Fréttablaðið - 20.06.2016, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 20.06.2016, Blaðsíða 41
fyrIr aLlA Skólajógúrt gefur fjölskyldumeðlimum á öllum aldri góða orku fyrir leik og starf. Jógúrtin er afar kalkrík, inniheldur trefjar og er þar að auki einstaklega bragðgóð. skólAjógúrT fjölskYlduNa HV ÍT A HÚ SÍ Ð / S ÍA SYKU R- MINNI 8,5 g k olvetn i Síðumúla 34 • 108 Reykjavík Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is ENDURNÝJUN OG VIÐHALD Löggiltur rafverktaki Sími: 696 5600 rafsol@rafsol.is Tölvuleikir Homefront: The revolution HHHHH PS4 Tæknilega framúrskarandi Norður- Kórea hefur hertekið Bandaríkin. Íbúar eru beittir miklu harðræði og innrársarherinn arðrænir Bandaríkin hægt og rólega. Þeir sem mótmæla eru teknir af lífi. Íbúar Philadelphia eru þó orðnir þreyttir á þessu ástandi og ætla þeir sér að berjast af fullum krafti. Skotleikir sem þessir, þar sem spil- arar eru settir í hlutverk fólks sem berst gegn ofurefli eru orðnir frekar algengir og í grunninn er Homefront: The Revolution fínasti skotleikur. Leikurinn reynir að fanga stemning- una úr byltingarmyndinni Red Dawn en best tekst þeim til með sköpun söguheimsins. Leiknum er skipt niður í tvenns konar opin svæði. Annars vegar svæði þar sem bardagar geysa og hins vegar byggð svæði þar sem draga þarf íbú- ana inn í baráttuna um Philadelphia. Andrúmsloft byggðra svæða er mjög vel heppnað. Íbúar Philadelphia, sem ekki starfa með innrásarhernum búa nánast í flóttamannabúðum Spilunin HTR er nokkuð skemmti- leg en hún verður einsleit og sagan varla til staðar. Söguhetjan Ethan Brady segir ekki eitt einasta orð og fær hann sífellt sama verkefnið. Það er að fara þangað og drepa þennan og hinn og jafnvel stundum sprengja þetta og hitt. Undirritaður hafði gaman af vopnakerfi leiksins þar sem hægt er að breyta byssum og byggja þær upp eftir áherslum spilara. Kíkja þarf í skúffur eftir hlutum sem hægt er að nota til að byggja sprengjur og ýmis- legt annað. samuel@365.is NiðurSTaða: Tæknilegir gallar eru á leiknum en þeir eru ekki margir sem ekki er búið að laga. Þrátt fyrir skemmtilegt andrúmsloft og öðruvísi spilun en margir aðrir leikir bjóða upp á mistekst fram- leiðendum Homefront að ná leiknum í þær hæðir sem til stóð. Einsleit bylting gegn harðræði og arðrænandi innrásarherÍslands standa að. Fundarstjóri er Björg Thorarensen, prófessor við Lagadeild HÍ. Fundurinn fer fram á ensku. Hvað? Alþjóðlegur dagur flóttafólks Hvenær? 14.00 Hvar? Austurvöllur Í dag er alþjóðlegur dagur flótta- manna og af því tilefni efna Íslandsdeild Amnesty Inter- national, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Unicef og Rauði Krossinn til viðburðar í miðborg Reykja- víkur til að vekja athygli á veru- leika flóttamanna. Á Austurvelli verður hægt að spjalla við Rauða Krossinn, Mannréttindaskrifstofu Íslands ásamt flóttafólki og hælis- leitendum um stöðu þeirra, vanda, drauma og vonir. Við Tjörnina mun Íslandsdeild Amnesty vera með táknræna aðgerð þar sem vakin verður athygli á þeirri hættu sem margir flóttamenn þurfa að leggja sig í til að komast yfir Mið- jarðarhafið. Hvað? Gong á sumarsólstöðum Hvenær? 18.00 Hvar? Ylströndin í Nauthólsvík Kjörinn staður til þess að mæta og hvíla líkama, huga og sál við hafið. Arnbjörg Kristín jógakennari leikur á gongið fyrir gesti. Tónlist Hvað? Mharhi Baird Trio Hvenær? 21.00 Hvar? Cafe Rosenberg Ungir írskir tónlistarmenn sem kynntust í tónlistarskólanum Irish World Academy of Music and Dance spila klassíska írska tónlist fyrir Íslendinga. Hvað? John BRNLV Hvenær? 22.00 Hvar? Kaffibarinn Plötusnúðurinn John BRNLV sér- hæfir sig í blöndu af elektró-tónlist en hann mun spila fyrir gesti Kaffi- barsins í kvöld. Hvað? Ellert Trúbador Hvenær? 21.00 Hvar? American Bar, Austurstræti Ellert Trúbador syngur fjöruga og skemmtilega smelli fyrir gesti American Bar í kvöld. Sýningar Hvað? The Weather Diaries Hvenær? 21.00 Hvar? Norræna húsið Listamennirnir Sarah Cooper og Nina Gorfer leiða hóp listamanna sem setja upp sýningu í Norræna húsinu sem snýst um hvernig veðrið hefur áhrif á ljósmyndun og innsetningar. Alls verða tólf listamenn að sýna verk sín en þeir koma meðal annars frá Grænlandi, Íslandi og Færeyjum. Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Spilunin HTR eR nokkuð SkemmTileg en Hún veRðuR einSleiT og Sagan vaRla Til STaðaR. M e N N i N g ∙ F r É T T a B l a ð i ð 21M Á N u D a g u r 2 0 . j ú N í 2 0 1 6 2 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 6 -B 1 A 4 1 9 C 6 -B 0 6 8 1 9 C 6 -A F 2 C 1 9 C 6 -A D F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.