Fréttablaðið - 20.06.2016, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 20.06.2016, Blaðsíða 2
Ferðaþjónusta Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra hefur ákveðið að loka hluta gistihússins Blöndubóls á Blönduósi þar til kröfum eftirlitsins verður fullnægt. Verður því ekki hægt að gista í þeim hluta hússins. Þetta er í annað skipti svo vitað sé á þessu ári að heilbrigðiseftirlit lokar gistiaðstöðu fyrir ferðamenn hér á landi. Ákvörðunin um þvingunarúrræði fyrir gististaðinn Blönduból var tekin á fundi heilbrigðiseftirlitsins þann 16. júní síðastliðinn. Eftirlitið ákvað að knýja á um úrbætur sem settar voru fram bréflega tveimur dögum áður. Eigandi gistihússins neitaði að verða við beiðninni og setja fram úrbótaáætlun. Því hafi ekki verið um annað að ræða en að loka staðnum þar til kröfum hefur verið fullnægt. „Við fórum í skoðun á gistihúsinu og gerðum athugasemdir varðandi þrif. Vildum við að því yrði kippt í liðinn og settum við fram kröfur um að bætt yrði úr þrifum og að eigandi myndi setja áætlun af stað til úrbóta þar sem þrifum var ábótavant,“ segir Sigurjón Þórðarson, heilbrigðisfull- trúi. „Þessum tilmælum þverneitaði eigandinn að fara eftir og því ekki um neitt annað að ræða en að loka þeim hluta gisthússins tímabundið þar sem þrif voru ekki í lagi.“ Jónas Skaftason, eigandi Blöndu- bóls, er síður en svo ánægður með vinnubrögð heilbrigðisfulltrúans og segir þetta aðfarir gegn sér sem sprottnar eru upp úr einni færslu útlenskra kvenna á Facebook þar sem þær sökuðu staðinn um óþrif. „Það er nú bara þannig að þær pöntuðu gistingu í herbergi en vildu gistingu í sér gisthúsi sem ég er með. Því urðu þær ósáttar og dreifðu á Facebook einhverjum lygapósti,“ segir Jónas. „Þetta er byggt á mis- skilningi og tittlingaskít og því skil ég ekki alveg þessar aðfarir. „Ég hélt að hann væri að koma hingað út af frárennslismálum hjá Blönduósbæ. Hér í fjörunni liggur klósettpappír og mannaskítur úti um allt. Ég reyndi að sýna honum það en það skipti hann víst engu máli.“ sveinn@frettabladid.is Vélorf ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Veður Lentir aftur í Annecy Fyrstu tveir að baki Karlalandslið Íslands í fótbolta lendir á flugvellinum í Annecy í Frakklandi í gærmorgun eftir ferðalagið frá Marseille. Þar kepptu Íslendingar við Ungverja á laugardag og endaði viðureignin með jafntefli liðanna. Liðið hefur aðsetur í Annecy á meðan á EM stendur. Næsti leikur er gegn Austurríki í St. Denis í nágrenni Parísar klukkan fjögur á miðvikudaginn, 22. júní. Fréttablaðið/Vilhelm Allhvöss austanátt í dag með tals- verðri rigningu austanlands, en hægari vindur vestan til og skýjað með köflum. Hiti 6 til 18 stig, hlýjast á Vesturlandi. sjá síðu 18 eigandi gististaðarins blöndubóls á blönduósi segir aðfarir gegn staðnum sprottnar upp úr Facebook-færslu erlendra kvenna. mynd/GooGle earth Loka hluta gistihúss vegna óþrifnaðar Eigandi gististaðarins Blöndubóls á Blönduósi neitaði að verða við óskum heil- brigðiseftirlitsins um úrbætur og segir þetta mál vera tittlingaskít. Við fórum í skoðun á gistihúsinu og gerðum athugasemdir varðandi þrif. Vildum við að því yrði kippt í liðinn og settum við fram kröfur um að bætt yrði úr þrifum. Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra Kjaramál Tafir urðu á millilanda- flugi um Keflavíkurflugvöll í gær vegna forfalla flugumferðarstjóra. Millilandaflug um flugvöllinn lá um tíma niðri í gærmorgun og í kjölfarið urðu seinkanir á flugi. Aðeins einn flugumferðarstjóri var á vakt vegna forfallanna. „Flugumferðarstjórar hafa ekki verið viljugir til að taka auka- vaktir núna eftir að lögin voru sett á,“ sagði Guðni Sigurðsson, upp- lýsingafulltrúi Isavia, við frétta- stofu í gær og vísar til þeirra laga sem Alþingi setti á yfirvinnubann flugumferðarstjóra fyrr í mánuð- inum. Kjaraviðræður flugumferðar- stjóra og Isavia virðast vera á við- kvæmu stigi. Hvorugur aðilinn gefur nokkuð upp um gang við- ræðna. Ljóst er að deiluaðilar þurfa að hafa hraðar hendur þar sem þeir hafa aðeins fimm daga til viðbótar áður en deilunni er vísað í gerðardóm samkvæmt fyrr- nefndum lögum Alþingis. „Það er fundur klukkan eitt á morgun [í dag] og viðræður hafa verið í gangi síðustu daga. Það var ákveðið að ræða það ekki í fjöl- miðlum hvernig viðræðum miðar áfram en það er fundur á morgun og við vonumst til að leysa þetta sem allra fyrst,“ sagði Guðni í gær. – lvp / þea Aðgerðir flugum– ferðarstjóra valda töfum Björgun Allar björgunarsveitir Landsbjargar á höfuðborgarsvæð- inu ásamt björgunarsveitum á Suðurnesjum voru kallaðar út í gær til að leita að breskum göngumanni. Maðurinn varð viðskila við sam- ferðafólk sitt snemma á laugardag við Sveifluvatn norðan Kleifarvatns. Fólkið hafði samband við lögreglu í gærmorgun. 150 manns tóku þátt í leitinni auk þess sem notast var við þyrlu Land- helgisgæslunnar, fjórhjól og tvo dróna. Þoka var og slæmt skyggni. Maðurinn var enn ófundinn í gærkvöldi, en Jónas Guðmundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, sagði að leitað yrði fram á nótt. – þv Allar sveitir leita göngumanns Flugumferðarstjórar hafa ekki verið viljugir til að taka auka- vaktir núna eftir að lögin voru sett á. Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Isavia ohf. 2 0 . j ú n í 2 0 1 6 m á n u D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 2 0 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 6 -8 F 1 4 1 9 C 6 -8 D D 8 1 9 C 6 -8 C 9 C 1 9 C 6 -8 B 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.