Fréttablaðið - 20.06.2016, Síða 11
Suður England 12. – 17. ágúst
Sjö daga ferð um Suður England
Ein af vinsælustu ferðunum okkar
Ekið um borgir og þorp í hjarta Englands og komið víða við. Skemmtileg
og fræðandi ferð. Skoðunarferðir alla daga og hálft fæði innifalið.
Flogið með Icelandair. Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson
Verð frá 174.200,-
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar
Borgartún 34, 105 Reykjavík, S: 511 1515 • outgoing@gjtravel.is • www.ferdir.is
Húsfélagaþjónustan ehf • Auðbrekku 16 • 200 Kópavogi • sími 555 6855 • gsm 863 8855 • husfelag@husfelag.is • www. husfelag.is
Hreinsum glugga og klæðningar
á öllum stærðum húsa
Vanir menn - Vönduð vinnubrögð.
Sími 555 6855
www.husfelag.is
husfelag@husfelag.is
Í dag er Alþjóðlegur dagur flótta-fólks, 20. júní. Aldrei í mann-kynssögunni hefur fjöldi flótta-
fólks verið meiri en einmitt nú.
Samkvæmt mati Flóttamanna-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
teljast um 60 milljónir einstak-
linga til flóttafólks. Þar af eru um
20 milljónir sem hafa neyðst til
að yfirgefa heimaland sitt vegna
vopnaðra átaka eða ofsókna en 10
milljónir þeirra eru börn.
Þetta eru tölur sem þú, lesandi
góður, hefur líklega heyrt áður.
En á bak við þessar sláandi tölur
er fólk, venjulegt fólk eins og ég
og þú, fólk sem þráir ekkert annað
en friðsamlegt og öruggt umhverfi
til að vaxa og dafna, finna hæfi-
leikum sínum farveg og að tryggja
börnum sínum eins farsæla fram-
tíð og kostur er á. Venjulegt fólk, í
óvenjulegum aðstæðum. En þetta
vitum við öll.
Í síðasta mánuði birti Amnesty
International niðurstöður úr
könnun sem framkvæmd var í 27
löndum. Í ljós kom að um 80%
almennings, um allan heim, er
hlynntur því að taka á móti flótta-
fólki. Þetta er yfirgnæfandi meiri-
hluti og engin ástæða til að ætla
annað en að afstaða Íslendinga sé á
sama veg, þótt við höfum látið lítið
að okkur kveða í móttöku flótta-
fólks (jafnvel miðað við hina frægu
höfðatölu).
Rétt er þó að fagna því sem vel er
gert. Móttaka sýrlensks flóttafólks
sem hingað kom í boði stjórn-
valda í byrjun árs hefur gengið
framar vonum. Fjölskyldurnar, og
börnin sérstaklega, vaxa og dafna
í því framandi umhverfi sem eyja
í Norður-Atlantshafi vafalaust er.
Þetta hefur þó ekki gerst af sjálfu
sér, heldur hefur kostað mikla og
óeigingjarna vinnu margra sjálf-
boðaliða og sérfræðinga.
En betur má ef duga skal og
verkefnin framundan eru stór og
mikil. Næsta markmið, sem stefna
þarf að og ná sem fyrst, er að jafna
aðstöðumun kvótaflóttafólks
annars vegar og hælisleitenda hins
vegar. Fjöldi fólks sem sækir um
alþjóðlega vernd á Íslandi hefur
aldrei verið meiri. Stjórnvöld,
bæði ríki og sveitarfélög, geta gert
miklu betur í málum þeirra sem
fá slíka vernd. Margt af því fólki
Við viljum öll hjálpa –
hjálpum þá!
lendir í miklum vanda á vinnu- og
húsnæðismarkaði og þarf að líða
miklar þrautir við að aðlagast lífinu
á Íslandi. Þessu þarf að breyta. Allir
sem búa á Íslandi eiga að hafa jafna
möguleika hvaðan sem þeir koma
og hver svo sem þeirra staða er. Á
því sviði getum við verið öðrum
ríkjum fyrirmynd.
