Fréttablaðið - 22.10.2016, Síða 46

Fréttablaðið - 22.10.2016, Síða 46
| AtvinnA | 22. október 2016 LAUGARDAGUR8 SÉRNÁMSSTÖÐUR Í HEIMILISLÆKNINGUM Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) auglýsir 2 sérnámsstöður í heimilis- lækningum lausar til umsóknar. Aðalstarfsstöð er á Egilsstöðum og yfirlæknir þar er næsti yfirmaður. HSA hefur langa reynslu af kennslu læknanema, kandídata og sérfræðinema í heimilislækningum. Námið verður byggt á marklýsingu fyrir sérnámslækna í heimilislækningum. Við útfærslu marklýsingarinnar verður lögð áhersla á þann fjölbreytileika sem héraðslækningar kalla eftir og samtímis að tryggja aðgengi nemans að skipulagðri hópkennslu / námi fyrir sérfræðinemana. Báðar stöður eru auglýstar til þriggja ára og á námstímanum er gert ráð fyrir námsdvöl á heilsugæslu í Skotlandi og Norður-Noregi, eina viku á hvorum stað. Kennslustjóri HSA aðstoðar nema við skipulag sjúkrahúss hluta námsins með áherslur héraðslækningar (Rural Medicine) í huga. Frekari upplýsingar um stöður og umsókn Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi, umsóknarfrestur er til 30.11. 2016 og stöðurnar lausar frá 15.01. 2017 eða eftir samkomulagi. Kjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsóknum skal skila á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis; www.landlaeknir.is, til HSA, mannauðsstjóra, Lagarási 22, 700 Egilsstöðum. Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og starfsleyfi og ef við á um rannsóknir og greinarskrif. Öllum umsóknum verður svarað. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. Nánari upplýsingar veita: Hrönn Garðarsdóttir, heimilislæknir og kennslustjóri, s. 470 3000 og 865 4710, netf. hronn@hsa.is Pétur Heimisson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470 3050 og 860 6830, netf. petur@hsa.is, Emil Sigurjónsson, mannauðsstjóri, s. 470 3050 og 895 2488, netf. emils@hsa.is. Helstu verkefni og ábyrgð • Almennar lækningar • Heilsuvernd • Vaktþjónusta • Þátttaka í kennslu læknanema og kandídata Hæfnikröfur • Almennt lækningaleyfi er skilyrði • Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki • Vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu) • Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og faglegur metnaður • Íslenskukunnátta áskilin. www.hsa HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðalög og stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Heilsugæsla HSA hefur ellefu starfsstöðvar og Umdæmis- sjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Ýmis konar sérfræðileg læknisþjónusta er reglulega í boði í HSA og húðsjúkdómalæknir er þar í föstu starfi, á aðalkennslustöðinni Egilsstöðum. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu. Starf umsjónarmanns mannauðs- og launakerfis í Kjaradeild Fjármálaskrifstofa/Kjaradeild Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Kjaradeild sinnir launavinnslu Reykjavíkurborgar og hefur eftirlit með framkvæmd kjarasamninga. Deildin ber ábyrgð á túlkun kjarasamninga og vinnuréttar og fer með fyrirsvar þeirra mála gagnvart viðsemjendum og aðilum vinnumarkaðar. Deildin sinnir auk þess ráðgjöf á sviði vinnuréttar og kjarasamninga innan Reykjavíkurborgar og hefur umsjón með og ber ábyrgð á launa- og mannauðsupplýsingakerfi borgarinnar og þróun þess. Hjá Kjaradeild starfa 25 starfsmenn og hefur deildin aðsetur að Borgartúni 12. Óskað er eftir öflugum starfsmanni til starfa við umsjón á launa- og mannauðskerfi Reykjavíkurborgar. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir mikilli samskiptahæfni, sýnir frumkvæði og hefur tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð. Unnið er með SAP mannauðs- og launakerfi auk undirkerfa og krefst vinnan skipulagshæfni og þekkingar á stórum fjárhagsupplýsingakerfum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf Umsóknarfrestur er til og með 6. nóvember 2016. Nánari upplýsingar veitir Atli Atlason, deildarstjóri kjaradeildar í netfangi atli.atlason@reykjavik.is Helstu verkefni: • Þróun, viðhald, eftirlit og bilanagreining mannauðs- og launakerfa • Greining og úrvinnsla á launa- og mannauðsgögnum • Skýrslu- og upplýsingagjöf til innri og ytri aðila • Innsetning og viðhald launaforsendna • Aðstoð við notendur Hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi • Góð þekking á gagnagrunnum, SQL forritunarmálinu og rekstri tölvukerfa • Þekking og reynsla af stórum fjárhagsupplýsingakerfum • Reynsla af framsetningu á mannauðs- og launaupplýsingum er kostur • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum • Góðir samskiptahæfileikar og lipurð í mannlegum samskiptum www.rumfatalagerinn.is ATVINNA STARFSKRAFTUR ÓSKAST Í VERSLUN OKKAR Á SMÁRATORGI Óskum eftir að ráða lífsglaða og duglega starfs- menn til starfa í verslun okkar á Smáratorgi. Um er að ræða starf á kassa og starf við áfyllingar. Um fullt starf er að ræða. Vinsamlegast sendið ferilskrá á ivar@rfl.is eða fyllið út umsókn á staðnum. Við leitum af hressum einstakling með mikla þjónustulund í starf móttökuritara í Domus Medica í 100% starf frá 8:00-16:00 virka daga. Í boði er skemmtilegt og líflegt starf sem felst m.a. í símsvörun, skráningu tíma pantana og móttöku sjúklinga fyrir einstakling sem býr yfir góðri samskiptahæfni, almennri tölvukunnáttu og góðri íslensku- og enskukunnáttu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega. Vinsamlega sendið umsókn og ferilsskrá á netfangið domusmedica@domusmedica.is Umsóknarfrestur er til 29. október 2016. Í Domus Medica, sem fagnar 50 ára starfs afmæli í ár, eru starfræktar læknastofur, skurð stofur og rannsóknarstofur sem hjá starfa hátt í 80 sérfræðilæknar. MÓTTÖKURITARI DOMUS MEDICA EGILSGÖTU 3 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI 563 1000 • domusmedica.is 585 5500 HAFNARFJARÐARBÆR Vilt ÞÚ bætast í hópinn? Fjölbreytt störf í boði - sendu okkur umsókn! » Íþróttakennari í Öldutúnsskóla » Heimilisfræðikennari í Setbergsskóla » Skólaliði í Setbergsskóla » Pólskumælandi kennari í Víðistaðaskóla » Frístundaleiðbeinendur í Víðistaðaskóla » Sérkennari í Víðistaðaskóla » Samfélagsfræðikennari í Áslandsskóla » Leikskólakennari í Álfasteini » Starf á heimili fatlaðs fólks » Forstöðumaður í Berjahlíð » Aðstoðarleikskólastjóri í Hlíðarbergi » Leikskólakennari í Bjarkalundi » Sérkennari í Hvaleyrarskóla Erum við að leita að þér? Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með um 2000 starfsmenn. Í samræmi við jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um. Nánar á hafnar‰ordur.is hafnarfjordur.is FYRIR RÉTTA EINSTAKLINGA LAUS STÖRF 2 2 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 1 0 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 0 7 -6 6 6 4 1 B 0 7 -6 5 2 8 1 B 0 7 -6 3 E C 1 B 0 7 -6 2 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 0 4 s _ 2 1 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.