Fréttablaðið - 22.10.2016, Page 28

Fréttablaðið - 22.10.2016, Page 28
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r Tvö kjörtímabil Baracks Obama 200 150 100 50 0 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 4. nóvember 2008 er Obama kosinn forseti Bandaríkjanna með 52,9 prósentum atkvæða. 20. janúar 2009 tekur Obama formlega við emb- ætti Bandaríkjaforseta. 22. janúar 2009 gefur Obama út tilskipun um að Guantanamo-fangabúðunum verði lokað. 22. janúar 2009 gefur Obama út tilskipun um að pyntingar á vegum bandarískra stjórnvalda heyri sögunni til. 17. febrúar 2009 undirritar Obama lög um 787 milljarða dala framlag úr ríkissjóði til að koma efnahagslífinu í gang á ný eftir kreppuna. 27. febrúar 2009 fullyrðir Obama að bandaríski herinn sé hættur öllum hernaðar­ aðgerðum í Írak. Tugir þúsunda bandarískra hermanna eru þó áfram Írökum til ráðgjafar til árs- loka 2011. Fjöldi fanga í Guantanamo Vinsældir Obama Hlutfall þeirra sem segjast ánægðir með frammistöðu hans 65 60 55 50 45 40 35 30 25 22. júLÍ 2011 staðfestir Obama að samkyn- hneigðir hermenn þurfi ekki lengur að fara leynt með kynhneigð sína. 20. nóvember 2014 gefur Obama út forsetatilskipun um innflytjendur, sem meðal annars auðveldar ólöglegum inn­ flytjendum að fá dvalarleyfi. Í júní 2016 ógildir Hæstiréttur að hluta þessa tilskipun. 14. júLÍ 2015 gerir Bandaríkjastjórn samning við Íran, sem gerir Írönum kleift að koma sér upp kjarnorkubúnaði í friðsamlegum tilgangi en bannar þeim að koma sér upp kjarnorku- vopnum. 16. mars 2016 útnefnir Obama merick Garland í embætti hæstaréttardómara eftir fráfall antonins scalia. Þingið hefur enn ekki staðfest útnefn- inguna. 3. september 2016 staðfestir Obama loftslags- samninginn sem gerður var í París í desember 2015. 8. nóvember 2016 verður kosinn nýr forseti í Banda- ríkjunum. 20. janúar 2017 tekur nýr forseti við völdum. 4. júnÍ 2009 heldur Obama ræðu í Kaíró sem átti að verða upphafið að bættum samskiptum vesturlanda við mús- limaríki. 9. október 2009 er tilkynnt að Obama hljóti friðarverðlaun nóbels. 23. mars 2010 samþykkir Bandaríkjaþing lög um víðtæka heilbrigðisþjónustu (Obama care). 1. maÍ 2011 drepa banda- rískir sérsveitar- menn hryðju- verkaforingjann osama bin Laden í pakistan. 22. júnÍ 2011 tilkynnir Obama að herlið banda­ ríkjanna í afganistan verði smám saman kallað heim og afganski her- inn taki við hlutverki þess að fullu árið 2014. enn eru þar þúsundir bandarískra hermanna. 2009–2011 2011–2013 2013–2015 2015–2016 Öldungadeild Fulltrúadeild 1. kjörtÍmabiL 2. kjörtÍmabiL Meirihlutavald í deildum Bandaríkjaþings Barack Obama hafði verið forseti Bandaríkjanna í aðeins tæpa tíu mánuði þegar honum var til­kynnt að hann fengi friðarverðlaun Nóbels. Mörgum þótti þessi ákvörðun norsku Nóbelsnefndarinnar undar­ leg en hún sýnir hve miklar vonir voru bundnar við Obama í byrjun. Kosningabarátta hans einkenndist af mikilli bjartsýni og loforðum um umbætur og endurnýjun stjórnmál­ anna. „Yes, we can!“ var slagorðið og heimsbyggðin hreifst með. Þar á meðal norska Nóbelsnefndin sem veitti honum verðlaun fyrir viðleitn­ ina, áður en búið var að framkvæma. Obama hefur nú búið í Hvíta hús­ inu í nærri átta ár, tvö kjörtímabil. Hann hverfur þaðan á braut í janúar þegar nýr forseti tekur við keflinu. betri heimur í vændum Obama ætlaði að loka fangabúðunum alræmdu í Guantanamo á Kúbu. Hann ætlaði að stöðva allar pyntingar á vegum bandarískra stjórnvalda. Með ræðu sem hann hélt í Kaíró í Egyptalandi 4. júní 2009, þá ekki búinn að sitja hálft ár á forseta­ stól, vakti hann vonir um betri tíð á alþjóðavettvangi. Bandaríkin mundu beita sér fyrir betri samskiptum við múslimaríki, hætta hernaði sínum bæði í Afganistan og Írak og reyna virkilega að gera sitt besta til að sætta Ísraela og