Fyrir rúmum 30 árum lét ungur
tónlistarmaður hafa eftir sér
ummæli sem hafa orðið langlíf, sem
eiga ef til vill vel við: „Það skiptir
ekki máli hvað þú getur, heldur
hvað þú gerir.“ Það leikur enginn
vafi á því hvað við getum. En nú
ættum við að hefjast handa við að
gera.
Kristín S.
Hjálmtýsdóttir
framkvæmda-
stjóri Rauða
krossins Móttaka sýrlensks flótta-
fólks sem hingað kom í boði
stjórnvalda í byrjun árs
hefur gengið framar vonum.
Fjölskyldurnar, og börnin
sérstaklega, vaxa og dafna í
því framandi umhverfi sem
eyja í Norður-Atlantshafi
vafalaust er. Þetta hefur þó
ekki gerst af sjálfu sér, heldur
hefur kostað mikla og óeigin-
gjarna vinnu margra sjálf-
boðaliða og sérfræðinga.
Guðmundur
Andri
Thorsson
rithöfundur
Í dag
Umheimurinn fylgist skelkaður með framgangi Donalds Trump í bandarísku for-setakosningunum.
Það er ein af ráðgátum seinni tíma
hversu vel honum hefur vegnað og
gefur ekki ástæðu til bjartsýni um
stjórnmálaþróun næstu ára.
Sennilega þurfum við ekki að
óttast að kauði verði á endanum
kosinn forseti – en hvað svo sem
veit maður? Hann hefur þegar náð
miklu meiri árangri en nokkurn
óraði fyrir.
Wrestling-væðing stjórmálanna
Donald Trump er eins og vondi
kallinn í Batman-mynd. Hann
dáleiðir lýðinn með einföldum
orðum og sjónarspili; stórkarla-
legum yfirlýsingum og manna-
látum, firrum og froðufellingum.
Hann er hinn karnívalíski fram-
bjóðandi; hefur endaskipti á stað-
reyndum og fádæma ruddalegt
fas, gerir allt sem ekki má; hann er
Hans Klaufi sem kom á geithafri
með drullu og dauða kráku til að
vinna hylli konungsdótturinnar.
Hann kemur fram sem fulltrúi
hinna allslausu sem engin tæki-
færi fá og hafa verið settir hjá í
glórulausri þróun einsprósents-
kapítalismans, sem um síðir mun
tortíma sjálfum sér. En sjálfur er
Trump dekraður forréttindapési
sem sóað hefur ævintýralegum
föðurauði í heimskupör og sjálfs-
dýrðarbrölt, án þess að verulega
hafi gengið á sjóðinn.
Hann geiflar sig eins og Musso-
lini og gargar eins og Hitler; eins
og þeir hefur hann ekki til að bera
snefil af þokka og er gjörsneyddur
annarri útgeislun en þeirri sem
nógu öflugt hatur getur hugsan-
lega kreist fram kringum þig.
Áhorfendur lyfta honum,
múgurinn skapar hann. Stemmn-
ingin á samkomum hans er eins
og á rokktónleikum þar sem allir
eru komnir saman til að stilla
saman hugi sína og fá styrk af
fjöldanum; múgurinn getur verið
ægilegt afl því að einstakling-
arnir afsala sér eigin gagnrýnni
hugsun þar. Fastur liður á þessum
skemmtunum er þegar athyglin
beinist að einhverjum sem
kominn er til að mótmæla yfir-
gengilegum málflutningnum – þá
veinar frambjóðandinn á mót-
mælendur og sigar múgnum á þá,
segist munu greiða allan kostnað
við hugsanlegar bætur og mál-
sóknir en gefur nánast grænt ljós
á að gengið sé í skrokk á mótmæl-
endunum. Sennilega er þetta allt
saman sviðsett eins og svo margt
kringum Trump; framboð hans
er vitnisburður um Wrestling-
væðingu stjórnmálanna þar vestra
en sú svonefnda íþrótt er sem
kunnugt er eitt samfellt leikrit.
Donald Trump virkar á mann sem
gegnheilt feik. Sjónarspil þar sem
ofbeldið er dýrkað í öllum sínum
ömurlegu myndum.
