Fréttablaðið - 20.06.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.06.2016, Blaðsíða 8
Siemens kæliskápar á sumartilboði. Gildir til 24. júní eða meðan birgðir endast. Kæliskápur KG 36VUW20 Hvítur, 186 sm. Útdraganleg „crisper- Box“- skúffa sem tryggir lengur ferskleika grænmetis og ávaxta. LED-lýsing. „lowFrost“-tækni: Lítil klakamyndun. Stór „bigBox“- frystiskúffa. Hraðfrysting. H x b x d: 186 x 60 x 65 sm. Tilboðsverð: Fullt verð: 94.700 kr. 74.900 kr. Kæliskápur stál 186 sm KG 36VVI32 Stál, 186 sm. Orkuflokkur A+. Útdraganleg „crisperBox“-skúffa sem tryggir lengur ferskleika grænmetis og ávaxta. LED-lýsing. „lowFrost”- tækni: Mjög lítil klakamyndun og affrysting auðveld. Stór „bigBox“- frystiskúffa. Hraðfrysting. H x b x d: 186 x 60 x 65 sm. Tilboðsverð: Fullt verð: 133.900 kr. 104.900 kr. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is MOWER sláttuvélar með Briggs&Stratton bensínmótor Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ CE/GS VOTTUN MOWER CJ20 Sláttuvél m/ drifi, BS 6,0 hp mótor, sláttubreidd 51cm. Rúmtak 190 CC, skurðarvídd 51cm/20”, sjálfknúin 3,6 km/h, safnpoki að aftan 65 L, hliðar útskilun, skurðhæð og staða 25-75mm/8 20% AFSLÁTTUR 66.990 53.592 MOWER CJ18 Sláttubreidd 46cm. BS 3,5hp mótor, rúmtak 158 CC, skurðarvídd 46cm/18”. Safn- poki að aftan 60 L, skurðhæð og staða 25-85mm/8 42.990 34.392 viðskipti Félag atvinnurekenda (FA) hefur skrifað Póst- og fjarskiptastofn- un (PFS) bréf þar sem vakin er athygli á tíðum og miklum hækkunum á gjaldskrá Íslandspósts á þeirri þjón- ustu sem fyrirtækið hefur einkarétt á að veita – og einna helst á þeim flokki sem fyrirtæki nýta helst til samskipta við sína viðskiptavini. Eins að verðskrá fyrir þá þjónustu Íslandspósts sem er í samkeppni við starfsemi einkaaðila hefur ekki hækkað í neinu samræmi. Bréfritari Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, tekur dæmi þar sem hann sýnir fram á að Magn- póstur B – flokkurinn sem fyrirtæki nýta helst – hefur hækkað um 46,2 prósent frá ársbyrjun 2014. Pakka- sending – sem fellur undir sam- keppnishlutann – hefur á sama tíma hækkað um 3,1 prósent. „Þessi munur vekur furðu og marg- ar spurningar. Verðskrárhækkun vegna bréfa í einkarétti um síðustu mánaðamót var þannig réttlætt með vísan til meiri launahækkana í kjara- samningum en Íslandspóstur gerði ráð fyrir í áætlunum sínum. Auka þær hækkanir ekki kostnað vegna pakka- sendinga, ekki síður en vegna bréfa- sendinga,“ spyr Ólafur í bréfi sínu. Í bréfinu rekur Ólafur hvernig afkoma samkeppnisrekstrar Íslands- pósts innan alþjónustu snarvernsaði árið 2013 – sem skýrist af breytingum á því hvernig úthlutun kostnaðar er færð á einstaka starfsþætti. Þegar samkeppnishlutinn innan alþjónustu og utan hennar er borinn saman full- yrðir Ólafur að sú „mynd blasir við að ríkisfyrirtækið ástundi undirverð- lagningu þess hluta alþjónustunnar sem er í samkeppni við einkaaðila.