Fréttablaðið - 20.06.2016, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 20.06.2016, Blaðsíða 11
Suður England 12. – 17. ágúst Sjö daga ferð um Suður England Ein af vinsælustu ferðunum okkar Ekið um borgir og þorp í hjarta Englands og komið víða við. Skemmtileg og fræðandi ferð. Skoðunarferðir alla daga og hálft fæði innifalið. Flogið með Icelandair. Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson Verð frá 174.200,- Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar Borgartún 34, 105 Reykjavík, S: 511 1515 • outgoing@gjtravel.is • www.ferdir.is Húsfélagaþjónustan ehf • Auðbrekku 16 • 200 Kópavogi • sími 555 6855 • gsm 863 8855 • husfelag@husfelag.is • www. husfelag.is Hreinsum glugga og klæðningar á öllum stærðum húsa Vanir menn - Vönduð vinnubrögð. Sími 555 6855 www.husfelag.is husfelag@husfelag.is Í dag er Alþjóðlegur dagur flótta-fólks, 20. júní. Aldrei í mann-kynssögunni hefur fjöldi flótta- fólks verið meiri en einmitt nú. Samkvæmt mati Flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna teljast um 60 milljónir einstak- linga til flóttafólks. Þar af eru um 20 milljónir sem hafa neyðst til að yfirgefa heimaland sitt vegna vopnaðra átaka eða ofsókna en 10 milljónir þeirra eru börn. Þetta eru tölur sem þú, lesandi góður, hefur líklega heyrt áður. En á bak við þessar sláandi tölur er fólk, venjulegt fólk eins og ég og þú, fólk sem þráir ekkert annað en friðsamlegt og öruggt umhverfi til að vaxa og dafna, finna hæfi- leikum sínum farveg og að tryggja börnum sínum eins farsæla fram- tíð og kostur er á. Venjulegt fólk, í óvenjulegum aðstæðum. En þetta vitum við öll. Í síðasta mánuði birti Amnesty International niðurstöður úr könnun sem framkvæmd var í 27 löndum. Í ljós kom að um 80% almennings, um allan heim, er hlynntur því að taka á móti flótta- fólki. Þetta er yfirgnæfandi meiri- hluti og engin ástæða til að ætla annað en að afstaða Íslendinga sé á sama veg, þótt við höfum látið lítið að okkur kveða í móttöku flótta- fólks (jafnvel miðað við hina frægu höfðatölu). Rétt er þó að fagna því sem vel er gert. Móttaka sýrlensks flóttafólks sem hingað kom í boði stjórn- valda í byrjun árs hefur gengið framar vonum. Fjölskyldurnar, og börnin sérstaklega, vaxa og dafna í því framandi umhverfi sem eyja í Norður-Atlantshafi vafalaust er. Þetta hefur þó ekki gerst af sjálfu sér, heldur hefur kostað mikla og óeigingjarna vinnu margra sjálf- boðaliða og sérfræðinga. En betur má ef duga skal og verkefnin framundan eru stór og mikil. Næsta markmið, sem stefna þarf að og ná sem fyrst, er að jafna aðstöðumun kvótaflóttafólks annars vegar og hælisleitenda hins vegar. Fjöldi fólks sem sækir um alþjóðlega vernd á Íslandi hefur aldrei verið meiri. Stjórnvöld, bæði ríki og sveitarfélög, geta gert miklu betur í málum þeirra sem fá slíka vernd. Margt af því fólki Við viljum öll hjálpa – hjálpum þá! lendir í miklum vanda á vinnu- og húsnæðismarkaði og þarf að líða miklar þrautir við að aðlagast lífinu á Íslandi. Þessu þarf að breyta. Allir sem búa á Íslandi eiga að hafa jafna möguleika hvaðan sem þeir koma og hver svo sem þeirra staða er. Á því sviði getum við verið öðrum ríkjum fyrirmynd. Fyrir rúmum 30 árum lét ungur tónlistarmaður hafa eftir sér ummæli sem hafa orðið langlíf, sem eiga ef til vill vel við: „Það skiptir ekki máli hvað þú getur, heldur hvað þú gerir.“ Það leikur enginn vafi á því hvað við getum. En nú ættum við að hefjast handa við að gera. Kristín S. Hjálmtýsdóttir framkvæmda- stjóri Rauða krossins Móttaka sýrlensks flótta- fólks sem hingað kom í boði stjórnvalda í byrjun árs hefur gengið framar vonum. Fjölskyldurnar, og börnin sérstaklega, vaxa og dafna í því framandi umhverfi sem eyja í Norður-Atlantshafi vafalaust er. Þetta hefur þó ekki gerst af sjálfu sér, heldur hefur kostað mikla og óeigin- gjarna vinnu margra sjálf- boðaliða og sérfræðinga. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag Umheimurinn fylgist skelkaður með framgangi Donalds Trump í bandarísku for-setakosningunum. Það er ein af ráðgátum seinni tíma hversu vel honum hefur vegnað og gefur ekki ástæðu til bjartsýni um stjórnmálaþróun næstu ára. Sennilega þurfum við ekki að óttast að kauði verði á endanum kosinn forseti – en hvað svo sem veit maður? Hann hefur þegar náð miklu meiri árangri en nokkurn óraði fyrir. Wrestling-væðing stjórmálanna Donald Trump er eins og vondi kallinn í Batman-mynd. Hann dáleiðir lýðinn með einföldum orðum og sjónarspili; stórkarla- legum yfirlýsingum og manna- látum, firrum og froðufellingum. Hann er hinn karnívalíski fram- bjóðandi; hefur endaskipti á stað- reyndum og fádæma ruddalegt fas, gerir allt sem ekki má; hann er Hans Klaufi sem kom á geithafri með drullu