir Obama loftslags-
samninginn sem gerður var í París í
desember 2015.
8. nóvember 2016
verður kosinn nýr forseti í Banda-
ríkjunum.
20. janúar 2017
tekur nýr forseti við völdum.
4. júnÍ 2009
heldur Obama ræðu í Kaíró sem
átti að verða upphafið að bættum
samskiptum vesturlanda við mús-
limaríki.
9. október 2009
er tilkynnt að Obama hljóti
friðarverðlaun nóbels.
23. mars 2010
samþykkir Bandaríkjaþing lög
um víðtæka heilbrigðisþjónustu
(Obama care).
1. maÍ 2011
drepa banda-
rískir sérsveitar-
menn hryðju-
verkaforingjann
osama bin
Laden í pakistan.
22. júnÍ 2011
tilkynnir Obama að herlið banda
ríkjanna í afganistan verði smám
saman kallað heim og afganski her-
inn taki við hlutverki þess að fullu
árið 2014. enn eru þar þúsundir
bandarískra hermanna.
2009–2011 2011–2013 2013–2015 2015–2016
Öldungadeild
Fulltrúadeild
1. kjörtÍmabiL 2. kjörtÍmabiL
Meirihlutavald í deildum
Bandaríkjaþings
Barack Obama hafði verið forseti Bandaríkjanna í aðeins tæpa tíu mánuði þegar honum var tilkynnt að hann fengi friðarverðlaun Nóbels.
Mörgum þótti þessi ákvörðun
norsku Nóbelsnefndarinnar undar
leg en hún sýnir hve miklar vonir
voru bundnar við Obama í byrjun.
Kosningabarátta hans einkenndist
af mikilli bjartsýni og loforðum um
umbætur og endurnýjun stjórnmál
anna.
„Yes, we can!“ var slagorðið og
heimsbyggðin hreifst með. Þar á
meðal norska Nóbelsnefndin sem
veitti honum verðlaun fyrir viðleitn
ina, áður en búið var að framkvæma.
Obama hefur nú búið í Hvíta hús
inu í nærri átta ár, tvö kjörtímabil.
Hann hverfur þaðan á braut í janúar
þegar nýr forseti tekur við keflinu.
betri heimur í vændum
Obama ætlaði að loka fangabúðunum
alræmdu í Guantanamo á Kúbu. Hann
ætlaði að stöðva allar pyntingar á
vegum bandarískra stjórnvalda.
Með ræðu sem hann hélt í Kaíró
í Egyptalandi 4. júní 2009, þá ekki
búinn að sitja hálft ár á forseta
stól, vakti hann vonir um betri tíð á
alþjóðavettvangi. Bandaríkin mundu
beita sér fyrir betri samskiptum
við múslimaríki, hætta hernaði
sínum bæði í Afganistan og Írak og
reyna virkilega að gera sitt besta til
að sætta Ísraela og Palestínumenn.
Með þessu mundu hryðjuverkahópar
smám saman lognast út af: „Því fyrr
sem öfgamennirnir verða einangraðir
og óvelkomnir í samfélögum múslima,
því fyrr verðum við öll öruggari,“ sagði
forsetinn.
norska hjálparhöndin
Þessi ræða og fleiri svipuð orð, sem
Obama lét falla við ýmis tækifæri, áttu
ekki síst þátt í því að Nóbelsnefndin
ákvað að treysta honum fyrir hinum
virtu verðlaunum. Nefndin vildi styðja
Obama til góðra verka, þótt þau væru
ekki orðin að veruleika.
Sex árum síðar, haustið 2015, sendi
norski sagnfræðingurinn Geir Lunde
stad frá sér æviminningar sínar, en
hann var framkvæmdastjóri norsku
Nóbelstofnunarinnar þegar Obama
fékk verðlaunin.
Þar segist hann hafa efasemdir um
að þessa ákvörðun: „Eftir á að hyggja
getum við sagt að rökin fyrir því að
rétta ætti Obama hjálparhönd hafi
aðeins að hluta til verið rétt,“ skrifar
Lundestad. Árangurinn hafi ekki orðið
sá sem Nóbelsnefndin hafði vonast til.
jafn ófriðvænlegt og áður
Stóru loforðin runnu sum harla fljótt
út í sandinn. Honum hefur ekki tek
ist að loka Guantanamobúðunum
alræmdu á Kúbu.
Og þótt Bandaríkjaher hafi verið
kallaður heim að mestu frá Afganistan
og Írak þá geisa þar enn harðvítug átök
og hin grimma borgarastyrjöld í Sýr
landi braust út í beinu framhaldi af
ólgunni í Írak.
Ekkert hefur þokast í harmleiknum
í Palestínu, þar sem Ísrael á enn í sínu
eilífa stríði við Palestínumenn.
andsnúinn meirihluti á þingi
Að undanskildum tveimur fyrstu
árum forsetatíðar Obama hefur hann
þurft að kljást við meirihlutavald and
stæðinga sinna á þingi.
Forseti Bandaríkjanna hefur í raun
lítil völd heima fyrir nema hafa þing
heim á sínu bandi og geta treyst á
stuðning þar við þau mál sem hann
vill hrinda í framkvæmd.
Ímyndin af Obama hefur því mótast
mjög af því hve litlu hann hefur getað
áorkað. Í samanburði við stóru lof
orðin í upphafi verða efndirnar enn
átakanlegri, sem eflaust hefur átt þátt í
því að vinsældir hans minnkuðu hratt
og hafa haldist frekar litlar lengst af.
Heima fyrir getur hann þó státað af
ýmsum afrekum, þrátt fyrir andbyr
inn, ekki síst á innanlandsvettvangi
bandarískra stjórnmála.
sumt heppnaðist
Þar má helst nefna að eitt mikilvæg
asta loforðið innanlands var að koma
á heilbrigðisþjónustu fyrir alla Banda
ríkjamenn á viðráðanlegu verði, en
þessu höfðu Demókratar reynt að ná
í gegn á þingi áratugum saman.
Andstæðingar hans hamra hins
vegar á því að þetta afrek hans sé eitt
það allra versta sem Obama hafi gert á
öllum sínum ferli.
Hvað sem því líður þá hafa vinsæld
ir Obama aukist töluvert nú á síðustu
mánuðum, undir lok seinna kjörtíma
bilsins. Nú er svo komið að rúmlega
50 prósent aðspurðra segja hann hafa
staðið sig vel í embætti. Þetta er minna
en í byrjun, þegar meira en 60 prósent
voru ánægð með hann, en megnið af
ferlinum hefur ánægja Bandaríkja
manna með hann verið nálægt 40 pró
sentum, eða rétt rúmlega það.
Ætlaði að breyta svo miklu
Miklar vonir voru bundnar við Barack Obama þegar hann var kosinn forseti Bandaríkjanna fyrir átta árum. Stóru
loforðin runnu sum út í sandinn en vinsældir forsetans hafa verið að aukast á ný síðustu vikur hans í embættinu.
Eftir á að hyggja gEt-
um við sagt að rökin
fyrir því að rétta ætti
Obama hjálparhönd
hafi aðEins að hluta
til vErið rétt.
Geir Lundestad,
fyrrverandi
framkvæmdastjóri
norsku Nóbel-
stofnunarinnar
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
Demókratar Demókratar repúblikanarDemókratar
Demókratar repúblikanar repúblikanar repúblikanar
barack obama á skrifstofu sinni í Hvíta húsinu 28. janúar 2009. norDicpHotos/afp
28 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
0
7
-2
6
3
4
1
B
0
7
-2
4
F
8
1
B
0
7
-2
3
B
C
1
B
0
7
-2
2
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K