Víkurfréttir - 30.03.1983, Síða 8
8 Miðvikudagur 30. marz 1983
VÍKUR-fréttir
Páska-
dagskrá
Félagsbíós
Skírdagur:
Kl. 14.30: Sönskemmtun
Tónlistarskólans. Krist-
ján Jóhannsson og Dor-
riet Kavanaugh.
Kl. 18: E.T.
Kl. 21: E.T.
Allra síðustu sýningar á
þessari frábæru mynd.
Dul-arfyi og s&mnmél ny ktomk
kvikmynú< im fóík, osmstft óóa
Kl. 23.20: Byrjum viðsýn-
ingar á íslensku kvik-
myndinni ,,HÚSIГ.
Föstudagurinn
langi:
Kl. 21: Söngskemmtun:
Karlakórinn Heimir,
Skagafirði.
Laugardagur
2. apríl:
Kl. 17: Páskabingó Lion-
klúbbsins Óðins.
2. páskadagur:
Kl. 14.30: Barnasýning -
Vígstirnið.
Kl. 17 og 21: (slenska
kvilkmyndin ,,HÚSIГ.
Unglingur frá öðru
landi - til þín!
25 ár eru nú liðin frá því
að skiptinemasamtök AFS
hófu starfsemi sína hér á
landi. Hátt á 5. hundrað is-
lenskir unglingar hafa farið
til annarra landa á þessu
tímabili og áttu Suðurnesin
3 fulltrúa í þeim hópfyrstu 2
árin. Síðan hafa 8 unglingar
farið frá Suðurnesjum til
ársdvalar í Bandaríkjunum
og ein stúlka til Hollands.
Hjá okkur hafa 8 banda-
rísk ungmenni dvalið í 2
mánuði að sumarlagi og
fyrir 3 árum kom fyrsti er-
lendi neminn hingað til árs-
dvalar. Það var stúlka frá
Sviss, Daniela Odermatt, og
dvaldi hún hjá Karli Steinari
Guðnasyni og fjölskyldu í
Danlela Odermatt
Keflavík. Sl. vetur var hér
drengur frá Frakklandi,
Jean Francois Degines, og
bjó hann í Njarðvík hjá Sig-
mari Ingasyni ogfjölskyldu.
( vetur er hér svo stúlka frá
(talíu, Roberta Bianconi og
býr hún hjá Davíð Eyrbekk
og fjölskyldu hér í Keflavik.
Þessir þrír unglingar hafa
stundað nám við Fjölbrauta
skóla Suðurnesja.
Það er von okkar AFS-fé-
laga hér á Suðurnesjum, að
við getum haldið þessum
nemendaskiptum áfram og
skorum því á fólk að kynna
sér starfsemi okkar.
F.h. AFS í Suðurnesjum,
Guðný Gunnarsdóttir,
simi 2460.
Roberta Blanconl
Ránargötunni lokað
Borist hefur bréf frá stöðv
arstjóra Pósts og Síma í
Keflavík til bæjarfógetans i
Keflavík, þar sem hann
sækir um leyfi til að loka
Ránargötu i Keflavík frá og
með 31/8 ’83 vegna bygg-
ingaframkvæmda.
Erindir var tekið fyrir í
umferðarnefnd Keflavíkur
24. marz sl. og var nefndin
samþykk því að fallist sé á
umsókn símstöðvarstjór-
ans með því fororði að eig-
endum fasteigna við götuna
verði gert kleift að komast
leiðar sinnar að innkeyrsl-
um sínum. - epj.
Umferðarslys á Reykjanesbraut
Alvarlegt umferðarslys
varð á Reykjanesbraut við
Kúagerði á sunnudaginn
annan í var, en þá snerist
bíll í hálkunni og lentu fram-
an á öðrum sem kom úr
gagnstæðri átt, en mikil
hálka var á brautinni eftir
snjókomuna daginn áður.
Þrennt var flutt í sjúkra-
hús og fékk tvennt að fara
strax aftur heim, en ein
Yfir 3000 á E.T.
Sl. mánudagskvöld kom
þrjú þúsundasti gesturinn á
kvikmyndina E.T. í Félags-
bíó. Sú heppna var Sigrún
Högnadóttir, Hlíðarvegi 52,
Njarðvík, og fékk hún
frímiða út árið og blóm-
vönd að auki frá félagsbíói.
Var þetta 9. sýning biós-
ins á E.T. og hefur aðsókn
veriö mjög góð og oft upp-
selt. Allra síðasta sýning
verður á skírdag og kannski
slær hún þá aösóknarmet
hjá Félagsbíói, en það met
er 4200 manns, sem komu
til að sjá ,,Grease“ með Oli-
viu Newton John og John
Travolta. - epj.
kona var lögð í sjúkrahús í
Reykjavík með mjög alvar-
leg meiðsli.
Báðir bílarnir voru héðan
að sunnan, en hvorugur
ökumannanna var með
öryggisbelti, en það er mat
manna að þeir hefðu slopp-
ið mun betur ef beltin hefðu
veriö spennt. - epj.
Mikil loðna
( síðasta tölublaði sögð-
um við frá því að borið hefði
eitthvað á loðnu við Staf-
nes að undanförnu. Nú hafa
hins vegar borist fregnir um
að allt væri fullt af loðnu hér
út af, eöa eins og einn sjó-
maður orðaði það: ,,það er
hvergi hægt að stinga niður
veiðarfæri fyrir loðnu.”
Sá sami sagði einnig að
sá fiskur sem nú fengist hér
út af væri belgfullur af
loðnu og hún væri það mikil
aö þegar netadrekarnir
væru dregnir úr sjó væru
þeir alþaktir loðnuhrogn-
um. Svipaðar sögur eru frá
sjómönnum víða hér í ná-
grenninu. - epj.
Ester Karvelsdóttlr og Jean Francois Deglnes
Keflvíkingar, Njarð-
víkingar, athugið
10 ÁRA FERMINGARAFMÆLI (fermingar-
börn 1973) verður haldið í Bergás 30. apríl.
Mætum oll. Þátttaka tilkynnist í síma 1063
Hrafnhildur, 3893 Silla, 3633 Þórunn, 2455
Sólveig, og 3882 Rósa.
Innnömmun
SuÐURnesjfi
Til fermingargjafa
Vinsælar fermingargjafir
fyrir stúlkur.
„Bögglaði bréfpokinn“
Úrvals gjafavara frá Rosenthal.