Fréttablaðið - 20.06.2016, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 20.06.2016, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 4 4 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 2 0 . j ú n Í 2 0 1 6 FLUGSÆTI AÐRA LEIÐINA M/SKÖTTUM OG TÖSKU ALICANTE Frá kr. 9.900BÓKAÐU SÓL Á SPOTTPRÍS SÓLARFERÐIR Á FRÁBÆRUM AFSLÆTTI Frá kr. 44.330 Í Hólavallakirkjugarði Sólkatla og Ísold leiða hér hópinn í Hólavallakirkjugarði í Reykjavík í gær, en þar lögðu þær, með Sóleyju Tómasdóttur forseta borgarstjórnar, blómsveig á leiði baráttu- konunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Nokkur fjöldi sótti athöfnina sem var í tilefni kvennafrídagsins í gær, 19. júní, og hundrað og eins árs afmælis kosningaréttar kvenna. Fréttablaðið/Hanna Fréttablaðið í dag lÍfið Kafað í fjölbreytt fataval tónlistargesta á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sem lauk í gær. 24 fréttir FA segir misræmi í hækkunum Póstsins. 8 skoðun Brynhildur Pétursdóttir efast um ágæti læsisátaks. 10 sport Hamingjan breyttist í ógleði í Marseille. 12 tÍMaMót Tvö ár eru frá stofnun Hjólreiðasambandsins. 16 plús 2 sérblöð l fólk l  fasteignir *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 lÍfið „Við vorum orðnar þreyttar á neikvæðri umræðu um líkama fólks og almennt neikvætt viðhorf til ein- staklingsins,“ segir Kristín Dóra Ólafs- dóttir. Hún, ásamt Kristínu Björk Smáradóttur og Elísabetu Hönnu Maríudóttur, breiðir í sumar út sjálfs- ástar-boðskap á vegum skapandi Sumarstarfa í Garðabæ. Sjálfsást segja þær stöllur snúast um að hugsa fallega til sjálfs sín og hætta að brjóta sig niður. Fólk eigi að hugsa til sín eins og það hugsar til síns besta vinar. – gj / sjá síðu 26 Boða sjálfsást Kristín björk, Elísabet Hanna og Kristín Dóra í Málglöðum. MynD/Eyþór náttúra Í fyrsta skipti í fimm ár hefur greinst nýsmit af síldarsýkingu sem olli stórskaða á síldarstofninum. Mælingar Hafrannsóknastofnunar á ungsíld í fyrra leiða í ljós nýsmit í sömu sýkingu og greindist í sumar- gotssíldarstofninum 2008, að því er fram kemur í skýrslu stofnunarinnar. Þorsteinn Sigurðsson, sviðstjóri á nytjastofnasviði Hafrannsóknastofn- unar (Hafró), segir ekki vitað hversu alvarleg, eða útbreidd sýkingin er í yngstu síldinni. Þorsteinn segir óvissu meiri fyrst nýsmitið sé hjá ungsíldinni. „Þessi sýking hefur verið furðuleg því kennslubækurnar sögðu að þetta ætti allt að drepast. En við sjáum ennþá mikið af sýktri síld í veiðistofninum,“ segir Þorsteinn. Sýkingin virðist hafa valdið minni dauða í síldarstofninum en óttast var í fyrstu en að sögn Þor- steins er frekari rannsókna þörf og enn ótímabært að gefa út upplýsingar um hversu víðtækt smitið er. Hafró telur að hrygningarstofn síldarinnar nái lágmarki á næsta ári en hann hefur minnkað hratt á síðustu árum vegna affalla af völdum sýkingarinnar. Stofninn er talinn vera um 400 þúsund tonn. – shá / sjá síðu 4 Alvarleg síldarsýking greinist aftur í ungsíld Sýking í síld sem fyrst varð vart árið 2008 hefur skotið sér niður að nýju. 900 þúsund tonna stofn hefur farið í 4-5 hundruð þúsund. 2 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 C 6 -8 A 2 4 1 9 C 6 -8 8 E 8 1 9 C 6 -8 7 A C 1 9 C 6 -8 6 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.