Fréttablaðið - 22.10.2016, Page 27
Ekki komin
langt
Ingibjörg Eyþórsdóttir tón-
listarfræðingur og íslensku-
fræðingur
Ingibjörg var sautján ára gömul á kvennafrídeginum 1975.„Bærinn var troðinn af konum á
öllum aldri og það ríkti mikil gleði og
samstaða þvert á aldurshópa. Það er
sú tilfinning sem situr eftir,“ segir Ingi-
björg. „Það var mikill hugur í konum,
ekki síst þeim ungu eftir þennan dag,
að nú færi eitthvað að gerast og jafn-
réttið gæti ekki verið langt undan. En
þetta var víst ekki alveg svona einfalt.“
Þegar Ingibjörg er spurð að því
hvað hún telji að hafi áunnist í
kvennabaráttu með fundinum svarar
hún: „Þegar frídagurinn var haldinn í
fyrsta sinn voru konur enn að berjast
fyrir því að það þætti eðlilegt að þær
væru á vinnumarkaði og vistun á leik-
skóla. Giftar konur fengu varla inni
fyrir börn sín á leikskóla og verka-
skipting á heimilum var þannig að
uppeldi og húsverk hvíldu á konum.
Fundurinn kveikti von um að konur
gætu breytt hlutunum og haft sjálfar
áhrif á gang mála, bara ef þær stæðu
saman. Nú er eðlilegt að konur séu á
vinnumarkaði, en samt erum við ekki
komin mikið lengra í dag. Konur eru
ódýrt vinnuafl. Það er mikið búið að
ræða launamálin, setja þau á oddinn
margoft og það virðist ganga ótrúlega
illa að ná settum markmiðum.
Konur eru of valdalitlar í sam-
félaginu og þurfa sífellt að berjast
fyrir sömu hlutum, sem er vitanlega
lýjandi. Við erum því ekki komin
nógu langt þótt konur hafi jöfn rétt-
indi samkvæmt lagabókstafnum. Það
þarf að halda vökunni, það er auðvelt
að týna áunnum réttindum og marg-
oft hefur komið bakslag í stöðuna,
viðhorf og lagabókstafur er tvennt
ólíkt. Þá er glerþakið enn til staðar
í mörgum starfsgreinum og réttur
kvenna til að skilgreina sig sjálfar er
ekki virtur, sem er kannski það sem er
mest pirrandi, enda er samfélagið rót-
gróið karlasamfélag og leikreglurnar
skrifaðar af þeim.“
Ingibjörg er hrifin af krafti ungra
kvenna í jafnréttisbaráttu og segir
það færa sér trú á að breytinga gæti
verið að vænta, þrátt fyrir allt. „Ungu
konurnar eru að minnsta kosti ekki
tilbúnar til þess að láta valta yfir sig,
sem er það sem skiptir máli til að
halda vökunni.
Staða kvenna í samfélaginu hefur
gengið mikið í bylgjum síðan 1975.
Stundum er kraftur í baráttunni og
meðvitund í samfélaginu en svo koma
tímar þar sem maður skilur ekki hvað
er að gerast. Mér hefur fundist barátta
ungra kvenna mjög öflug og þær nota
frísklegar og skemmtilegar aðferðir til
að vekja samfélagið til umhugsunar.
Druslugangan er t.d. frábær aðferð til
þess að beina skömminni í kynferð-
isafbrotum til gerenda og sömuleiðis
frelsun geirvörtunnar, þar sem konur
vildu endurheimta brjóstin á sér úr
klóm klámvæðingarinnar og netof-
sókna, í báðum þessum tilvikum eru
konur að berjast fyrir yfirráðarétti yfir
eigin líkama og gegn því að verið sé að
skilgreina konur fyrir þær.“
Rekin heim úr skólanum berbrjósta
Silja Snædal menntaskólanemi
Silja stundar nám í Menntaskól-anum í Hamrahlíð og tekur ríkan þátt í femínísku starfi.
„Ég fékk mjög femínískt uppeldi. Er
alin upp af móður minni, Drífu Snæ-
dal, og hún kom inn hjá mér þessari
réttlætistilfinningu. Ég hef alltaf verið
ósátt við ójafna stöðu kynjanna í sam-
félaginu. Þegar ég var komin í Mennta-
skólann í Hamrahlíð bauð ég mig fram
í stjórn femínistafélagsins. Sat þar í tvö
ár. Svo þegar byltingin Free the Nipple
hófst þá tók ég þátt í henni af miklum
krafti. Meðal annars með því að mæta
berbrjósta í skólann. Ég var rekin út og
fannst það að sjálfsögðu mjög óréttlátt
og gerði mikið mál úr því. Ég skrifaði
grein og hélt erindi um það mál.“
Henni finnst ójafnrétti stöðugt
finna sér nýjan farveg. Nú brjótist
það til dæmis út með ofbeldi og
kúgun gegn konum á netinu. „Einu
sinni birtist það helst í staðalmyndum
kynjanna sem voru í hlutverkum.
Konur áttu að vera heima við. Karl-
menn á vinnumarkaðnum. Svo þegar
þær koma á vinnumarkaðinn verður
mótstaða, þær fá ekki jafnhá laun og fá
ekki enn, sem er kveikjan að kvenna-
frídeginum.
En ójafnréttið virðist finna sér nýja
farvegi. Nú erum við að glíma við
klámvæðingu, stafrænt ofbeldi og
hrelliklám. Það er mjög mikilvægt
að þótt það virðist sem við ofurefli
sé að etja að láta ekki deigan síga. Við
þurfum alltaf að láta heyra í okkur og
vera vakandi og berjast við hvert tæki-
færi. Því það er þess virði,“ segir Silja.
Mér hefur fundist
barátta ungra kvenna
Mjög öflug og þær
nota frísklegar og
skeMMtilegar aðferðir
til að vekja saMfélagið
til uMhugsunar.
nú eruM við að glíMa
við kláMvæðingu,
stafrænt ofbeldi
og hrellikláM.
Á S T I N Í
Ö L L U M S Í N U M
M Y N D U M
„Stundum finnst
manni Steinar Bragi
hafa meiri hæfileika í litla
putta en margir aðrir
í öllum skrokknum.““
Egill Helgason / Kiljan
(um Himininn yfir Þingvöllum)
w w w.for lagid. is | Bókabúð Forlagsins | F isk islóð 39
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 27l A U g A R D A g U R 2 2 . o k T ó B e R 2 0 1 6
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
7
-2
B
2
4
1
B
0
7
-2
9
E
8
1
B
0
7
-2
8
A
C
1
B
0
7
-2
7
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K