Palestínumenn. Með þessu mundu hryðjuverkahópar smám saman lognast út af: „Því fyrr sem öfgamennirnir verða einangraðir og óvelkomnir í samfélögum múslima, því fyrr verðum við öll öruggari,“ sagði forsetinn. norska hjálparhöndin Þessi ræða og fleiri svipuð orð, sem Obama lét falla við ýmis tækifæri, áttu ekki síst þátt í því að Nóbelsnefndin ákvað að treysta honum fyrir hinum virtu verðlaunum. Nefndin vildi styðja Obama til góðra verka, þótt þau væru ekki orðin að veruleika. Sex árum síðar, haustið 2015, sendi norski sagnfræðingurinn Geir Lunde­ stad frá sér æviminningar sínar, en hann var framkvæmdastjóri norsku Nóbelstofnunarinnar þegar Obama fékk verðlaunin. Þar segist hann hafa efasemdir um að þessa ákvörðun: „Eftir á að hyggja getum við sagt að rökin fyrir því að rétta ætti Obama hjálparhönd hafi aðeins að hluta til verið rétt,“ skrifar Lundestad. Árangurinn hafi ekki orðið sá sem Nóbelsnefndin hafði vonast til. jafn ófriðvænlegt og áður Stóru loforðin runnu sum harla fljótt út í sandinn. Honum hefur ekki tek­ ist að loka Guantanamo­búðunum alræmdu á Kúbu. Og þótt Bandaríkjaher hafi verið kallaður heim að mestu frá Afganistan og Írak þá geisa þar enn harðvítug átök og hin grimma borgarastyrjöld í Sýr­ landi braust út í beinu framhaldi af ólgunni í Írak. Ekkert hefur þokast í harmleiknum í Palestínu, þar sem Ísrael á enn í sínu eilífa stríði við Palestínumenn. andsnúinn meirihluti á þingi Að undanskildum tveimur fyrstu árum forsetatíðar Obama hefur hann þurft að kljást við meirihlutavald and­ stæðinga sinna á þingi. Forseti Bandaríkjanna hefur í raun lítil völd heima fyrir nema hafa þing­ heim á sínu bandi og geta treyst á stuðning þar við þau mál sem hann vill hrinda í framkvæmd. Ímyndin af Obama hefur því mótast mjög af því hve litlu hann hefur getað áorkað. Í samanburði við stóru lof­ orðin í upphafi verða efndirnar enn átakanlegri, sem eflaust hefur átt þátt í því að vinsældir hans minnkuðu hratt og hafa haldist frekar litlar lengst af. Heima fyrir getur hann þó státað af ýmsum afrekum, þrátt fyrir andbyr­ inn, ekki síst á innanlandsvettvangi bandarískra stjórnmála. sumt heppnaðist Þar má helst nefna að eitt mikilvæg­ asta loforðið innanlands var að koma á heilbrigðisþjónustu fyrir alla Banda­ ríkjamenn á viðráðanlegu verði, en þessu höfðu Demókratar reynt að ná í gegn á þingi áratugum saman. Andstæðingar hans hamra hins vegar á því að þetta afrek hans sé eitt það allra versta sem Obama hafi gert á öllum sínum ferli. Hvað sem því líður þá hafa vinsæld­ ir Obama aukist töluvert nú á síðustu mánuðum, undir lok seinna kjörtíma­ bilsins. Nú er svo komið að rúmlega 50 prósent aðspurðra segja hann hafa staðið sig vel í embætti. Þetta er minna en í byrjun, þegar meira en 60 prósent voru ánægð með hann, en megnið af ferlinum hefur ánægja Bandaríkja­ manna með hann verið nálægt 40 pró­ sentum, eða rétt rúmlega það. Ætlaði að breyta svo miklu Miklar vonir voru bundnar við Barack Obama þegar hann var kosinn forseti Bandaríkjanna fyrir átta árum. Stóru loforðin runnu sum út í sandinn en vinsældir forsetans hafa verið að aukast á ný síðustu vikur hans í embættinu. Eftir á að hyggja gEt- um við sagt að rökin fyrir því að rétta ætti Obama hjálparhönd hafi aðEins að hluta til vErið rétt. Geir Lundestad, fyrrverandi framkvæmdastjóri norsku Nóbel- stofnunarinnar Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is Demókratar Demókratar repúblikanarDemókratar Demókratar repúblikanar repúblikanar repúblikanar barack obama á skrifstofu sinni í Hvíta húsinu 28. janúar 2009. norDicpHotos/afp 28 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 0 7 -2 6 3 4 1 B 0 7 -2 4 F 8 1 B 0 7 -2 3 B C 1 B 0 7 -2 2 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 2 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.