Fréttablaðið - 22.10.2016, Page 76
Ótal uppfinningar má rekja til stríðs-rekstrar. Eins og áður hefur verið rakið á þessum vettvangi er ástæð-
an ekki sú að villimannleg slátrun á
fólki sé svo frjó og skapandi – því er
öðru nær. En þegar kemur að hern-
aðarútgjöldum, einkum á ófriðar-
tímum, horfa stjórnvöld sjaldnast
í aurinn. Markaðslögmálum er
vikið til hliðar en fjármagni dælt
í vísinda- og uppfinningamenn
sem heita lausnum á vandamálum
hersins.
Herstjórnarlist snýst um fleira en
að smíða byssur og þjálfa dáta. Einn-
ig þarf að leysa úr ótal praktískum
úrlausnarefnum svo sem varðandi
fjarskipti og samgöngur. Og þegar
ferðast er með stóran her er eitt
stærsta vandamálið öflun vista.
Hermennirnir þurfa nægan mat til
að hafa orku til að berjast og ekki er
gott ef heilu og hálfu herdeildirnar
veikjast vegna matareitrana.
Í kjölfar frönsku byltingarinnar
stóð franski herinn í ströngu um
langt árabil og átti í sífelldum styrj-
öldum við önnur voldug ríki Evrópu
með tilheyrandi herleiðöngrum.
Mataröflun fyrir herinn var stórt
vandamál og var því árið 1795 grip-
ið til þess ráðs að heita 12 þúsund
frönkum í verðlaun fyrir þann sem
gæti fundið góða lausn á að geyma
matvæli óskemmd.
Tólf þúsund frankar voru feykihá
upphæð og fjöldi fólks freistaði
þess að næla í þau. Það var fimm-
tán árum síðar að lausnin fannst
og maður að nafni Nicolas Appert,
konfektgerðarmeistari og bjór-
bruggari, fékk verðlaunin greidd út.
Lausn Apperts var sérstæð. Hann
kom matvælunum fyrir í gler-
krukkum sem búið var að hreinsa,
innsiglaði krukkurnar með grisju og
vaxloki og dýfði þeim síðan í sjóð-
andi vatn. Með þessari meðhöndlun
gat Appert tekið nánast hvaða mat-
væli sem er og geymt svo mánuðum
skipti án þess að þau skemmdust.
Það var nokkur ljóður á upp-
götvuninni að enginn skildi hvernig
á þessu stóð. Lífvísindin höfðu enn
ekki áttað sig á tilvist eða eðli bakt-
ería. Áratugir áttu eftir að líða uns
annar Frakki, Louis Pasteur, réði þá
gátu. Pasteur gat skýrt forsendur
gerilsneyðingar sem við hann er
Draumur í dós
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um niðursuðu.
kennd á fjölda tungumála. Og hann
áttaði sig á hversu háan hita þyrfti
til að drepa skaðlegar örverur í mat.
Þar sem Apperts og aðrir upphafs-
menn niðursuðunnar bjuggu ekki
yfir þeirri þekkingu hætti þeim til
að hita matvælin of mikið, þannig
að þau töpuðu bæði vítamínum og
bragðgæðum.
Stjórnendur franska hersins
kipptu sér lítið upp við það þótt
vísindin að baki niðursuðunni væru
óljós. Þeim dugði vitneskjan um að
hún virkaði. Nicolas Appert fékk
peningana sína og hóf þegar undir-
búning að byggingu risaverksmiðju
með það í huga að sjá hernum fyrir
hvers kyns niðursoðnum mat. Því
miður fyrir hann og franska stór-
veldisdrauma, var uppgötvunin
aðeins of seint á ferðinni. Niður-
suðumatur kom ekkert við sögu í
dýrkeyptri og misheppnaðri herför
Napóleons til Rússlands árið 1812
og skömmu síðar var keisarinn sigr-
aður. Hver veit nema Evrópusagan
hefði þróast með öðrum hætti ef
franski herinn hefði fyrr notið góðs
af uppfinningunni?
