Víkurfréttir - 07.07.1983, Side 10
10 Fimmtudagur 7. júlí 1983
VÍKUR-fréttir
ÍS-mat hf.
auglýsir
Vegna fjölda
fyrirspurna, höfum
við ákveðið,
að taka
kjöt í reyk.
Tekið er á móti
frosnu kjöti á
miðvikudögum.
BREKKUSTÍG 40
YTRI-NJARÐVÍK
SÍMI 2152
Ofsóknir á
rnm i
Mjög þunglega horfir um
þessarmundirfyrir framtið
þeirra 300.000. Baháía
sem búa í Iran. Hafa stjórn-
völd í Iran og sjálfskipaðir
byltingaverðir síöastliöin
fjögur ár tekiö af lífi eftir
pyndingar yfir 150 Baháía
sem gefið hefur verið að sök
undirróður og njósnir i
þágu Síonista, ásamt ým-
sum öðrum upplognum
sakargiftum.
Ekki er hægt í stuttri grein
sem þessari aö rekja í smá-
atriðum atburði síðustu
mánuða, hvað þá ára, en til
að auðvelda umfjöllun má
setja fram þær þrjár megin-
leiðir sem beitt hefur verið í
ofsóknum þessum.
1. Almennri upptöku allra
eigna og helgistaöa Baháí
samfélagsins.
2. Fjárhags-og félagslegum
þvingunum er einstakir
Baháíar eru beittir í þeirri
von að þeir afneiti trú sinni á
Bahá'ú'lláh (Dýrð Guðs).
3. Kerfisbundnum handtök-
um og aftökum á leiðtogum
trúarinnar.
Flest heimsblaðanna
hafa fjallað um kjör
Bahá'íanna í Iran og hefur
ástandsins einnig marg-
sinnis verið getið í íslensk-
um. Fjöldi einstaklinga og
félagssamtaka hafa þegar
Sólbað, sund, vatnsnudd og heitir pottar
SUNDHÖLLIN ER OPIN SEM HÉR SEGIR:
Mánudaga til fimmtudaga: Frá kl. 7,30-9 og 12-22.
Föstudaga: Frá kl. 7,30-9 og 12-19.
Laugardaga: Frá kl. 8-10 og 13-18.
Sunnudaga: Frá kl. 9-12.
ATH.: Framvegis verður opiö í kvöldmatnum frá kl 19-20,
mánudnga til fimmtudaga.
Tímapantanir í sólbekkina í síma 1145
SUNDHÖLL KEFLAVÍKUR
TILBOÐ
Hreinsum útveggi húsa með háþrýstidælu t.d. hraunaða, skeljaða
og plastklædda - þvoum einnig glugga.
Verð c.a. 1000 kr. pr. einbýlishús.
VANIR MENN - VÖNDUÐ VINNA
HAFIÐ SAMBANDI
SÍMI 45507 (HRAFNHILDUR) kl. 9-13
hendur
íran
lýst yfir andstöðu sinni
gegn mannréttindabrotum
þeim sem hér um ræðir.
Einnig hafa fjölþjóðastofn-
anir tekið málið upp, og
haröorð mótmæli verið
send stjórnvöldum Irans.
Sem dæmi má nefna
samþykkt Evrópuþings
Efnahagsbandalagsins árið
I980 varðandi útflutnings-
bann á niðurgreiddum
landbúnaðarvörum aðildar-
r í k j a n n a t i I I r a n s í
mótmælaskyni. Fjallaö
hefur verið um MÁLIÐ af
Evrópuráðinu og undir-
nefnd Mannréttindanefnd-
ar Sameinuðu þjóðanna og
tvívegis á fundum mannrétt-
indanefndarinnar sjálfrar.
Það misrétti er Bahá'íar í
Iran eru beittir í heimalandi
sínu og sú ógn er steðjar að
þessu hrjáða fólki dag
hvern, hlýtur að vekja óhug
og andúð allra þeirra er af
þessu fá raunsanna mynd. í
skýrslu er Mannréttinda-
nefnd Mótmælendakirkju-
sambandsins í Sviss gaf út
12.sept. 1979 um ofsóknir-
nar eftir að hafa kannaö
málið þar i landi, segir:
„Bahá'í samfélagiö í Iran á
sér sögu og hefð í þessu
landi allt aftur til 1884. Á
þeim tíma hafa meðlimir
þessa samfélags lagt sitt af
mörkum til menntunar og
velferðar Irönku þjóðarinn-
ar og verið löghlýðnir borg-
arar og friðelskandi fólk.
Þeir eru einlægir i sannfær-
ingu sinni og trú og fylgja
því trúarákvæði að taka ekki
þátt í stjórnmálastarfi í
Iran.... Þetta er alvarlegasta
tímabil í sögu Bahá'í
safnfélagsins í Iran. Ef ekki
verður gripið til skjótra að-
gerða á réttum stöðum,
hvílir raunveruleg og bráð
hætta yfir hópi einlægra
lærisveina trúar Bahá'-
ú'lláh."
( tilefni enn aukinna of-
sókna á hendur Bahá'íum i
Iran efna Bahá'íar til opin-
berrar kynningar á málstað
sínum, í slysavarnarhúsinu (
Sandgerði mánudagskvöld
11. júlí kl.20. Verðurþaröll-
um fvrirspurnum svarað og
málið kynnt viðstöddum.
Fyrir hönd Andlegs
Svæðisráðs Keflavíkur.
Svanur G. Þorkelsson.
Eigendaskipti á Draumalandi
Eins og áöur hefur komið
fram uröu nýlega eigenda-
skipti að versluninni
Draumalandi, Hafnargötu
37a, og er hinn nýi eig-
andi Stella Olsen. Verður
verslunin rekin áfram með
svipuðu sniði og áður, en
með haustinu mun úrval
verða fjölbreyttara, og
hefur nú þegar bæst í vöru-
úrvalið sundföt, aðallega í
stórum númerum, fyrir
konur.
Um afgreiðslustörf í
Draumalandi sjá þær Berg-
Ijót Stefánsdóttir og Mar-
grét Siguröardóttir.
epj.
Hinn nýi eigandi Draumalands, Stella Ólsen, ásamt dóttur
sinni Telmu Birgisdóttur, i versluninni.
Skrifið eða hringið
til Víkur-frétta
Víkur-fréttir hvetur les-
endur til aö skrifa blaðinu
um hvaöeina sem hugur
þeirra stendur til - eða
hringja í sima 1717, ef þeir
koma ekki viö að skrifa.
Meðal efnis sem vel er
þegið eru ábendingar,
oröaskipti, fyrirspurnir og
frásagnir, auk pistla, frétta
og stuttra grelna.
Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð þó þaö sé ákjósan-
legra, séu þau skrifuð þurfa
þau að vera snyrtileg og
með góðri rithönd. Nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng
veröa aö fylgja öllu efni til
blaðsins, þó höfundur óski
nafnleyndar.
Sérstaklega þykirástæða
til aö beina því til lesenda
búsettum í hinum ýmsu
byggöum Suðurnesja utan
Keflavíkur, aö þeir láti sinn
hlut ekki eftir liggja hér í
blaöinu.