og dauða kráku til að vinna hylli konungsdótturinnar. Hann kemur fram sem fulltrúi hinna allslausu sem engin tæki- færi fá og hafa verið settir hjá í glórulausri þróun einsprósents- kapítalismans, sem um síðir mun tortíma sjálfum sér. En sjálfur er Trump dekraður forréttindapési sem sóað hefur ævintýralegum föðurauði í heimskupör og sjálfs- dýrðarbrölt, án þess að verulega hafi gengið á sjóðinn. Hann geiflar sig eins og Musso- lini og gargar eins og Hitler; eins og þeir hefur hann ekki til að bera snefil af þokka og er gjörsneyddur annarri útgeislun en þeirri sem nógu öflugt hatur getur hugsan- lega kreist fram kringum þig. Áhorfendur lyfta honum, múgurinn skapar hann. Stemmn- ingin á samkomum hans er eins og á rokktónleikum þar sem allir eru komnir saman til að stilla saman hugi sína og fá styrk af fjöldanum; múgurinn getur verið ægilegt afl því að einstakling- arnir afsala sér eigin gagnrýnni hugsun þar. Fastur liður á þessum skemmtunum er þegar athyglin beinist að einhverjum sem kominn er til að mótmæla yfir- gengilegum málflutningnum – þá veinar frambjóðandinn á mót- mælendur og sigar múgnum á þá, segist munu greiða allan kostnað við hugsanlegar bætur og mál- sóknir en gefur nánast grænt ljós á að gengið sé í skrokk á mótmæl- endunum. Sennilega er þetta allt saman sviðsett eins og svo margt kringum Trump; framboð hans er vitnisburður um Wrestling- væðingu stjórnmálanna þar vestra en sú svonefnda íþrótt er sem kunnugt er eitt samfellt leikrit. Donald Trump virkar á mann sem gegnheilt feik. Sjónarspil þar sem ofbeldið er dýrkað í öllum sínum ömurlegu myndum. Að veita heimskunni lögmæti Rasisminn er alltaf gegn betri vit- und; með verri vitund. Auðvitað veit flest fólk ósköp vel að maður á ekki að dæma milljarða manna eftir framgöngu nokkurra glæpa- manna eða ærðra öfgamanna – sjálfur er ég til dæmis einhvers konar útgáfa af hvítum, kristnum, miðaldra karlmanni sem ann sínu landi og þjóð, en ég myndi aldrei vilja láta dæma mig eftir hryðju- verkamanninum sem myrti nú nýlega þá skeleggu ensku þing- konu Jo Cox, æpandi sína útgáfu af Alla Akhbar – Bretlandi allt, eða eitthvað þess háttar. Eins sér fólk upp til hópa að það er fullkom- lega galin hugmynd að reka alla múslima burt frá Bandaríkjunum í kjölfar þess að frústreraður skápahommi framdi hryðjuverk í Orlando þegar hann skaut fólk af handahófi inni á klúbbi hinsegin fólks, þótt hann segðist að vísu vera áhangandi ISIS. En Trump fær ískyggilega mikinn hljómgrunn í verri vitund fólks með sinn skelfilega haturs- áróður; sem einna helst má kannski líkja við rausið í sumum klerkum í moskum hér og þar, þegar þeir predika hatur á samfé- laginu sem þeir og áheyrendurnir búa í. Þetta er sama liðið; haturs- liðið gegn okkur venjulegu fólki. Hjá áhangendum Trump bland- ast reiði yfir óréttlæti og andúð á forréttindum saman við tor- tryggni gagnvart því sem vísindi og fjölmiðlar og aðrar opinberar sannleiksveitur segja okkur um heiminn. Þetta hugarástand sem Trump hefur tekist að virkja breiðist út um Bandaríkin og á það duga engin rök eða upplýsingar, því að áhangendur hans verða bara enn reiðari þegar þeir eru leiðréttir. Þeir vilja vera reiðir. Þeir finna til sín í reiðinni og ofsanum og því fylgir einhvers konar fró að taka sér stöðu í firrunni. Hver segir að jörðin sé kringlótt? Hvar stendur að við séum komin af öpum? Og mættum við fá að sjá fæðingar- vottorð Obama! Nú kemur repúblikönum í koll að hafa um árabil leitast við að grafa sífellt undan skynsemi, upp- lýsingu og þekkingu í málflutningi sínum; þeir buðu meira að segja upp á – og fengu kosinn – Georg W. Bush á sínum tíma sem frá fyrstu tíð talaði og hagaði sér sem eindregið flón, og reyndist líka slíkur sem forseti. Kannski verður Trump ekki kosinn. En með framgöngu sinni hefur hann veitt heimskunni enn meira lögmæti en áður. Hann hefur fært út mörk hins ásættan- lega í málflutningi. Hann er fulltrúi valdhyggju og ofbeldis- dýrkunar. Hann greiðir götuna fyrir fasismann, sem nú ríður í hlað, eins og sagði forðum í klass- ísku kvæði Þórarins Eldjárns, Góður gestur á Bakka, þar sem allt er satt og rétt, nema hugsan- lega þessi lína hér, í tilviki Trumps að minnsta kosti: „Velgreiddur maður í vönduðum jakka …“ Með verri vitund Rasisminn er alltaf gegn betri vitund; með verri vitund. Auðvitað veit flest fólk ósköp vel að maður á ekki að dæma milljarða manna eftir framgöngu nokkurra glæpamanna eða ærðra öfga- manna. Fr ét tA bl Að ið /E PA s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 2 0 . j ú n Í 2 0 1 6 2 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 C 6 -8 F 1 4 1 9 C 6 -8 D D 8 1 9 C 6 -8 C 9 C 1 9 C 6 -8 B 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.