Sigurför um heiminn
Ekki leið á löngu áður en undraað-
ferðin niðursuða fór að spyrjast út
fyrir franska landsteina. Framleið-
endur umbúða úr öðrum efnum en
gleri veittu henni athygli og fljótlega
áttuðu menn sig á því að blikkdósir
væru ódýrari og meðfærilegri kostur
en glerkrukkur. Dósamaturinn var
kominn til sögunnar.
Dósamatur varð um skeið að
stöðutákni og efnafólk kepptist við
að kaupa hvers kyns niðursoðnar
kræsingar, þegar nýjabrumið hvarf
urðu niðursoðnu matvælin á ný
fæða hermanna og sjómanna í
langsiglingum. Á þessu fyrsta tíma-
bili ráku menn sig líka illilega á tak-
markaða efnafræðikunnáttu sína,
því dósum var yfirleitt lokað með
blýblöndu og komu upp ýmis dæmi
blýeitrunar sem rekja hefði mátt til
niðursuðudósa.
Eftir því sem stríðið dróst á lang-
inn urðu hermennirnir ósáttari við
fábreytilega og bragðvonda fæðuna.
Til að bæta liðsandann létu her-
stjórnendur framleiða fjölskrúðugri
rétti og jafnvel heilu máltíðirnar.
Fyrirtækin sem framleiddu matinn
fyrir hermennina héldu svo að stríð-
inu loknu áfram að útbúa slíka rétti
fyrir almenning.
Í bráðskemmtilegri bók eftir
Högna Torfason um sögu lagmetis-
iðnaðar frá árinu 1988 má finna
mikinn fróðleik um upphaf niður-
suðu á Íslandi. Merkilegt er hversu
snemma tæknin berst hingað til
lands en það gerðist þegar árið 1858.
Þá kom skoskur athafnamaður,
James M. Ritchie, sér upp húsi til
niðursuðu í Borgarnesi. Tilgangur-
inn var að sjóða niður lax sem hann
keypti af bændum í héraðinu.
Skotinn sá fljótlega að staðsetn-
ingin í Borgarnesi var óheppileg og
flutti verksmiðju sína að ármótum
Grímsár og Hvítár. Þar komst hann
í kynni við heimamenn sem sáu
um vinnsluna og einn þeirra, sonur
Hvítárvallabóndans, lærði niður-
suðu sérstaklega og vann við niður-
suðu í verksmiðju Ritchie í Peter-
head í Skotlandi.
Laxavinnslan virðist hafa reynst
arðbær, enda hélt hún áfram í all-
mörg ár. Jafnframt lét Ritchie veiða
fyrir sig og sjóða niður talsvert af
ýsu sem hann seldi sömuleiðis til
Bretlands. Endalok þessa fyrsta
niðursuðuævintýris voru þau að
árið 1876 komu nýir athafnamenn
frá Bretlandi og föluðust eftir laxi
frá borgfirskum bændum sem þeir
hugðust leggja á ís og selja ferskan úr
landi. Yfirbuðu þeir niðursuðuverk-
smiðjuna og játaði eigandi hennar
sig þegar sigraðan í samkeppninni.
Kampalampar og Afríkustríð
Þessi fyrsta lagmetisiðja sló tóninn
fyrir þróun atvinnugreinarinnar
hér á landi um margra áratuga
skeið í þeim skilningi, að niður-
suðan beindist helst að tegundum
sem erfitt var að selja með öðrum
hætti og voru illa samkeppnisfærar
um verð.
Næsta stóra tilraunin á þessu
sviði var á Ísafirði laust eftir alda-
mótin 1900. Þar var Pétur M. Bjarna-
son umsvifamikill kaupmaður og
útgerðarmaður. Líkt og aðrir fisk-
verkendur þess tíma byggði hann
veldi sitt einkum á saltfisksvinnslu
og hafði fjölda starfsmanna.