“ Það telur Ólafur að gangi gegn lögum um póstþjónustu. Í bréfinu segir að ljóst sé að PFS hafi ekki rækt það hlutverk sitt að hafa eftirlit með gjaldskrá Íslandspóst vegna samkeppnisrekstrar innan alþjónustu – þjónustan sé rekin með „hvínandi tapi vegna undirverðlagn- ingar“, sem gangi þvert á lög. Eins er vakin athygli á því í bréfinu að samkvæmt starfsleyfi Íslandspósts skuli fyrirtækið upplýsa um skilmála þeirrar þjónustu sem það veitir – og geri þær aðgengilegar á heimasíðu fyrirtækisins, afgreiðslustöðum og víðar. Á þessu sé hins vegar mikill misbrestur og á sama tíma séu sterkar vísbendingar um að Íslandspóstur hafi náð til sín viðskiptum eins og bögglasendingum með undirverð- lagningu. „Engu að síður hefur FA séð skjalfest dæmi þess að PFS neiti keppinautum Íslandspósts um að ganga á eftir því við ríkisfyrirtækið að það birti afsláttarskilmála sína opin- berlega, líkt og löggjafinn hefur ætlast til,“ segir í bréfinu. Í niðurlagi bréfsins segir Ólafur þessa þróun mikið áhyggjuefni og heilbrigðu samkeppnisumhverfi í póstþjónustu sé stefnt í hættu vegna vanrækslu PFS á lögbundnu eftirlits- hlutverki sínu. svavar@frettabladid.is Segir Íslandspóst fara á svig við lög Misræmi í hækkunum á gjaldskrá Íslandspósts er harðlega gagnrýnt af Félagi atvinnurekenda. Einkaréttarvarin þjónusta hækkar um tugi prósenta en samkeppnishluti lítið sem ekki neitt. Fullyrt að PFA vanræki lögbundið eftirlitshlutverk sitt. Breytingar á gjaldskrá Íslandspósts eru harðlega gagnrýndar. Mynd/Íslandspóstur samfélag Hornsteinn var lagður að húsi Stofnunar Vigdísar Finnboga- dóttur í erlendum tungumálum í gær, 19. júní, á réttindadegi kvenna. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, lagði hornsteininn að byggingunni ásamt Jóni Atla Bene- diktssyni, rektor Háskóla Íslands. Vigdís sagði í ræðu sinni að hún væri stolt af því að Íslendingar skuli með byggingu hússins geta minnt á ómetanlegt gildi tungumála heims- ins með þá visku sem þau geyma. Byggingin mun hýsa Vigdísar- stofnun, alþjóðlega miðstöð tungu- mála og menningar sem starfar undir merkjum UNESCO. Í húsinu verður einnig starf- rækt fræðslu- og upplifunarsetur auk þess sem þar verður að finna aðstöðu fyrir fyrirlestra og fleira. Jón Atli Benediktsson segir stofnunina skipta gríðarlega miklu máli fyrir rannsóknir og kennslu í erlendum tungumálum. Vigdísarstofa, tileinkuð Vigdísi Finnbogadóttur, verður þar að auki í húsinu en þar verður hægt að fræðast um líf hennar og störf. Áætlað er að byggingin verði form- lega tekin í notkun vorið 2017. – þv Hornsteinn lagður að Vígdísarstofnun Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og Jón atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, lögðu hornsteininn að Vigdísarstofnun í gær. Mynd/Háskóli Íslands Sú mynd blasir við að ríkisfyrirtækið ástundi undirverðlagningu þess hluta alþjónustunnar sem er í sam- keppni við einkaaðila. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA 2 0 . j ú n í 2 0 1 6 m Á n U D a g U R8 f R é t t i R ∙ f R é t t a B l a ð i ð 2 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 6 -B 1 A 4 1 9 C 6 -B 0 6 8 1 9 C 6 -A F 2 C 1 9 C 6 -A D F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.