Fréttablaðið - 22.10.2016, Page 30

Fréttablaðið - 22.10.2016, Page 30
Það er kannski spurning fyrir Paul Pogba að hætta að reyna vinna Saloon D’or og setja metnað sinn á Baloon D’or,“ skrifaði reiður stuðnings-maður Manchester United á Twitter eftir leik liðsins gegn Liver- pool. Pogba hefur nú spilað 10 leiki með Manchester-liðinu og lítið sýnt að hann sé peninganna virði, þó hann hafi vissu- lega skorað tvö í Evrópudeildinni í vik- unni. Hann er dýrasti knattspyrnumaður heims og hefur fengið að vera djúpur miðjumaður, sóknarsinnaður og jafnvel Wayne Rooney hefur þurft að setjast á bekkinn til að koma Pogba í gang. Vissulega sást því bregða fyrir í leikn- um gegn Liverpool hvað hann er ofboðs- lega góður í fótbolta. En heilt yfir var hann slakur líkt og það sem af er tíma- bilinu. Kannski eru væntingarnar sem gerðar eru til hans bara allt of miklar. Hann er jú ekki nema 23 ára. #Pogback snerist um endurkomu hans til Old Trafford en það sem af er leiktíðinni hefur lítið verið að frétta. Það er allavega meira að frétta af hárinu á honum en frammistöðunni á vellinum, svo mikið er ljóst. Þess má geta að hárið á honum hefur verið ljóst. Þaðan kemur reiði stuðningsmanna. Glyslegur lífsstíll hans og sífelldar breytingar á hárstíl er farið að fara í taugarnar á stuðnings- mönnum. Rétt eins og í svo mörgu öðru þá þarf að vinna sér inn montrétt. Mourinho byrjaði að nota Pogba sem frekar varnarsinnaðan miðjumann í 4-2- 3-1 leikkerfinu. Hann var frábær í einum hálfleik gegn Leicester þar sem hann skoraði sitt eina mark í deildinni fyrir rauðu djöflana með skalla. Hann hefur ekki enn búið til mark. Gegn Liverpool spilaði hann í tíunni, eins og það kallast. Hann virtist ekki í neinum takti við leik- inn og aðrir leikmenn bíða eftir tækifæri sínu til að spila í þessari skemmti- legustu stöðu knattspyrn- unnar. Það var líkt o g þ e g a r Pogba mætti til að taka þátt í sóknar- leiknum, þá var sóknin búin að færa sig annað. Hann var alltaf skrefi á eftir. Kröfurnar eru miklar til Pogba en það er enginn að búast við að hann skori yfir 20 mörk á hverju tímabili. Mourinho sagði sjálfur þegar Pogba var kynntur til leiks að hann byggist við góðri frammi- stöðu. Allt annað væri bónus. „Ég er ekki að búast við að hann sóli fimm varnar- menn og þrumi boltanum upp í skeytin. Ég býst við að hann velji rétta möguleik- ann og haldi tempói á okkar sóknarleik með einföldum hætti.“ Því miður fyrir Mourinho er ekkert af þessu að gerast. Og það er svolítið áhyggjuefni að leikmaður sem kostaði 12,5 milljarða króna skuli vera svona slakur á kostnað annarra sem þurfa að sætta sig við tréverkið. Þess má geta að Öryrkjabandalagið reiknaði eitt sinn að frítt heilbrigðiskerfi hér á landi myndi kosta um 6,5 milljarða á ári. Pogba hefur aðeins fundið netmöskv- ana einu sinni í deildinni. Það er ekki góð tölfræði en mörk hafa svo sem aldr- ei verið hans aðalsmerki. Áður en hann gekk í raðir Manchester-liðsins hafði hann skorað 34 mörk í 178 leikjum með Juventus. Hann hefur heldur ekki lagt upp mark það sem af er þótt hann hafi vissulega reynt. Zlatan Ibrahimovic hefði auðvitað átt að skora gegn Liverpool eftir tilþrif Pogba. Hann var með 32 stoðsendingar í 178 leikjum með Juventus. Hann er ekki einu sinni grófur það sem af er. Hann er með eitt gult spjald og hefur brotið af sér 15 sinnum. Í ein- vígjum hefur hann aðeins unnið 66 af 120. Miðað við styrk hans þá má gera meiri kröfur. Miklu meiri. Af 465 sendingum hans hefur hann hitt á samherja í 82,5% tilfella en aðeins 12 sendingar hafa búið til færi. Pogba er frábær með boltann og þegar hann kemst á ferðina stoppa hann fáir þótt margir hafi reynt. Fimm af 21 skoti hans hafa ratað á rammann og eina markið hans í deildinni kom með höfðinu. Þó að fótbolti sé ekki tölfræðiíþrótt þá eru tölurnar ekki góðar hjá Pogba og hann er langt frá því að standa undir 89 milljóna punda verðmiðanum. Stuðningsmenn Man chester-liðsins vona að frammistaða hans í Evrópudeildinni snúi þessu við og Pogba sé loksins kom- inn til baka. Dýrt spaug sem enginn hlær að Á leikvanginum Tölurnar gegn liverpool Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is NafN: Paul Pogba félag: Manchester United TreyjuNúmer: 6 aldur: 23 ára 15-03-1993 Hæð: 191 cm ÞyNgd: 84 kg laNd: Frakkland paul pogba hefur ekki látið ljós sitt skína í bún- ingi Manchester United það sem af er tíma- bili. Mörkin tvö í Evrópudeildinni gætu þó róað stuðningsmenn.. 38 sendingar 71% heppnaðar 63 snertingar 46% einvígi unnin 2 skot 1 færi skapað 1 snerting inni í vítateig liverpool Pogba er ekki hræd dur við að skarta nýju o g óhefðbundnu útlit i. Pogba var stórkost legur gegn Íslandi í 8 liða úr- slitum á EM. Pogba s krifaði undir samn ing við Man. Utd sem færir honu m um 290 þúsund pund, 41 milljón kr óna, á viku. 2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r30 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 1 0 4 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 0 7 -1 2 7 4 1 B 0 7 -1 1 3 8 1 B 0 7 -0 F F C 1 B 0 7 -0 E C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 0 4 s _ 2 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.