Að veita heimskunni lögmæti
Rasisminn er alltaf gegn betri vit-
und; með verri vitund. Auðvitað
veit flest fólk ósköp vel að maður
á ekki að dæma milljarða manna
eftir framgöngu nokkurra glæpa-
manna eða ærðra öfgamanna
– sjálfur er ég til dæmis einhvers
konar útgáfa af hvítum, kristnum,
miðaldra karlmanni sem ann sínu
landi og þjóð, en ég myndi aldrei
vilja láta dæma mig eftir hryðju-
verkamanninum sem myrti nú
nýlega þá skeleggu ensku þing-
konu Jo Cox, æpandi sína útgáfu
af Alla Akhbar – Bretlandi allt, eða
eitthvað þess háttar. Eins sér fólk
upp til hópa að það er fullkom-
lega galin hugmynd að reka alla
múslima burt frá Bandaríkjunum
í kjölfar þess að frústreraður
skápahommi framdi hryðjuverk í
Orlando þegar hann skaut fólk af
handahófi inni á klúbbi hinsegin
fólks, þótt hann segðist að vísu
vera áhangandi ISIS.
En Trump fær ískyggilega
mikinn hljómgrunn í verri vitund
fólks með sinn skelfilega haturs-
áróður; sem einna helst má
kannski líkja við rausið í sumum
klerkum í moskum hér og þar,
þegar þeir predika hatur á samfé-
laginu sem þeir og áheyrendurnir
búa í. Þetta er sama liðið; haturs-
liðið gegn okkur venjulegu fólki.
Hjá áhangendum Trump bland-
ast reiði yfir óréttlæti og andúð á
forréttindum saman við tor-
tryggni gagnvart því sem vísindi
og fjölmiðlar og aðrar opinberar
sannleiksveitur segja okkur um
heiminn.
Þetta hugarástand sem Trump
hefur tekist að virkja breiðist út
um Bandaríkin og á það duga
engin rök eða upplýsingar, því að
áhangendur hans verða bara enn
reiðari þegar þeir eru leiðréttir.
Þeir vilja vera reiðir. Þeir finna til
sín í reiðinni og ofsanum og því
fylgir einhvers konar fró að taka
sér stöðu í firrunni. Hver segir að
jörðin sé kringlótt? Hvar stendur
að við séum komin af öpum? Og
mættum við fá að sjá fæðingar-
vottorð Obama!
Nú kemur repúblikönum í koll
að hafa um árabil leitast við að
grafa sífellt undan skynsemi, upp-
lýsingu og þekkingu í málflutningi
sínum; þeir buðu meira að segja
upp á – og fengu kosinn – Georg
W. Bush á sínum tíma sem frá
fyrstu tíð talaði og hagaði sér sem
eindregið flón, og reyndist líka
slíkur sem forseti.
Kannski verður Trump ekki
kosinn. En með framgöngu sinni
hefur hann veitt heimskunni enn
meira lögmæti en áður. Hann
hefur fært út mörk hins ásættan-
lega í málflutningi. Hann er
fulltrúi valdhyggju og ofbeldis-
dýrkunar. Hann greiðir götuna
fyrir fasismann, sem nú ríður í
hlað, eins og sagði forðum í klass-
ísku kvæði Þórarins Eldjárns,
Góður gestur á Bakka, þar sem
allt er satt og rétt, nema hugsan-
lega þessi lína hér, í tilviki Trumps
að minnsta kosti: „Velgreiddur
maður í vönduðum jakka …“
Með verri vitund
Rasisminn er alltaf gegn betri
vitund; með verri vitund.
Auðvitað veit flest fólk
ósköp vel að maður á ekki
að dæma milljarða manna
eftir framgöngu nokkurra
glæpamanna eða ærðra öfga-
manna.
Fr
ét
tA
bl
Að
ið
/E
PA
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 2 0 . j ú n Í 2 0 1 6
2
0
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
C
6
-8
F
1
4
1
9
C
6
-8
D
D
8
1
9
C
6
-8
C
9
C
1
9
C
6
-8
B
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K