Til að skjóta fleiri stoðum undir
rekstur sinn stofnaði Pétur árið 1906
niðursuðuverksmiðju sem bar hið
mikla heiti „Ísland“. Árið eftir var
veglegt verksmiðjuhús reist og fékk
það ekki síður reisulegt nafn: „Pét-
ursborg“ en var einnig þekkt sem
„Ásgarður“.
Í fyrstu var framleiðslan einkum
skarkolaflök, en mikið féll til af
kola við fiskveiðar í Ísafjarðardjúpi.
Með aukinni sókn erlendra togara á
miðin þvarr hins vegar skarkolinn
og verksmiðjan fór í vaxandi mæli
að sjóða niður lúðu, jafnt í flökum
og sem fiskibollur.
Salan á erlendum mörkuðum
gekk vel en eldsvoði á árinu 1912
batt enda á starfsemina á Ísafirði.
Pétur tók þó upp þráðinn á ný í
Reykjavík skömmu síðar og sauð þá
niður hvers kyns fisk- og kjötafurðir.
Komst tækjabúnaðurinn síðar í eigu
Sláturfélags Suðurlands sem nýtti
hann til að sjóða niður fiskbollur og
gaffalbita, en þó ekki nema í smáum
stíl og einkum til sölu innanlands.
Þriðja atlagan í sögu tilrauna til
að byggja upp niðursuðuiðnað til
útflutnings á Íslandi var um miðjan
fjórða áratuginn. Tveir Norðmenn
freistuðu þess þá að stofna fyrir-
tækið Kampalampa, sem er vest-
firskt heiti á rækju. Tilgangurinn var
einmitt að hefja niðursuðu á rækju,
en það sjávarfang nýttu Íslendingar
í besta falli sem beitu. Alþýðu-
flokksmenn réðu Ísafirði og voru
ekki smeykir við að stofna til opin-
bers reksturs. Þróuðust mál þannig
að Norðmönnunum var synjað um
rekstrarleyfi en árið eftir stal bæjar-
félagið hugmyndinni og stofnaði
Rækjuverksmiðju Ísafjarðarkaup-
staðar.
Tilraunir til stórsigra
Næstu misserin spruttu upp
nokkrar niðursuðuverksmiðjur á
Íslandi, sem líkt og sú fyrir vestan,
miðuðust einkum við að verka ill-
seljanlegar afurðir sem hefðbundin
vinnslufyrirtæki sinntu lítið. Sölu-
samband íslenska fiskframleiðenda
var umsvifamest og hóf til að mynda
niðursuðu á humri árið 1939. Metn-
aðarfullir íslenskir fjárfestar lögðust
jafnvel í útrásarævintýri og opnuðu
niðursuðuverksmiðjuna VINCO í
Danmörku, sem seldi Kaupmanna-
hafnarbúum ýmsar tegundir af síld
og grænmeti. Því ævintýri lauk þó
snögglega með hernámi Danmerkur
á stríðsárunum.
Fleiri tilraunir til stórsigra í út-
löndum enduðu á sömu leið. Sér-
kennilegust voru þó áformin um
að sjóða niður þorskflök og selja
ítalska hernum sem stóð í stríði í
Abbyssiníu. Strönduðu áform þessi
á vandræðum með innflutningsleyfi
og harðri verðsamkeppni. Víst er
þó að Íslendingum hefði verið lítill
sómi að því að styðja með þessum
hætti stríðsrekstur Mússólínís í
Afríku.
Saga lagmetisiðnaðarins á Íslandi
hefur að geyma ýmsar kollsteypur,
einkum varðandi útflutningstil-
raunir en sigrarnir eru þó margir
líka. Það gildir ekki hvað síst um
innanlandsmarkaðinn – eða getur
nokkur hugsað sér jól án þess að
hafa dós af grænum ORA-baunum?
DóSamatur varð um
Skeið að Stöðutákni
og efnafólk kePPtiSt
við að kauPa hverS
kynS niðurSoðnar
kræSingar.
2 2 . o k t ó b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r32 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
2
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
7
-1
7
6
4
1
B
0
7
-1
6
2
8
1
B
0
7
-1
4
E
C
1
B
0
7
-1
3
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
2
1
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K